Með sniglaslím í andlitinu Karl Pétur Jónsson skrifar 2. mars 2026 16:30 Á ferðalögum um stærri borgir en Reykjavík þarf ég gjarnan að koma við í Sephora. Oft með langan innkaupalista frá konunum í lífi mínu, eiginkonu og dætrum. Í Sephora hafa suður-kóreskar snyrtivörur, undir samheitinu K-Beauty, orðið sífellt fyrirferðarmeiri. Það sem vekur athygli er ekki bara sívaxandi hillupláss fyrir K-Beauty. Heldur hvernig vörurnar eru settar fram. Þeim fylgir frásögn sem tengist aldagömlum hefðum Kóreuskagans. Vörurnar eru gjarnan byggðar á framandi hráefnum á borð við ginseng, sjávarþörungum eða sniglaslími. Þegar ég kynnti mér málið kom þrennt í ljós. Að Suður Kórea er nýlega orðin næst stærsti útflytjandi snyrtivara í heiminum á eftir Frakklandi. Að þessi mikli vöxtur í útflutningi snyrtivara er ekki tilviljun, heldur partur af þaulskipulögðu plani sem lagt var upp í lok síðustu aldar. Og að Kóreubúar flétta listilega saman iðnframleiðslu og menningu, nýta mjúku innviðina til að lyfta þeim hörðu. Kóreska bylgjan var ekki tilviljun Á síðustu árum hefur það gerst að suður-kóresk menning hefur flætt yfir heiminn. Vinsælustu popphljómsveitir heimsins eru nú frá Kóreu, Parasite vann Óskarinn, Squid Game var lengi stærsta sjónvarpssería í sögu Netflix. Varla er til svo aum borg í vestan hafs eða austan þar sem ekki er kóreanskur veitingastaður. En þetta var ekki tilviljun. Í kjölfar Asíukreppunnar, seint á tíunda áratugnum, hóf Suður-Kórea að byggja markvisst upp samspil milli menningar, tækni, vörumerkja og útflutnings. Menning varð hluti af verðmætasköpuninni. Stefnan hlaut nafn, Hallyu (Kóreska bylgjan). Menningargeirinn í landinu var markvisst byggður upp á sama tíma og iðnfyrirtækin, Hyundai, KIA, Samsung og LG, nýttu spennu fyrir menningu í markaðssetningu sinni. Stjórnvöld, skapandi greinar og iðnaðarrisar toguðu K-vagninn í sömu átt. Mjúku innviðirnir lyftu þeim hörðu. Kerfisbundið samspil menningar og iðnframleiðslu; kerfisbundið samstarf hins opinbera og einkageirans. Menningin magnaði áhugann og styrkti þannig verðmætasköpun. Tölurnar eru sláandi. Þjóðarframleiðsla á mann (á föstu verðlagi) í Suður Kóreu hefur vaxið um 80% frá 2013. Á sama tíma hefur verið samdráttur í Japan og hér á landi hefur sambærilegur vöxtur verið undir 60%. Mjúkir innviðir – og harður gjaldeyrir Við tölum mikið um innviði á Íslandi, hafnir, brýr og hús. En mjúku innviðirnir – menningin, náttúran, sjálfsmynd þjóðar og sögurnar sem eru sagðar eru það sem gerir þjóðir spennandi. Þessir innviðir sjást verr í bókhaldi en hafnir og brýr, en skila sér í verðmætasköpun. Í grein minni fyrir viku fjallaði ég um hvernig Noregur hefur með skipulögðum hætti byggt upp orðspor sitt í framleiðslu á laxi. Hvernig nokkrum Norðmönnum tókst að sannfæra Japani til að gera grundvallarbreytingu á sushi- og sashimimenningu sinni með því að byrja að nota lax í þessa rétti. Og nú getur Noregur selt laxinn sinn hærra verði en samkeppnisaðilar á sama tíma og landið hefur yfir 40% markaðshlutdeild á heimsvísu. Þegar land verður menningarlega sýnilegt verður auðveldara að selja vörur þess. Neytendur eru tilbúnari að prófa, treysta og jafnvel borga meira. Það myndast jákvæð samsömun í huga markaðarins: „kóreskt“ eða „norskt”fer að hafa jákvæða þýðingu. Séu þeir rétt notaðir, búa mjúkir innviðir til grjóthörð verðmæti. Það sem Ísland á nú þegar Ísland hefur þegar óvenjusterkt menningarfótspor miðað við fólksfjölda. Við erum tæplega 400 þúsund manns, en höfum samt áratugum saman verið sýnileg í tónlist, bókmenntum, kvikmyndum, hönnun og ferðaþjónustu langt umfram það sem eðlilegt mætti teljast. Hráefnin eru til staðar á Íslandi. Það sem vantar er samræming. Við höfum marga sterka aðila, en hver baukar í sínu horni. Fyrirtæki byggja sitt vörumerki. Listafólk byggir sitt. Ferðaþjónustan sína. Útflutningsfyrirtæki sína. Stjórnvöld koma stundum inn með átaksverkefni. Hvað Ísland getur lært af Suður-Kóreu Lærdómurinn er þessi: Þegar menning, vörumerki og útflutningur vinna saman, þá eykst verðmætasköpun. En hvernig? I. Samþætting menningar og iðnaðar. Við verðum að hætta að líta á menningu og atvinnulíf sem andstæður. Hið opinbera og einkageirinn gætu myndað íslenska útgáfu af „K-vagninum“ þar sem menningarlegur sýnileiki er nýttur markvisst til að styðja við útflutning á tækni, matvælum og þjónustu. Ósamræmd nálgun er sóun á tækifærum. II. Sagnamennska sem virðisauki. Við ættum að pakka íslenskum vörum inn í sögur sem skipta máli á heimsvísu. Vel sögð saga er ódýrasta leiðin til að auka eftirspurn. Með því að tengja íslenskan varning við sjálfsmynd okkar og náttúru, sköpum við tilfinningaleg tengsl sem réttlæta hærra verð. III. Frá tilviljunum yfir í kerfisbundna stefnu. Ísland hefur of lengi treyst á heppni. Eldgos, einstaka listamenn eða kvikmyndatökur sem gerast af sjálfsdáðum. Við þurfum að færa okkur yfir í kerfisbundna stefnu þar sem sýnileiki er ekki slys, heldur niðurstaða markvissrar vinnu. IV. Mælanlegur efnahagslegur árangur. Við eigum að setja okkur skýr markmið um hvernig mjúku innviðirnir styðja við útflutning og þjónustu innanlands. Skila grjóthörðum gjaldeyri. Niðurstaða: Útflutningsvélin Ísland Ísland hefur allt til að bera til að verða eitt öflugasta útflutningssamfélag heims miðað við höfðatölu. Við eigum náttúruna, hæfileikana og sögurnar, en okkur skortir samræmingu. Með 400.000 íbúa höfum við alla burði til að vera kvikara og samtengdara hagkerfi en nokkurt annað. Tækifærið liggur í því að tengja ólíka parta í öfluga útflutningsvél sem styrkir sjálfsmynd þjóðarinnar um leið og hún knýr verðmætasköpun. Það sem vantar er pólitískur vilji og efnahagslega hvata til að leiða samtal, gera áætlun og hefjast handa. Hver á að leiða slíkt samtal? Það er spurning sem íslenskir ráðamenn og leiðtogar atvinnulífsins þurfa að svara. Ef við gerum þetta ekki, höldum við áfram að treysta á heppnina á meðan aðrir selja heiminum sniglaslím og eldislax á yfirverði. Höfundur er sérfræðingur í strategískum samskiptum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Karl Pétur Jónsson Mest lesið Hugsum stærra Magnús Lyngdal Magnússon Skoðun Leigufélög eignast fasteignamarkaðinn, fjárfestar eignast Garðabæ Baldur Jezorski Skoðun Í stormi reynir á leiðtogana Óskar Tryggvi Svavarsson Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Liðbólgusjúkdómar – fræðsla skiptir máli Katrín Þórarinsdóttir Skoðun Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson Skoðun Mannauðsvald stjórnar meiru en margir halda Guðjón Heiðar Pálsson, Skoðun Skoðun Skoðun Hugsum stærra Magnús Lyngdal Magnússon skrifar Skoðun Leigufélög eignast fasteignamarkaðinn, fjárfestar eignast Garðabæ Baldur Jezorski skrifar Skoðun Mannauðsvald stjórnar meiru en margir halda skrifar Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Liðbólgusjúkdómar – fræðsla skiptir máli Katrín Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Í stormi reynir á leiðtogana Óskar Tryggvi Svavarsson skrifar Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvers konar samfélag viljum við byggja með gervigreind? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð Stefán Georgsson skrifar Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Sjá meira
Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun