Kynjajafnrétti forsenda þróunar og framgangs Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar 3. mars 2026 07:46 Á undanförnum árum hefur heimsbyggðin orðið vitni að því hvernig réttindi, sem talin voru örugg og óumdeild, eru dregin í efa. Jafnréttisbarátta mætir vaxandi andstöðu víða um heim, vegið er að grundvallarréttindum kvenna og hinsegin fólk verður fyrir auknum ofsóknum. Síðustu misseri höfum við séð hversu brothættar framfarir síðustu áratuga í jafnréttismálum eru. Með einu pennastriki má afnema réttindi sem voru afrakstur áratuga, jafnvel aldalangrar baráttu. Í þeim raunveruleika sem við búum við í dag, á tímum aukinnar skautunar og óstöðugleika, er brýnna en nokkru sinni að standa vörð um jafnrétti og festa það í sessi sem grundvöll framfara og sjálfbærrar þróunar. Baráttan fyrir framgangi jafnréttis og valdefling kvenna er hornsteinn í stefnu íslenskra stjórnvalda, bæði hér heima og í alþjóðlegu samstarfi. Við notum rödd okkar og atkvæði og beitum okkur á vettvangi Sameinuðu þjóðanna – ekki síst með setu okkar í mannréttindaráðinu um þessar mundir – og annarra alþjóðastofnana, til að standa vörð um skuldbindingar ríkja um mannréttindi og jafnrétti. Jafnréttismál eru einnig rauður þráður í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands, enda forsenda framfara og sjálfbærrar þróunar. GRÓ – íslensk þekking í þágu sjálfbærrar þróunar Allt frá því Ísland tók sín fyrstu skref sem framlagsríki í þróunarsamvinnu, undir lok áttunda áratugarins, höfum við lagt áherslu á miðlun þekkingar á sviðum sem lögðu grunninn að þeim lífskjörum sem við búum við í dag. Það er ótrúlegt að hugsa til þess hversu stutt er síðan við sjálf vorum þiggjendur í þróunarsamvinnu, en í ár eru 50 ár frá því Ísland þáði í síðasta sinn slíka aðstoð, árið 1976. GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, sem starfar undir merkjum UNESCO, starfrækir fjóra skóla á sviðum sem skiptu höfuðmáli í okkar eigin þróun til velsældar. Í vetur beinum við kastljósinu að árangrinum af starfi skólanna og því hvernig nemendur hafa getað notað þekkingu sína til góðra verka eftir að heim er komið. Nú er komið að Jafnréttisskóla GRÓ sem er yngstur skólanna, stofnaður 2009, en hinir starfa á sviði jarðhita, landgræðslu og sjávarútvegs. Árlega er um 100 sérfræðingum frá þróunarlöndum boðið hingað til lands til að dýpka þekkingu sína og styrkja færni sem leiðtogar á umræddum sviðum. Frá upphafi hafa hátt í tvö þúsund sérfræðingar frá þróunarlöndum komið hingað til lands til að stunda nám í þessum fjórum skólum. Tæplega 300 þeirra hafa sótt Jafnréttisskóla GRÓ þar sem þau hafa dýpkað þekkingu sína á jafnréttisfræðum, mannréttindum og kynjafræði, auk þess að þróa hagnýt verkefni sem miða að innleiðingu raunverulegra umbóta heima fyrir. Þekking stuðlar að breytingum Sem dæmi má nefna að verkefni nemanda frá Malaví leiddi í ljós að barnahjónabönd væru ein meginorsök brottfalls ungra stúlkna úr námi. Eftir heimkomu var hann leiðandi í réttindabaráttu og í að vekja athygli á vandamálinu, sem leiddi m.a. til þess að lögbundinn hjúskaparaldur var hækkaður í 18 ár. Nemi frá Úkraínu rannsakaði hvernig Rússland beitir kynferðisofbeldi sem stríðsvopni í innrásinni í Úkraínu og hvernig tryggja megi að þeir sem fremja slíka stríðsglæpi sæti ábyrgð. Nemi frá Sri Lanka hefur unnið með dómstólum að þróun verkfæra til að bæta málsmeðferð í málum er varða kynbundið ofbeldi. Og nemi frá Bosníu og Hersegóvínu tók þátt í að koma á fót fyrsta örugga athvarfi landsins fyrir hinsegin einstaklinga. Byggjum réttlátari heim Með markvissum stuðningi við fagfólk á umræddum sviðum eflast möguleikar þeirra til að takast á við áskoranir og stuðla að sjálfbærri þróun. Með því að deila reynslu okkar – af jafnrétti, sjálfbærri nýtingu auðlinda og endurheimt vistkerfa – og styðja við stofnanir í þróunarlöndunum sem starfa á umræddum sviðum leggjum við okkar af mörkum til að byggja réttlátari og betri heim. Ég vil hvetja allt áhugafólk um alþjóðamál, þróunarsamvinnu og mannréttindi til að kynna sér starf Jafnréttisskóla GRÓ og koma til að hlýða á sögur þeirra sem hafa nýtt þekkingu úr náminu til að knýja fram raunverulegar breytingar heima fyrir. Jafnrétti er ekki aðeins markmið í sjálfu sér – það er forsenda framfara. Höfundur er utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar. Viðburðurinn Frá þekkingu til þróunaráhrifa: Aðför að jafnrétti, fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands kl. 12-13.15 í dag, þann 3. mars. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Jafnréttismál Mest lesið Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar