Þess vegna er Svíþjóð að standa sig vel Eyþór Eðvarðsson skrifar 23. febrúar 2026 13:32 Svíþjóð er meðal þeirra ríkja sem hafa náð miklum árangri í loftslagsmálum á síðustu áratugum. Árið 1990 nam losun gróðurhúsalofttegunda um 82,5 milljónum tonna CO₂-ígilda en er í dag um 44 milljónir tonna. Tölurnar miðast við hefðbundið losunarbókhald án landnotkunar (LULUCF), en sænsk skógrækt bindur umtalsvert magn kolefnis og landgeirinn er því nettó bindandi. Þetta jafngildir um 47% samdrætti á sama tíma og hagkerfið hefur vaxið og lífskjör batnað. Á Íslandi hefur þróunin verið önnur. Hér hefur losun ekki dregist saman heldur aukist um 6% frá 1990 og er nú um 12 milljónir tonna CO₂-ígilda þegar landnotkun er talin með. Landnotkun er stór nettó losunarþáttur og því eitt af meginviðfangsefnum íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum. Heildarlosun Íslands er rúmlega fjórðungur af losun Svíþjóðar, þrátt fyrir að Svíar séu um 27 sinnum fjölmennari og hafi á sama tíma dregið verulega úr losun. Um 99% raforku Svíþjóðar er framleidd án jarðefnaeldsneytis, líkt og á Íslandi. Munurinn felst hins vegar í því að Svíar hafa tengt orkuna við kerfisbundna stefnu um orkuskipti. Þannig hefur náðst mikill samdráttur í losun. Grunnurinn lagður snemma og skattkerfið nýtt til að stýra markaðnum Svíþjóð hóf skipulagðar loftslagsaðgerðir fyrr en flestar þjóðir. Árið 1991 var kolefnisskattur innleiddur, einn sá fyrsti í heiminum. Hann var hluti af heildstæðri skattkerfisbreytingu þar sem tekjuskattar voru lækkaðir og skattbyrði færð yfir á neyslu, mengun og losun gróðurhúsalofttegunda. Markmiðið var skýrt: að láta kostnað losunar endurspeglast í verði og hafa þannig áhrif á hegðun einstaklinga og fyrirtækja. Kolefnisskatturinn var lagður á jarðefnaeldsneyti í samgöngum, húshitun og hluta iðnaðar. Hann var innleiddur stigvaxandi og með tímabundnum undanþágum þar sem samkeppnishæfni var í húfi. Þannig fengu heimili og fyrirtæki svigrúm til að aðlagast. Með tímanum varð kolefniskatturinn burðarás orkuskipta í hagkerfinu. ETS-kerfið, sem tók gildi árið 2005, styrkti sérstaklega orkuskipti í losunarfrekum iðnaði. Kröfur byggingageirans ýta undir nýsköpun Þróun sænska byggingageirans hefur verið markviss. Þegar kolefnisskatturinn gerði olíukyndingu óhagkvæma hófst hraður samdráttur og á um tveimur áratugum hvarf jarðefnaeldsneyti nánast úr húshitun. Samhliða voru byggingarkröfur hertar og orkunýtni stórbætt. Ný hús í Svíþjóð eru almennt hönnuð til að nota mun minni orku til húshitunar en sambærileg hús á Íslandi. Frá árinu 2022 hefur verið skylt að gera loftslagsuppgjör fyrir nýbyggingar þar sem innbyggð losun, frá framleiðslu byggingarefna á borð við steypu og stál, er reiknuð og skráð. Á næstu árum verða sett hámarkslosunarmörk á byggingar. Með þessu er losun gerð sýnileg og mælanleg og markaðurinn knúinn til að þróa lausnir með lægra kolefnisspori. Lágkolefnissteypa og timburbyggingar eru þannig að verða hluti af nýjum staðli, studd af opinberum innkaupum sem skapa raunverulegan markað fyrir loftslagsvænar lausnir. Samstarf ríkis og iðnaðar um þróun þungaiðnaðar HYBRIT verkefnið (Hydrogen Breakthrough Ironmaking Technology) er eitt skýrasta dæmið um kerfisbundna umbreytingu í þungaiðnaðinum í Svíþjóð. Verkefnið miðar að því að nota vetni í stað kola við framleiðslu járns og gera þannig stálframleiðslu nær kolefnislausa. Markmiðið er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um allt að 90-95%. Verkefnið var frumkvæði iðnaðarins en ríkið studdi uppbygginguna með stöðugu regluverki, þróunarstyrkjum og langtímasýn sem minnkaði fjárfestingaráhættu á fyrstu stigum. Járn- og stálframleiðsla er stærsti einstaki losunarþáttur innan iðnaðar í Svíþjóð og hefur á síðustu árum staðið fyrir um 10-12% af heildarlosun landsins. Með innleiðingu HYBRIT gæti Svíþjóð á komandi árum náð einum stærsta einstaka samdrætti í losun innan þungaiðnaðar í Evrópu. Innviðauppbygging nauðsynleg forsenda árangurs Ísland hefur verið með hreina orku í áratugi en losunin er ekki að dragast saman. Ísland framleiðir mikla græna orku en hún hefur aðeins að takmörkuðu leyti verið nýtt til að draga úr losun utan raforkugeirans, að undanskilinni rafvæðingu bílaflotans. Ástæðan er ekki orkuskortur heldur skortur á stefnumótandi forgangsröðun og nægri flutnings- og dreifigetu. Það hamlar uppbyggingu hleðsluinnviða, landrafmagns í höfnum, rafvæðingu iðnaðar og öðrum orkuskiptum. Í Svíþjóð og Danmörku er uppbygging raforkuneta skilgreind sem hluti af loftslagsstefnu, ekki sem tæknilegt aukaverkefni. Fjárfesting í öflugum innviðum er ekki kostnaður sem má fresta. Þeir eru forsenda þeirra umbreytinga sem þurfa að verða. Kjarni málsins Loftslagsstefna Svíþjóðar hefur ekki aðeins dregið úr losun heldur styrkt samkeppnishæfni landsins, skapað ný útflutningstækifæri og sett sænsk fyrirtæki í forystu á ört vaxandi mörkuðum fyrir vörur og lausnir með lágt kolefnisspor. Reynsla Svíþjóðar sýnir að árangur næst þegar stjórnvöld hafa skýra sýn á það hvernig hagkerfi framtíðarinnar eigi að þróast, verðleggja losun, byggja upp innviði, efla nýsköpun og forgangsraða hreinni orku þannig að hún ryðji jarðefnaeldsneytinu út úr hagkerfinu. Við getum lært mikið af frændum okkar í Svíþjóð m.a. að þetta er hægt. Spurningin er hvort við ætlum að gera það. Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 s em berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að takast á við loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyþór Eðvarðsson Loftslagsmál Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar