Leitað logandi ljósi eftir nýjum kirkjugarði á Selfossi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 22. febrúar 2026 13:04 Bæjaryfirvöld í Árborg leita nú logandi ljósi að nýjum kirkjugarði í sveitarfélaginu en tveir staðir koma helst til greina. Magnús Hlynur Hreiðarsson Aðalsafnaðarfundur Selfosssóknar hefur samþykkt að veita safnaðarstjórn kirkjunnar leyfi til að halda áfram með hugmyndavinnu sína um stækkun Selfosskirkju. Markmiðið er að greina og áætla þörf til næstu framtíðar og koma með tillögur þar um. Þá er verið að leita logandi ljósi að staðsetningu á nýjum kirkjugarði á Selfossi.
Aðalsafnaðarfundur Selfosssóknar fór fram í vikunni en þar voru nokkur mál til umfjöllunar, meðal annars staðan á leitinni að nýjum kirkjugarði á Selfossi eða í næsta nágrenni. Þá stendur jafn vel til að byggja við safnaðarheimili kirkjunnar, sem er orðið allt of lítið. Komin er grunnteikning á viðbyggingu sem stendur til að byggja. Til stendur að byggja við safnaðarheimili kirkjunar eins og sjá má á myndinni.Magnús Hlynur Hreiðarsson Aðsókn að messum kirkjunnar og öðrum viðburðum hefur líka aukist mjög mikið eins og Björn Gíslason, formaður sóknarnefndar þekkir manna best. „Við finnum það að kirkjusókn er betri en hún hefur verið og bara núna tiltekið á milli ára þá hefur fjölgað hér um þúsund manns af þátttakendum í messum”, segir Björn. Og Björn hefur þetta að segja um leitina að nýjum kirkjugarði. „Kirkjugarðurinn, fyrsti hlutinn er 80 ára á þessu ári og síðasti hlutinn, sem við erum með í notkun núna, það er talað um að hann nýtist kannski til fjögurra til fimm ára í viðbót, þannig að það er orðið mjög brýnt að finna nýjan garð og bæjaryfirvöld eru akkúrat að gera það núna fyrir okkur”. Björn Gíslason, formaður sóknarnefndar Selfosskirkju í ræðustól á aðalsafnaðarfundinum.Magnús Hlynur Hreiðarsson Í dag starfa níu starfsmenn við kirkjuna, þó ekki allir í fullu starfi. Að lokum má geta þess að kirkjan fagnar 70 ára afmæli nú í marsmánuði og kirkjukór kirkjunnar á 80 ára afmæli. Heilmikil afmælisdagskrá er því fram undan. Glæsileg afmælisdagskrá verður í gangi í kirkjunni í mars í tilefni af 70 ára afmæli kirkjunnar og 80 ára afmæli kirkjukórsins.Magnús Hlynur Hreiðarsson Heimasíða Selfosskirkju
Árborg Þjóðkirkjan Kirkjugarðar Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira