Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Kjartan Kjartansson skrifar 25. febrúar 2026 07:48 Landtökubyggð gyðinga í Efrat á Vesturbakkanum þar sem bandaríska sendiráðið ætlar að bjóða upp á ræðismannaþjónustu á föstudag. Vísir/EPA Bandaríska sendiráðið í Ísrael segist ætla að byrja að bjóða upp á ræðismannaþjónustu í landtökubyggð gyðinga á Vesturbakkanum í fyrsta skipti. Meirihluti ríkja heims telur landtökubyggðirnar ólöglegar.
Boðið verður upp á vegabréfsþjónustu fyrir bandaríska ríkisborgara í landtökubyggðinni Efrat á Vesturbakkanum á föstudaginn samkvæmt yfirlýsingu bandaríska sendiráðsins á samfélagsmiðlinum X, allsherjarforrtinu. Á næstu mánuðum segir sendiráðið að stefnan sé að bjóða sambærilega þjónustu í Beitar Illit, annarri landtökubyggð gyðinga. Markmiðið segir það að reyna að ná til „allra Bandaríkjamanna“. Bandaríska sendiráðið hefur áður boðið upp á ræðismannaþjónustu í Ramallah og fleiri palestínskum byggðum á Vesturbakkanum. Ísraelska utanríkisráðuneytið fagnaði áformunum og sagði þau söguleg. AP-fréttastofan segir að fulltrúa palestínskra yfirvalda hafi enn ekki brugðist við tíðindunum. Ísraelar hernámu Vesturbakkann og austurhluta Jerúsalem í sex daga stríðinu svonefnda árið 1967. Rúmlega sjö hundruð þúsund Ísraelar búa nú á hernumdu svæðunum sem Palestínumenn gera tilkall til að verði hluti af framtíðarríki þeirra. Afgerandi meirihluti alþjóðsamfélagsins telur landtökubyggðir gyðinga á hernumdu svæðunum ólöglegar og hindrun í vegi friðar fyrir botni Miðjarðarhafs. Á fyrra kjörtímabili Donalds Trump sem Bandaríkjaforseta færði hann bandaríska sendiráðið frá Tel Aviv til Jerúsalem. Ísraelar líta sjálfir á Jerúsalem sem höfuðborg sína en fæst ríki heims viðurkenna hana sem slíka. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun þar sem skorað var á Bandaríkjastjórn að draga þá ákvörðun til baka.
Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira