„Hverju eru þau að leyna? Hvað hafa þau að fela?“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. febrúar 2026 20:28 Diljá Mist og Sigmar Guðmunds tókust á í kvöldfréttum Sýnar. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd spyr hvað ríkisstjórnin hafi að fela þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslu vegna ESB og spyr hvort nafnlausir heimildarmenn í Brussel muni einir fá að vita hvenær hún fari fram. Þingflokksformaður Viðreisnar segir enga leyndarhyggju í gangi, þjóðaratkvæðagreiðslan verði tekin fyrir á þingi á næstunni.
Tilefnið er frétt Politico sem birtist í dag þar sem segir að möguleiki sé á þvi að þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður um aðild að Evrópusambandinu gæti verið haldin strax í ágúst á þessu ári. Hafði blaðið það eftir tveimur ónefndum heimildarmönnum sínum sem það segir þekkja til undirbúnings fyrir aðildarviðræður Íslands. Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmar Guðmundsson þingflokksformaður Viðreisnar ræddu málið í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Fyrr í dag hafði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagt í samtali við Vísi að enn væri ekkert ákveðið um hvenær þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram. Segir ESB beita Ísland þrýstingi „Mig langar til að benda á að þetta er í annað skiptið sem einhver svona nafnlaus Brussel heimild beitir íslensk stjórnvöld einhverskonar þrýstingi og þau virðast fara undan í flæmingi, svara hvorki af né á og ég velti fyrir mér hverju eru þau að leyna? Hvað hafa þau að fela? Getum við ekki bara fengið að vita þetta? Sigmar getur ef til vill svarað því,“ sagði Diljá Mist meðal annars í kvöldfréttum. Sagði hún ríða á að hafið yrði samráð við þingið og utanríkismálanefnd vegna málsins og benti á að stutt væri eftir af þingi. Sigmar sagði í kvöldfréttum að staðan í alþjóðamálum væri á fleygiferð, nefndi ásælni Trump í Grænland, innrás Rússa í Úkraínu og benti meðal annars á að Danir hefðu aukið varnarsamstarf sitt við ESB. „Ég meina þetta er bara allt saman á fleygiferð og við erum að vonast til þess að það verði hægt að taka upplýsta ákvörðun um þetta og að þjóðin fái svo á endanum að ráða þessu. En þetta getur ekki verið sama umræða og var hérna árið 2009 eða 2013, það er ekkert nýtt við það að það sé talað um þjóðaratkvæðagreiðslu með þessum hætti, Sjálfstæðisflokkurinn gerði það fyrir kosningarnar 2013, þaðan er reyndar hugmyndin fengin.“ Segir fréttamiðla vinna sína vinnu „Ef asinn er svona mikill og ástæðurnar svona ríkar, fáum við þá ekki bara að vita það hvenær af þessu verður og um hvað eigi að spyrja, á ekki að upplýsa þingið og þar með talið utanríkismálanefnd um gang mála, eða bara nafnlausa heimildarmenn í Brussel?“ svaraði Diljá þá að bragði. Sagði Sigmar í kvöldfréttum að í þessu máli væru fréttamiðlar einungis að vinna sína vinnu. Þingmálið væri ekki tilbúið en muni koma fram á næstunni. „Það er ekkert óeðlilegt í gangi við það að fjölmiðlar fjalli um þetta, það liggur fyrir í þessari frétt að af hálfu Evrópusambandsins er mikill vilji til þess að stækka og þétta raðirnar, það er mikill vilji hjá Evrópusambandinu að fá Ísland inn, fá Noreg inn og það eru líka ríki eins og Kanada, Suður-Kórea, Japan sem eru í auknu samstarfi við Evrópusambandið á allskonar grundvelli, þetta er bara allt á fleygiferð og við Íslendingar eigum ekki að láta mála okkur út í horn.“ Diljá benti þá á að meirihluti þjóðarinnar hefði ekki viljað setja Evrópumál á dagskrá í síðustu kosningum. Þar með taldir væru kjósendur Flokks fólksins. „Mikilvægast finnst mér að þessi ríkisstjórn og stjórnarliðar komi heiðarlega fram og upplýsi okkur, ekki bara út í Brussel, um það hvað um er að vera og ég skil ekki þessa leyndarhyggju, ég hreinlega skil hana ekki.“ Sagði þá Sigmar að það væri af og frá að þarna væri á ferðinni leyndarhyggja. Þingmálið kemur þegar það kemur og svaraði Diljá þá að bragði: „Kemur þegar það kemur, ja það er nú ekkert gríðarlega mikið eftir af þessu þingi til þess að fjalla um þetta gríðarlega stóra mál, þið hljótið að þurfa að óska eftir samningsumboði, upplýsa okkur um samningsmarkmið, varla eruð þið að biðja bara um óútfylltan tékka, umboð án erindis?“ Sagði Sigmar það þá vera áhugavert að að fólkið sem tali um að það sé ekkert til að semja um sé það sama og rukki líka alltaf um samningsmarkmið. Hljóð og mynd fari ekki saman. Spurði Diljá hann þá að nýju hvenær ríkisstjórnin hyggist halda þessa atkvæðagreiðslu? „Núna má ég aðeins tala: Mér finnst þetta ósköp einfaldlega vera þannig að öll þjóðin hlýtur að þurfa að fá að leggja mat á það: Bíddu viljum við tilheyra Evrópu, lýðræði, mannréttindi og öðru slíku eða viljum við vera einhver leiksoppur í valdatafli stórvelda og hafa ekkert um örlög okkar að segja? Þetta eru í raun grundvallaratriði sem tekist er á um í þessu máli,“ svaraði Sigmar.
Evrópusambandið Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira