Körfubolti

Tekur tólf leik­menn með til Serbíu

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Ísland spilar útileik gegn Serbíu og heimaleik gegn Portúgal í næstu viku.
Ísland spilar útileik gegn Serbíu og heimaleik gegn Portúgal í næstu viku. vísir

Landsliðsþjálfarinn Pekka Salminen hefur valið leikmannahópinn fyrir leiki Íslands gegn Serbíu og Portúgal í undankeppni EM 2027.

Fyrri leikurinn fer fram í Novi Sad í Serbíu miðvikudaginn 11. mars klukkan 17:00 og sá síðari gegn Portúgal fer fram á Ásvöllum í Hafnarfirði þriðjudagskvöldið 17. mars klukkan 19:30.

Þetta er annað landsliðsverkefnið sem liðið fer í undir stjórn Pekka Salminen. Leikirnir gegn Serbíu og Portúgal í nóvember töpuðust báðir með miklum mun.

Frá því verkefni detta þrír leikmenn úr hópnum, þær Diljá Ögn Lárusdóttir, Helena Rafnsdóttir og Kristrún Ríkey Ólafsdóttir.

Kristrún Ríkey, Berglind Katla Hlynsdóttir og Eva Wium Elíasdóttir munu hins vegar koma til móts við liðið fyrir seinni leikinn sem fer fram hér á landi.

Hópurinn sem heldur út til Serbíu á laugardag er svo skipaður:

  • Anna Ingunn Svansdóttir – Keflavík
  • Ásta Júlía Grímsdóttir – Valur
  • Danielle Rodriguez – Njarðvík
  • Isabella Ósk Sigurðardóttir – Grindavík
  • Kolbrún María Ármannsdóttir - TK Hannover Luchse
  • Rebekka Rut Steingrímsdóttir – KR
  • Sara Rún Hinriksdóttir – Keflavík
  • Sigrún Björk Ólafsdóttir - Haukar
  • Tinna Guðrún Alexandersdóttir - Haukar
  • Thelma Dís Ágústsdóttir – Keflavík
  • Þóra Kristín Jónsdóttir – Haukar
  • Þóranna Kika Hodge-Carr – Valur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×