Er uppruni orðinn að saknæmi? Jasmina Vajzović Crnac skrifar 1. mars 2026 16:30 Undanfarið hafa stjórnvöld lagt aukna áherslu á að upplýsingar um erlendan uppruna sakborninga komi oftar fram í opinberri miðlun lögreglu, og slíkar tilkynningar hafa verið áberandi síðustu mánuði, ekki síst í fjölmiðlaumfjöllun. Ætla má að markmiðið sé að undirstrika gagnsæi og gefa til kynna að stjórnvöld hafi stjórn á landamærum og innflytjendamálum. Þessi framsetning kann að virðast einföld og pólitískt skilvirk, en þegar hún er metin út frá grundvallarsjónarmiðum réttarríkisins, jafnræðisreglunnar og samfélagslegra afleiðinga blasir við mun flóknari mynd. Í réttarríki er meginreglan skýr, einstaklingar bera ábyrgð á eigin gjörðum. Brot er brot, óháð þjóðerni, trú, kyni eða öðrum persónubundnum einkennum. Þegar ríkisvaldið kýs að leggja sérstaka áherslu á erlendan uppruna í tengslum við einstök sakamál er verið að færa fókusinn frá verknaðinum yfir á einkenni sem eru lagalega óviðkomandi. Uppruni verður hluti af frásögninni um brotið, þótt hann hafi enga sjálfstæða þýðingu fyrir saknæmi. Slík upplýsingagjöf er því ekki hlutlaus heldur mótar hún merkingu og samhengi á þann hátt að hún hefur fyrirsjáanleg félagsleg áhrif. Rannsóknir á sviði félagsfræði og afbrotafræði sýna að kerfisbundin tenging þjóðernis við afbrot í opinberri umræðu eykur líkur á stimplun, staðalímyndun og félagslegri fjarlægð. Athyglin beinist síður að félagslegum skýringarþáttum, svo sem efnahagslegri stöðu, aðgengi að úrræðum eða jaðarsetningu, og í staðinn verður hópurinn sjálfur að viðfangsefni tortryggni. Smám saman festist í sessi einfölduð og tvíhyggjukennd mynd þar sem „við“ og „hinir“ eru aðgreind sem andstæðir pólar. Afleiðingin getur orðið skaðleg þar sem tilteknir hópar eru taldir ógna samfélagslegri reglu í heild, jafnvel án traustrar tölfræðilegrar heimildar. Þegar þjóðerni er gert að aðalatriði í fyrirsögnum um gæsluvarðhald eða afbrot, án ítarlegrar greiningar á samhengi og skýringarþáttum, festist í sessi sú hugmynd að uppruni sé sjálfstæð áhættubreytan - þótt lagalegur og félagslegur veruleiki sé flóknari. Ef markmiðið er raunverulegt gagnsæi og ábyrg stefnumótun eru til faglegri og vandaðri leiðir. Hægt er að birta reglubundnar, samræmdar og heildstæðar tölfræðilegar greiningar á afbrotum, þar sem upplýsingar eru settar fram í samhengi og túlkaðar með fræðilegum fyrirvörum. Slík gögn eiga heima í opinberum skýrslum sem gera ráð fyrir greiningu, samanburði og stefnumótandi úrvinnslu, ekki í einstökum tilkynningum um mál þar sem einstaklingur eða hópur er að njóta sakleysis reglunnar. Að öðrum kosti er hætt við að upplýsingagjöfin verði valbundin og táknræn fremur en kerfisbundin og þekkingar miðuð. Samfélagsleg áhrif stefnu sem er í gangi núna er ekki fræðileg tilgáta heldur áþreifanleg reynsla margra. Á Íslandi býr stór og vaxandi hópur fólks af erlendum uppruna sem tekur virkan þátt í atvinnulífi og samfélagi. Fólk sem vinnur, greiðir skatta og tekur þátt í samfélaginu. Í samtölum mínum við konur, karla og annað fólk af erlendum uppruna, sem veigrar sér við að tjá sig opinberlega af ótta við að vera sakað um að gera lítið úr fordómum eða afneita áskorunum, hef ég ítrekað heyrt lýsingar á því hvernig slík framsetning setur þau í varnarstöðu og eykur aðkast. Þegar erlendur uppruni er ítrekað dreginn fram í tengslum við afbrot dreifist ábyrgðin í vitund almennings frá einstaklingnum yfir á hópinn í heild, þrátt fyrir að hann tengist málinu ekki með neinum hætti. Þetta birtist í tortryggni á vinnustöðum, í skólum barna, í daglegum samskiptum, í lúmskum athugasemdum og stundum í berum fordómum. Um leið þrengist rýmið til málefnalegrar gagnrýni, þar sem andóf gegn aðferðinni er oftar en ekki túlkað sem afneitun á vandanum sjálfum. Nauðsynlegt er að halda tveimur sjónarmiðum skýrt aðgreindum. Annars vegar er bæði réttmætt og brýnt að ræða áskoranir sem kunna að fylgja fólksflutningum og tryggja skilvirka og faglega löggæslu. Hins vegar er varhugavert að gera uppruna að lykilbreytu í opinberri umfjöllun um einstök sakamál eða um einstök afbrot. Sú leið er fremur tjáning táknrænnar hörku en raunverulegrar stefnumótunar, hún gefur til kynna stjórn en leggur lítið til langtímalausna, forvarna eða trausts. Ef við ætlum að standa vörð um öryggi og samheldni verðum við að gera það án þess að fórna jafnræðinu, því ábyrg stjórnvöld mega aldrei rugla saman gagnsæi og jaðarsetningu, og samfélag sem velur stimplun fram yfir réttlæti er að taka skref frá þeim siðferðilega grunni sem það segist verja. Höfundur er stjórnmálafræðingur, samfélagsrýnir og rödd þeirra sem byggja líf á nýjum stað. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jasmina Vajzović Crnac Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Skoðun Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun