Háskólamenntun sem undirstaða hagvaxtar Sigrún Ólafsdóttir og Kári Kristinsson skrifa 25. febrúar 2026 19:30 Á seinustu árum hefur hagvöxtur á mann verið nálægt núlli á Íslandi. Þetta er töluvert verri staða en í þeim löndum sem við viljum gjarnan bera okkur saman við. Í umræðu um hagvöxt á Íslandi er iðulega horft til stóriðju og náttúruauðlinda. Miklu sjaldnar er rætt um þann þátt sem hagfræðingar hafa ítrekað sýnt fram á að skipti sköpum fyrir langtímahagvöxt: háskóla. Fyrir lítið og opið hagkerfi eins og Ísland er sterkt háskólakerfi ekki munaður heldur forsenda aukinnar framleiðni og þar með betri lífskjara. Kjarni hagvaxtar er einfaldur: að hver vinnustund skili meiri verðmætasköpun en áður. Sú aukning verður til þegar þekking og hæfni vaxa. Þar gegnir menntun, sérstaklega háskólamenntun lykilhlutverki Hún eykur sérhæfða fagþekkingu, greiningargetu og hæfni til að takast á við flókin verkefni. Ávinningurinn er þó ekki aðeins persónulegur, því sterkari mannauður þýðir starfsfólk sem getur innleitt nýja tækni, bætt skipulag og þróað vörur og þjónustu með meiri virðisauka. Þannig skapast forsendur fyrir aukinni framleiðni og hagvöxt til framtíðar. Sambandið milli menntunar og hagvaxtar birtist einnig á þjóðhagsstigi. Fjöldi rannsókna hefur sýnt að hagvöxtur í löndum sem auka hlutfall háskólamenntaðra vex hraðar. Það gerist meðal annars vegna þess að íbúar viðkomandi landa eru betur í stakk búin til að taka upp nýjar tæknilausnir og færa sig yfir í atvinnugreinar með meiri virðisauka. Hagfræðingurinn Joel Mokyr, sem hlaut Nóbelsverðlaunin í hagfræði árið 2025, hefur einmitt lagt sérstaka áherslu á hlutverk þekkingarsamfélaga og stofnana í að viðhalda og miðla tæknilegri og vísindalegri þekkingu. Fyrir Ísland, þar sem launakostnaður er hár og samkeppni við láglaunalönd takmörkuð, felst raunhæfasta leiðin til aukinnar velmegunar í því að styrkja þekkingargrunninn og þar með framleiðni hagkerfisins. Háskólar stuðla þó ekki aðeins að vexti með því að mennta starfsfólk. Þeir skapa einnig nýja starfsemi. OECD hefur ítrekað bent á að rannsóknir við háskóla séu ein mikilvægasta uppspretta nýsköpunar, sprotafyrirtækja og tækniframfara. Margar af þeim atvinnugreinum sem knýja hagvöxt í þróuðum ríkjum eiga rætur sínar í háskólasamfélaginu, þar sem rannsóknir breytast í vörur, þjónustu og ný fyrirtæki. Þetta sést skýrt hér á landi. Fyrirtæki á borð við deCODE, Alvotech, Kerecis, ORF Líftækni, Össur, Coripharma og CCP Games, ásamt fjölda annarra, eru byggð á þekkingu sem á rætur sínar í rannsóknum og háskólamenntun, annað hvort beint í gegnum stofnendur sína eða í gegnum sérhæft menntað starfsfólk sem þróar vörurnar og tæknina áfram. Spurningin fyrir Ísland er því ekki hvort við höfum efni á öflugum háskólum heldur hvort við höfum efni á að vera án þeirra. Í hagkerfi þar sem framtíðarvöxtur ræðst sífellt meira af þekkingu og nýsköpun er fjárfesting í háskólum einfaldlega fjárfesting í aukinni framleiðni. Til að tryggja að hæfileikaríkt fólk sjái framtíð sína hér á landi þarf stefna stjórnvalda að vera skýr: fjármagna þarf háskóla að sama marki og nágrannaþjóðir okkar gera. Samfara því er mikilvægt að efla tengsl rannsókna og atvinnulífs. Hagvöxtur er ekki tilviljun. Hann verður til þar sem þekking er ræktuð og nýtt. Þar gegna háskólar lykilhlutverki. Kári Kristinsson, prófessor í viðskiptafræði og stjórnarmaður í Félagi prófessora við ríkisháskóla. Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði og formaður Félags prófessora við ríkisháskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Háskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar