Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Samúel Karl Ólason skrifar 5. mars 2026 11:18 Kristi Noem og Donald Trump. Forsetinn er sagður velta fyrir sér hvort hann eigi að reka Noem úr embætti heimavarnaráðherra. AP Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa spurt þingmenn Repúblikanaflokksins á undanförnum dögum hvort þeim finnist hann eiga að reka Kristi Noem, heimavarnaráðherra sinn. Auglýsingar sem Noem lét gera og þykja fjalla meira um hana en eitthvað annað munu ekki hafa fallið í kramið í Hvíta húsinu og þá sérstaklega svör hennar á þingi um þessar umdeildu auglýsingar og saminga vegna þeirra.
Samkvæmt þingmönnum sem rætt hafa við miðilinn Punchbowl News, sem fjallar sérstaklega um bandaríska þingið, hringdi Trump í nokkra þeirra eftir að Noem svaraði spurningum þingmanna á tveimur nefndarfundum á þriðjudaginn og miðvikudaginn. Á þessum fundum deildi hún mikið við Demókrata en einnig kom til snarpra orðaskipta milli hennar og þingmanna Repúblikanaflokksins. Á þriðjudaginn þrýsti öldungadeildarþingmaðurinn John Kennedy á hana vegna auglýsingaherferðar Heimavarnaráðuneytisins og sagði að sú herferð hafi virst þjóna þeim eina tilgangi að auglýsa hana sjálfa en ekki starfsemi ráðuneytisins. Ein auglýsingin sýndi Noem á hestbaki við Rushmore-fjall þar sem hún hét því að innflytjendum sem brjóti lög Bandaríkjanna verði refsað. Noem sagði Trump hafa samþykkt þessa auglýsingaherferð, sem kostaði 220 milljónir dala, og stórt hlutverk hennar í henni. Þetta mun hafa reitt Trump til reiði. Repúblikaninn Thom Tillis gagnrýndi Noem einnig harðlega og kallaði eftir því að hún segði af sér. Noem var einnig spurð út í samband hennar við Corey Lewandowski, hennar æðsta aðstoðarmann, og hvort þau hefðu átt í ástarsambandi. Því hefur verið haldið fram í fjölmiðlum en Noem neitaði að svara spurningum um málið að öðru leyti en að segja að þessar sögusagnir væru „slúðurblaða rusl“. Samskipti Noem og Kennedy má sjá í spilaranum hér að neðan. Innanbúðarmenn og tengdir aðilar fengu samninga Auglýsingaherferð hennar og ráðuneytisins hefur vakið sérstaklega mikla athygli. Herferðin er talin hafa kostað um 220 milljónir dala og fór ráðuneytið ekki gegnum hefðbundið útboðsferli vegna hennar. Þess í stað voru gerðir samningar við tvö fyrirtæki sem bæði tengjast innanbúðarmönnum Repúblikanaflokksins. Talsmaður ráðuneytisins staðhæfði við fjölmiðla í síðasta mánuði að útborðsferlið hefði verið eðlilegt og samkeppnishæft en undir lok síðustu viku var birt skjal í opinberum gagnagrunni þar sem hið andstæða kom fram. Þar stóð, samkvæmt AP fréttaveitunni, að yfirlýsing Trumps um þjóðarneyðarástand á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó hefði falið í sér að ekki hafi verið tími fyrir hefðbundið útboðsferli. Eitt fyrirtækið sem samningur var gerður við vegna herferðarinnar kallast People Who Think LLC og er í eigu manns sem heitir Jay Connaughton. Sá er pólitískur ráðgjafi sem starfaði við framboð Trumps árið 2016 og hefur unnið með Lewandowski á undanförnum árum. Það fyrirtæki fékk 77 milljónir dala (um 9,6 milljarðar króna). Hitt fyrirtækið heitir Safe America Media LLC en það var stofnað nokkrum dögum áður en margra milljóna dala samningur var gerður við það. Fyrirtækið er í eigu ráðgjafans Mike McElwain sem er sagður hafa starfað mikið fyrir Repúblikanaflokkinn. Samkvæmt frétt Reuters fékk þetta félag 143 milljónir dala frá ráðuneytinu (17,9 milljarðar króna). Eitt fyrirtæki til viðbótar fékk 226 þúsund dali fyrir ráðgjöf en það kallast The Strategy Group og er í eigu eiginmanns Triciu McLaughlin, fráfarandi talskonu heimavarnaráðuneytisins. Hann mun hafa verið ráðinn sem undirverktaki fyrir Safe America Media, samkvæmt frétt ProPublica. Einn af nánustu ráðgjöfum Noems, hin 28 ára gamla Madison Sheahan, fékk 25 þúsund dali sem undirverktaki Safe America Media. Hún starfar nú sem háttsettur embættismaður innan heimavarnaráðuneytisins en ekki er ljóst fyrir hvaða störf hún fékk greitt og svaraði hún ekki fyrirspurn ProPublica. Ekki rétti tíminn til að reka Noem Samkvæmt Punchbowl News eru Repúblikanar ekki sammála um það hvort nú sé rétti tíminn fyrir Trump að reka Noem. Í fyrsta lagi séu þeir ekki vissir um að þeir gætu fundið 51 atkvæði í öldungadeildinni til að skipa nýjan ráðherra. Þeir óttast líka það að fundarhöld um tilnefningu nýs ráðherra myndu að mestu snúast um aðgerðir heimavarnaráðuneytisins í Bandaríkjunum og aðgerðir ríkisstjórnar Trumps, sem mælast óvinsælar í könnunum. Sitja á fúlgum fjár og róa á nýnasistamið Í fyrsta fjárlagafrumvarpi Donalds Trump á þessu kjörtímabili fékk heimavarnaráðið (DHS) gífurlega stóra fjárveitingu eða um 75 milljarða dala. Það samsvarar rúmum níu billjónum króna (tólf núll). Þar af fóru þrjátíu milljarðar dala til Innflytjenda og tollaeftirlits Bandaríkjanna (ICE). Miklu af þessum peningum hefur verið varið í að ráða nýja starfsmenn til ICE og Landamæraeftirlits Bandaríkjanna (CBP). Starfsmönnum þessara stofnana hefur fjölgað verulega en Færslur og auglýsingar ICE, CBP og DHS, þar sem verið er að auglýsa starfsemi stofnananna og leita að nýju starfsfólki, hafa vakið töluverða athygli. Sérfræðingar segja þær reglulega innihalda tilvísanir í fjar-hægri orðræðu og myndmál.
Bandaríkin Donald Trump Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira