Kvörtuðu yfir of miklum snjó á Vetrarólympíuleikunum Sindri Sverrisson skrifar 23. febrúar 2026 08:03 Reece Howden lenti á eftir Federico Tomasoni sem endaði svo á að vinna silfur í greininni. Ítalir fengu gull og silfur en bronsið fór til Sviss. Getty/David Ramos Kanadamenn kenndu veðrinu um að hafa ekki náð meiri árangri í skíðaati á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu, jafnvel þó að allir keppendur kepptu í sama veðri.
Grein á vef kanadíska ólympíusambandsins hefur vakið athygli en í fyrirsögn segir að „snjóstormur hafi hindrað metnað“ kanadíska skíðafimiliðsins. Keppt er í fjögurra manna riðlum í skíðaatinu og komast tveir áfram hverju sinni, þar til fjórir standa eftir í úrslitum. Reece Howden og Kevin Drury komust lengst Kanadabúa en féllu úr keppni í 16-manna úrslitum eftir að hafa endað neðstir í sínum riðlum. Ættum ekki að keppa við þessar aðstæður „Það er virkilega ömurlegt að ég sé búinn að æfa í fjögur ár og þetta sé það sem við fáum að keppa í,“ sagði Howden á vef kanadíska sambandsins, hundóánægður með snjókomuna. Hann var þó ekki með neina sérstaka lausn á því hvað gera hefði átt í staðinn en keppnin fór fram á næstsíðasta degi leikanna. „Það má segja að þetta sé bara móðir náttúra, og jú, þetta er bara móðir náttúra. En mér finnst að við ættum ekki að vera að keppa við þessar aðstæður, bara punktur,“ sagði Howden. Canadian ski cross star Reece Howden rips Olympic organizers over race conditions after early exit. Photos by @SKPhotography https://t.co/KVGcekkmSr— Neil Davidson (@NeilMDavidson) February 21, 2026 Hinn 37 ára gamli Kevin Drury var álíka svekktur en hann var að taka þátt í sínum þriðju og síðustu Ólympíuleikum. Hann náði best fjórða sæti í PyeongChang 2018. „Ef þeir vildu setja upp sýningu, sem þeir segjast alltaf vilja gera, þá er þetta ekki sýningin,“ sagði Drury. „Ég var í raun farinn að ná tökum á þessari braut og var virkilega spenntur. Ég náði ræsingunni, sennilega þeirri bestu sem ég hef náð allan þann tíma sem við höfum verið hér,“ sagði Drury.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Sjá meira