Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Árni Sæberg skrifar 3. mars 2026 11:11 Skjáskot af vef Snjalltækja. Hér má sjá sumar þær vara sem fjallað er um í ákvörðuninni. Snjalltaeki.store ST. Import ehf., sem rekur vefverslunina Snjalltæki.store, hefur verið sektað um tvær milljónir króna fyrir fjölda brota á ýmsum lögum um neytendavernd, meðal annars vegna fullyrðinga um meintan lækningamátt ýmissa vara. Vörurnar voru meðal annars sagðar geta komið í veg fyrir hárlos, losað fólk við appelsínuhúð og linað verki.
Þetta segir í ákvörðun Neytendastofu, sem tekin var þann 19. febrúar en birt í dag. Þar segir að Neytendastofa hafi tilkynnt með bréfi í byrjun september síðastliðins að hún hefði framkvæmt úttekt á þeim viðskiptaháttum sem stundaðir væru á vefsíðunni snjalltaeki.store, sem rekin sé af ST. Import ehf. Stofnunin hafi í kjölfarið greint frá því að niðurstaða úttektarinnar gæfi tilefni til nánari skoðunar á viðskiptaháttum félagsins. Alls kyns fullyrðingar en skortur á upplýsingum Meðal þess sem Neytendastofa hafi kannað hafi verið fullyrðingar um fría sendingu, þrátt fyrir að versla á vefsíðunni fyrir tíu þúsund krónur til þess að fá sendingu án sérstaks gjalds, skort á upplýsingum um úrskurðaraðila sem neytandi geti leitað til, skort á upplýsingagjöf, brot á rétti neytenda til að falla frá samningi, skort á sönnun á fullyrðingum um vörur og skort á því að auglýst verðlækkun væri raunverulega. Engin svör hafi borist frá ST. Import vegna upprunalegs bréfs Neytendastofu og ekki heldur ítrekun. Því hafi málið verið tekið til ákvörðunar á grundvelli fyrirliggjandi gagna. „Segðu bless við vöðvaóþægindi“ Í ákvörðuninni segir að Neytendastofa hafi farið fram á að ST. Import færði sönnur á fullyrðingar um ætlaðan lækningamátt tólf vara. Dæmi um slíkar fullyrðingar má sjá hér að neðan: Mini EMS nuddtæki: „Bættur vöðvabati: Eykur blóðrásina og flýtir fyrir lækningu”; „Verkjastilling: Dregur úr sársauka með því að trufla sársaukamerki og losa endorfín”; „Léttir frá liðagigt, vöðvaverkjum og fleiru“; „Segðu bless við vöðvaóþægindi, krampa“; 6 „Miðar beint í sársaukan, engin þörf á skaðlegum lyfjum“; og „Hermir eftir náttúrulegu verkjaminnkandi ferli líkamans.“ REDURA - Læknislegur ökklastuðningur: „Hröð verkjastilling”; „Öklastuðningurinn veitir hraða verkjastillingu, aukna hreyfigetu, stuðlar að lækningu, tryggir hraðari endurhæfingu”;, auk þess er jafnframt tekið fram að umræddur ökklastuðningur sé með „læknisfræðileg gæði”, sem aðrir hafi ekki.“ Nano Augn Gufumeðferð: „Langvarandi Læknun- Eftir aðeins nokkra mínútur af daglegri notkun munu augun þín finna fyrir langvarandi vökva og líða betur allan daginn, án þess að þurfa að endurnýja augndropa. Gufumeðferðin hjálpar til við að virkja tárakirtlana aftur og veita frískan og hughreystandi áhrif“ og „Hröð Læknun fyrir Þurr augu.“ Rauða ljósameðferð Nuddtæki fyrir hársvörð: „örva náttúrulegan hárvöxt og berjast gegn hárlosi“; „bætir það blóðrásina, hreinsar hársekkina og nærir hárbotninn, sem leiðir til sterkari og heilbrigðara hárs.“ Umfangsmikið brot Í niðurstöðukafla ákvörðunarinnar segir að Neytendastofa banni ST. Import að viðhafa þá viðskiptahætti sem reifaðir eru hér að framan og beini því til fyrirtækisins að bæta upplýsingagjöf og skilmála sína til samræmis við ákvörðunina. Ellegar megi búast við því að dagsektir verði lagðar á félagið. Þá segir að Neytendastofu sé veitt heimild til álagningar stjórnvaldssekta gegn fyrirtækjum sem brjóta gegn ákvæðum laga um neytendavernd. Sektir geti numið allt að 10 milljónum króna samkvæmt ákvæðum laganna. „Neytendastofa telur brot ST. Import umfangsmikið og alvarlegt gagnvart heildarhagsmunum neytenda auk þess sem um er að ræða viðskiptahætti sem teljast undir öllum kringumstæðum óréttmætir og beinist að mjög breiðum hópi neytenda. Þá er um að ræða óréttmæta viðskiptahætti sem eru líklegir til að hafa áhrif á ákvörðun neytenda um að eiga viðskipti og taka fjárhagslega ákvörðun sem þeir hefðu annars ekki tekið. Að teknu tilliti til þessa auk jafnræðis- og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga og sekta í öðrum málum telur Neytendastofa hæfilegt að leggja á ST. Import stjórnvaldssekt að fjárhæð tvær milljónir króna.“
Verslun Auglýsinga- og markaðsmál Neytendur Mest lesið Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Neytendur Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Neytendur 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Neytendur Hagkerfið allt í hættu Viðskipti innlent Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Viðskipti innlent Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Viðskipti erlent Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Viðskipti erlent Mun leiða Fab Lab Reykjavík Viðskipti innlent Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Fleiri fréttir Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira