Noem rekin Agnar Már Másson skrifar 5. mars 2026 18:56 Donald Trump hefur líklegast gefist kostur á að segja sín uppáhaldsorð við Kristi Noem, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna: „Þú ert rekin.“ AP/Alex Brandon Kristi Noem hefur verið rekin sem heimavarnaráðherra Bandaríkjanna. Öldungadeildarþingmaðurinn Markwayne Mullin tekur við af henni. Noem verður sett í glænýtt embætti.
Donald Trump Bandaríkjaforsetigreinir greinir frá þessu á Truth Social og skrifar að Noem verði gerð að sérstökum erindreka fyrir leiðtogafundinn „Shield of the Americas,“ sem væri nýtt öryggisframtak í vesturheimi. Greint var frá því í dag að Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefði spurt þingmenn Repúblikanaflokksins á undanförnum dögum hvort þeim fyndist hann eiga að reka Noem, heimavarnaráðherra sinn. Auglýsingar sem Noem lét nýverið gera og þykja fjalla meira um hana en eitthvað annað munu ekki hafa fallið í kramið í Hvíta húsinu og þá sérstaklega svör hennar á þingi um þessar umdeildu auglýsingar og samninga vegna þeirra. Ein auglýsingin sýndi Noem á hestbaki við Rushmore-fjall þar sem hún hét því að innflytjendum sem brjóti lög Bandaríkjanna verði refsað. Fleira kann að hafa haft áhrif á ákvörðun Trumps; Noem sat fyrir svörum við spurningum þingmanna á tveimur nefndarfundum á þriðjudaginn og miðvikudaginn. Á þessum fundum deildi hún mikið við Demókrata en einnig kom til snarpra orðaskipta milli hennar og þingmanna Repúblikanaflokksins. Á þriðjudaginn þrýsti öldungadeildarþingmaðurinn John Kennedy á hana vegna auglýsingaherferðar Heimavarnaráðuneytisins og sagði að sú herferð hafi virst þjóna þeim eina tilgangi að auglýsa hana sjálfa en ekki starfsemi ráðuneytisins. Noem var einnig spurð út í samband hennar við Corey Lewandowski, hennar æðsta aðstoðarmann, og hvort þau hefðu átt í ástarsambandi. Því hefur verið haldið fram í fjölmiðlum en Noem neitaði að svara spurningum um málið að öðru leyti en að segja að þessar sögusagnir væru „slúðurblaða rusl“.
Donald Trump Bandaríkin Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira