Vatnsból hefðu verið í hættu ef vindáttin hefði verið önnur Atli Ísleifsson skrifar 23. febrúar 2026 08:02 Mestur bruninn varð við suðvesturhorn Elliðavatns í gær og í átt að Heiðmörk en þar tókst slökkviliði að ráða niðurlögum eldsins á áttunda tímanum í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm Vatnsból höfuðborgarbúa hefðu verið í hættu vegna sinueldsins við Elliðavatn ef vindáttin hefði verði önnur í gær. Vatnsbólið er að finna ekki langt frá svæðinu sem brann og geta brunar sem þessi mengað þau.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum. Þar er haft eftir Brynju Ragnarsdóttur, forstöðukonu Vatnsmiðla hjá Veitum að svona atburðir séu grafalvarlegir. Mestur bruninn varð við suðvesturhorn Elliðavatns í gær og í átt að Heiðmörk en þar tókst slökkviliði að ráða niðurlögum eldsins á áttunda tímanum í gærkvöldi. „Vatnsbólin okkar fyrir allt höfuðborgarsvæðið eru þarna rétt hjá og geta brunar sem þessir mengað þau auðveldlega. Mengunarefni af eldinum geta borist í drykkjarvatnið okkar. Það þarf ekki mikið til, þarna er til dæmis fólk að grilla og öll umgengni skapar hættu á svæðinu, hvort sem það er viljandi eða óviljandi. Bruninn minnir okkur óþægilega mikið á hversu mikilvægt það er að vernda þessa ómissandi innviði og taka það alvarlega,“ segir Brynja. Hún segir að í raun hafi það verið heppni að vindáttin hafi verið eins og hún var. „Við viljum ekki reka okkur á heppni. Sinubruninn teygði sig í átt að vatnsbólum Veitna en það skapaðist sem betur fer ekki raunveruleg hætta. Veitur munu áfram skoða með hvaða hætti vörnum verði best komið fyrir við vatnsbólin til þess að auka áfallaþol vatnsbólanna,“ segir Brynja. Sinueldar eru ekki bara alvarlegir einir og sér heldur er umferðin sem þeir skapa einnig hættuleg. „Öll umgengni skapar áhættu og slökkviliðið er að sjálfsögðu meðvitað um það og noti til að mynda eingöngu hreint vatn til að slökkva eldinn.“
Vatnsból Gróðureldar Gróðureldar á Íslandi Heilbrigðiseftirlit Vatn Reykjavík Heiðmörk Gróðureldar í Heiðmörk Vatnsvernd í Heiðmörk Tengdar fréttir Reykur sást á flugvallarsvæðinu Minni háttar sinueldur kviknaði á Reykjavíkurflugvelli á ellefta tímanum og sást reykur stíga upp frá flugvallarsvæðinu. Búið er að slökkva eldinn en minnst fjórir sinueldar hafa komið upp á höfuðborgarsvæðinu á innan við sólarhring. 22. febrúar 2026 11:01 Sinueldur við Elliðavatn Sinueldur kviknaði við suðvesturhorn Elliðavatns í Reykjavík rétt eftir klukkan þrjú í dag. Slökkviliðið réði niðurlögum eldsins um sjöleytið. 22. febrúar 2026 15:39 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Sjá meira
Reykur sást á flugvallarsvæðinu Minni háttar sinueldur kviknaði á Reykjavíkurflugvelli á ellefta tímanum og sást reykur stíga upp frá flugvallarsvæðinu. Búið er að slökkva eldinn en minnst fjórir sinueldar hafa komið upp á höfuðborgarsvæðinu á innan við sólarhring. 22. febrúar 2026 11:01
Sinueldur við Elliðavatn Sinueldur kviknaði við suðvesturhorn Elliðavatns í Reykjavík rétt eftir klukkan þrjú í dag. Slökkviliðið réði niðurlögum eldsins um sjöleytið. 22. febrúar 2026 15:39