Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Birgir Olgeirsson skrifar 2. mars 2026 15:05 Finnbogi Jónasson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra. Í skýrslu er komið inn á hvernig tilkynningum um trúarlega öfgahyggju hefur fjölgað, að sögn Finnboga. vísir/anton brink Hryðjuverkaógn hér á landi er enn talin raunhæf og lögreglan býr yfir upplýsingum um einstaklinga sem taldir hafa vilja eða getu til að fremja alvarleg ofbeldisverk. Þá eru merki um einstaklinga hér á landi sem eru hugsanlega að koma upplýsingum til erlendra leyniþjónusta.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu greiningardeildar embættis ríkislögreglustjóra. Þar segir jafnframt að íslenskt samfélag hafi breyst talsvert á undanförnum árum sem lýsi sér í því að tilkynningum til lögreglu er varðar trúarlega öfgahyggju hefur fjölgað. Hryðjuverkaógnin á Íslandi er fyrst og fremst talin stafa af ofbeldissinnuðum einstaklingum sem eru taldir starfa einir síns liðs eða í litlum laustengdum hópum. Þessir einstaklingar eru sagðir sækja hvatningu í ofbeldisfullan áróður, einkum úr hugmyndafræði pólitískrar öfgahyggju. Nýja skýrslan tekur á fleiri þáttum Greiningardeildin hefur undanfarin ár gefið út áhættumat vegna hryðjuverkaógnar en vilji var til að útvíkka hugtakið og taka á fleiri þáttum sem snúa að innra öryggi Íslands. „Við sjáum að öryggisþjónustur nágrannalanda okkar gefa út skýrslur sem leggja mat á áhættu af njósnum og hryðjuverkum og öryggi æðstu stjórnar landsins.,“ segir Finnbogi Jónasson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningardeildinni, í samtali við Vísi. Ógn af hryðjuverkum er ennþá talin sú sama og síðstliðin tvö ár, eða á stigi þrjú af fimm. Vísir/Vilhelm Í því samhengi megi benda á sambærilegar skýrslur sem finnska forsætisráðuneytið hefur gefið út og valdi greiningardeildin að fara þessa leið til að vekja frekari athygli á þessum málaflokki og efla samtalið við almenning í landinu. Tilkynningum um trúarlega öfgahyggju fjölgað Í skýrslunni er komið inn á hvernig tilkynningum um trúarlega öfgahyggju hefur fjölgað. „Þeim hefur fjölgað þó að þær séu ekki margar,“ tekur Finnbogi fram. Tilkynningar eru þá oftast nær á þá leið að tilkynnendur hafi áhyggjur af einhverju sem þeir sjá í sínu nærumhverfi, einstaklingum sem þeir þekkja til eða hópum sem þeir sjá safnast saman. Búa yfir upplýsingum um hættulega einstaklinga Einnig er eftirtektarvert að lesa að lögreglan búi yfir upplýsingum einstaklinga sem eru hreinlega taldir hættulegir samfélaginu og búi yfir vilja eða getu til að fremja alvarleg ofbeldisverk. Finnbogi svarar aðspurður að lögreglan sé ekki með slíkt fólk undir eftirliti allt árið um kring. „En lögreglan veitir ýmsu eftirtekt. Við sjáum fólk tjá sig með ýmsum hætti á samfélagsmiðlum og þetta eru þá yfirleitt einstaklingar sem eru taldir hafa getuna eða viljann til að gera samfélaginu mein,“ segir Finnbogi. Ólögleg upplýsingaöflun Einnig er fjallað um ólöglega upplýsingaöflun hér á landi en Finnbogi nefnir að merki séu um einstaklinga hér á landi sem eru hugsanlega að koma upplýsingum til erlendra leyniþjónusta, en einnig sé grunur um slíka háttsemi í nágrannaríkjum Íslands. Lögreglan er sögð hafa upplýsingar um einstaklinga sem eru taldir hættulegir samfélaginu.Vísir/Vilhelm Þessi aukna ógn verði vegna ólöglegrar eða óhefðbundinnar upplýsingaöflunar erlendra ríkja, til dæmis Rússa og Kínverja. Þá sé einnig hætta af upplýsingaóreiðu þar sem rangar, villandi eða vísvitandi falskar upplýsingar geti dregið úr trausti almennings til opinberra stofnana, aukið sundrung og gert almenningi erfiðara að taka upplýsta afstöðu. Meðvituð um hættuna Nauðsynlegt sé að byggja upp markvissa forvarnar- og viðbragðsgetu og auka greiningargetu innan lögreglu. Ekki sé síður mikilvægt að hafa skýrar reglur í gildi um vernd upplýsinga innan stjórnkerfisins og hjá fyrirtækjum sem gegna lykilhlutverki í samfélaginu. Finnbogi segir stjórnvöld vera vel meðvituð um hættuna og talsvert hafi verið gert í samfélaginu til að bregðast við þessari ógn, slíkar breytingar taki alltaf sinn tíma. Þá hafi nýlegar breytingar á lögreglulögum og ný stefna dómsmálaráðuneytisins um skipulagða brotastarfsemi mikið að segja. Þá sé vafalaust hægt að gera meira til að auka öryggi landamæranna en það sé stöðug vinna og samstarf við önnur ríki.
Lögreglan Lögreglumál Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira