Skjárinn sem stal æskunni Jóhann Ingi Óskarsson skrifar 25. febrúar 2026 09:00 Farsímanotkun barna og áhrif samfélagsmiðla á þroska þeirra liggur mér verulega á hjarta. Sem tveggja barna faðir hef ég sjálfur upplifað hvernig tæknin getur smám saman tekið meira pláss en maður gerir sér grein fyrir í fyrstu. Það sem byrjar sem saklaus leið til að fá smá „frið“ að rétta barni iPad í hendurnar getur þróast yfir í mynstrið þar sem skjárinn verður aðalafþreying barnsins. Ég sá þetta gerast á mínu eigin heimili. Leikur með kubba, dúkkur og ímyndunarafl vék fyrir stanslausri skjánotkun. Skapsveiflur jukust, þolinmæði minnkaði og athyglin beindist sífellt meira að tækinu en fólkinu í kring. Þegar við ákváðum að taka skýra stefnu og takmarka og í raun banna samfélagsmiðla og óþarfa skjánotkun sáum við breytingar á örfáum dögum. Við „fengum barnið okkar aftur“. Þetta var áminning um hversu djúp áhrif lítið tæki getur haft á þroska og hegðun barns. Samfélagsmiðlar og andleg heilsa barna Rannsóknir síðustu ára hafa varpað æ skýrara ljósi á tengsl samfélagsmiðlanotkunar og andlegrar heilsu barna og unglinga. Í skýrslu frá U.S. Department of Health & Human Services og yfirlýsingu frá embætti landlæknis Bandaríkjanna (Surgeon General) er bent á að aukin notkun samfélagsmiðla tengist aukinni hættu á kvíða, þunglyndi, einmanaleika og lakari sjálfsmynd meðal ungs fólks. Sérstaklega er bent á að heilinn á unglingsárum sé enn í mótun og því viðkvæmari fyrir stöðugu áreiti, samanburði og svokölluðu „dópamín-flæði“ sem fylgir endalausum tilkynningum, „lækum“ og stuttum myndböndum. Sérfræðingar hjá Johns Hopkins Medicine benda einnig á að of mikil notkun samfélagsmiðla geti haft áhrif á svefn, sjálfsmynd og félagsfærni barna og unglinga. Þeir leggja áherslu á að ekki sé aðeins um magn notkunar að ræða, heldur einnig eðli innihaldsins og hversu miklu eftirliti og leiðsögn fylgir frá foreldrum. Samfélagsmiðlar eins og TikTok og Instagram, auk netleikja á borð við Roblox, eru hannaðir til að halda athygli notenda eins lengi og mögulegt er. Þetta eru ekki hlutlaus verkfæri þau eru byggð á viðskiptamódeli þar sem athygli barnsins er varan. Í þeirri baráttu standa foreldrar oft höllum fæti. Við fullorðna fólkið, með fullþroskaða heilastarfsemi, finnum sjálf hversu erfitt getur verið að leggja frá sér símann. Þá hlýtur spurningin að vera: Hver eru langtímaáhrifin á heila barna sem eru enn í mótun? Sakleysi, leikur og þroski Barnæska á að einkennast af leik, sköpun, hreyfingu og samskiptum augliti til auglitis. Í frjálsum leik þjálfa börn ímyndunarafl sitt, lausnamiðaða hugsun, tilfinningastjórn og félagsfærni. Þegar skjárinn tekur yfir minnkar rýmið fyrir þessa mikilvægu þætti. Þetta snýst ekki um að hafna tækni alfarið. Tækni er hluti af nútímasamfélagi og mun áfram gegna mikilvægu hlutverki í lífi barna okkar. Spurningin er hins vegar: Á hvaða aldri, í hvaða magni og undir hvaða leiðsögn? Spjaldtölvur í skólum – nauðsyn eða ofnotkun? Í mörgum grunnskólum í dag, þar á meðal í Vestmannaeyjum, eru spjaldtölvur orðnar fastur hluti af kennslu. Röksemdin er gjarnan sú að börn þurfi að læra á þá tækni sem samfélagið byggir á. Það er vissulega mikilvægt að börn tileinki sér stafræna færni. Hins vegar má velta fyrir sér hvort slíkt krefjist stöðugs aðgengis að persónulegum snjalltækjum frá unga aldri. Flest okkar lærðu á snjallsíma og spjaldtölvur án formlegrar kennslu einfaldlega vegna þess að börn og unglingar tileinka sér nýja tækni hratt og af eðlisávísun. Á yngri árum ætti áherslan fremur að vera á grunnfærni: lestur, skrift, talnaskilning, félagsfærni og skapandi leik. Handskrift, bóklestur og verkleg vinna krefjast annars konar einbeitingar og hugrænnar úrvinnslu en snertiskjárinn. Þessi færni leggur grunn að dýpri skilningi og sjálfstæðri hugsun síðar meir. Ábyrgð foreldra og samfélags Við sem foreldrar stöndum frammi fyrir erfiðri stöðu. Það er óþægilegt að setja mörk þegar börn mótmæla, verða reið eða upplifa að þau standi utan hópsins. En foreldrahlutverkið snýst ekki um vinsældir það snýst um ábyrgð. Skýr mörk, samvera án skjáa og virk leiðsögn skipta sköpum. Börn þurfa ekki aðeins aðgang að tækni þau þurfa fyrirmyndir sem sýna þeim hvernig á að nota hana meðvitað og í hófi. Það krefst samtals, samræmis og hugrekkis. En þetta á ekki að vera barátta hvers heimilis fyrir sig. Foreldrar finna margir fyrir þrýstingi að vilja ekki vera „strangasta“ foreldrið. Þegar við stöndum ein er auðvelt að gefa eftir. Þegar við stöndum saman breytist staðan. Samfélagið setur þegar sameiginleg viðmið þegar kemur að börnum. Við sammælumst um útivistartíma. Við setjum reglur um öryggi. Við grípum inn í þegar velferð barna er annars vegar. Það gerum við vegna þess að börn eiga rétt á vernd og leiðsögn. Stafrænn heimur barna er orðinn jafn raunverulegur og sá líkamlegi. Því er eðlilegt að við spyrjum: Eigum við ekki líka að hafa sameiginleg viðmið Þegar samfélag stendur saman Kannski er lausnin einfaldari en við höldum. Að standa saman. Að ræða málin af yfirvegun. Að móta sameiginleg viðmið. Ég tel að Vestmannaeyjabær geti, í samstarfi við foreldra, skólasamfélagið og fagfólk, lagt grunn að skýrum og skynsamlegum viðmiðum um skjánotkun og aðgengi barna að samfélagsmiðlum. Ekki sem boð og bönn heldur sem sameiginleg leiðarljós sem styðja foreldra og skapa jafnræði fyrir börnin okkar. Mikilvægt væri að svona vinna kæmi ekki sem valdboð að ofan frá sveitarfélagi en sveitarfélagið gæti sannarlega haft frumkvæði að samtali við foreldra um þetta atriði og séð hvert það getur leitt okkur. Þegar samfélag ákveður að forgangsraða börnum, þá breytist menningin. Spurningin er ekki hvort við getum gert eitthvað. Heldur hvort við ætlum að gera það. Höfundur er frambjóðandi Miðflokksins í Vestmannaeyjum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skóla- og menntamál Tækni Miðflokkurinn Mest lesið Skiptir máli hvað við kjósum í sveitarstjórnakosningunum? Sunna G. Sigurðardóttir Skoðun Sóknin í efri byggðum Kópavogs Leifur Andri Leifsson Skoðun Saman í félagi, Samfélagi Guðrún Elísa Sævarsdóttir Skoðun Taka þarf á gjörbreyttum aðstæðum í leikskólum Inga Þóra Þóroddssdóttir Skoðun Börnin, kennararnir og ábyrgðin Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Til fréttastofu RÚV Þórður Magnússon Skoðun Í framboði til borgarstjórnar með söng innflytjandans í hjarta Tristan Gribbin Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sóknin í efri byggðum Kópavogs Leifur Andri Leifsson skrifar Skoðun Taka þarf á gjörbreyttum aðstæðum í leikskólum Inga Þóra Þóroddssdóttir skrifar Skoðun Skiptir máli hvað við kjósum í sveitarstjórnakosningunum? Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Saman í félagi, Samfélagi Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar Skoðun Borgin er ekki að drukkna í einkabílum Þórir Garðarson skrifar Skoðun Börnin, kennararnir og ábyrgðin Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Þegar endurtekning verður að „sannleika“ Anna Sigrún Jóhönnudóttir skrifar Skoðun 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts til almannaheillafélaga í Noregi Tómas Torfason skrifar Skoðun Gerum betur í Mosfellsbæ Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Af hverju Viðreisn? Berglind Robertson Grétarsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér hærri álögur í Reykjavík? Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Húsnæði á ekki að vera happdrætti fyrir ungt fólk Lilja D. Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Þegar framtíðin er seld á útsölu Anna Kristín Jensdóttir skrifar Skoðun Þið eruð kosin til að vinna saman, ekki forðast hvort annað Frosti Heimisson skrifar Skoðun Að fljóta sofandi að feigðarósi? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Þegar velferð aldraðra verður fasteignaverkefni Védís Einarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir skrifar Skoðun Banvænt ósamræmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er Vestfjarðavegur (60) í gegnum Dalina afgangsstærð? skrifar Skoðun Hvítt fyrir börn sem biðja um frið Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Farið á bak við þing og þjóð? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Mannréttindaiðnaðurinn Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nei takk, alls ekki kennari! Simon Cramer Larsen skrifar Skoðun Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson skrifar Skoðun Landeyjahöfn - Ný leið Bernharð Stefán Bernharðsson skrifar Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir skrifar Skoðun Setjum aukinn kraft í óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður er heimili okkar allra Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Sjá meira
Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun
Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir Skoðun
Skoðun 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts til almannaheillafélaga í Noregi Tómas Torfason skrifar
Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir skrifar
Skoðun Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Setjum aukinn kraft í óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun
Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir Skoðun