Upp­gjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnu­menn völtuðu yfir vankaða Þórsara

Hjörvar Ólafsson skrifar
Orri Gunnarsson að taka mikilvægasta frákast leiksins.
Orri Gunnarsson að taka mikilvægasta frákast leiksins. Vísir / Guðmundur

Það var vægt til orða tekið himinn og haf á milli spilamennsku Stjörnunnar og Þórs Þorlákshafnar þegar liðin leiddu saman hesta sína í ÞG Verk-höllina í Ásgarði í kvöld en leikurinn var liður í 19. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta.

Stjörnumenn hófu leikinn af mun meiri krafti og voru búnir að byggja upp 23-10 forskot þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Mikil ákefð var í varnarleik Stjörnuliðsins og sjálfstraust á hinum enda vallarins.

Munurinn á liðunum var 10 stig, 32-22, eftir að fyrsta leikhluta lauk og gríðarlega orka og einbeiting skein úr leikmönnum Stjörnunnar sem voru augljóslega staðráðnir að ná í þau tvö stig sem í boði voru.

Stjarnan sló síður en svo slöku við þegar inn í annan leikhluta kom og jók forystu sína í upphafi leikhlutans. Giannis Agravanis kom Stjörnunni í 44-24 þegar hann tróð með tilþrifum og stuð og stemming innan vallar sem utan hjá heimamönnum.

Þegar fyrri hálfleik lauk hafði Stjarnan skorað 69 stig á móti 39 stigum hjá Þór Þorlákshöfn og það var farið að votta fyrir vonleysi hjá gestunum. Stjörnumenn kæfðu Þórsara með feykilega öflugum varnarleik og heimamenn áttu svo einkar greiða leið að körfu gestanna sem virkuðu áhugalausir í varnarvinnu sinni.

Það var ennþá hungur hjá leikmönnum Stjörnunnar í þriðja leikhluta  þrátt fyrir að liðið væri með rúmlega 30 stiga forskot. Garðabæjarliðið sýndi gestunum enga miskunn og leiddi með 34 stigum, 96-62, fyrir fjórða og síðasta leikhluta.

Þegar yfir lauk fór Stjarnan með 59 stiga sigur af hólmi, 127-68, en liðið hefur 28 stig í öðru sæti deildarinnar eftir þennan sigur. Grindavík er á toppnum með 32 stig og Tindastóll í þriðja sæti með 26 stig en þessi lið mætast á Sauðárkróki annað kvöld. 

Atvik leiksins

Giannis Agravanir gladdi augað mest með kraftmiklum troðslum sínum. Þá var í raun aðdáunarvert að sjá hverju mikla vinnu og orkustig leikmenn Stjörnunnar lögðu í varnarleik sinn. Það skilaði sér svo um munar bæði með unnum boltum og auðveldum körfum á hinum enda vallarins.

Stjörnur og skúrkar

Liðsvörnin lagði grunninn að þessum afar sannfærandi sigri Stjörnunnar. Luka Gasic skoraði svo mest fyrir Stjörnuliðið en hann setti niður 30 stig og Seth Leday, Hilmar Smári og Giannis Agravanis lögðu svo allir töluvert í púkkinn í sókarleiknum. 

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir kumpánar Sigmundur Már Herbertsson, Jakob Árni Ísleifsson og Sigurbaldur Frímannsson, slógu fáar sem engar feilnótur í þessum leik og taktfastur og rytmískur flautukonsert þeirra færir með sjö í einkunn fyrir vel unnin störf sín.

Stemming og umgjörð

Silfurskeiðin var í miklu stuði í kvöld og söng allan lagalista sinn af mikilli innlifun. Það var glatt á hjalla í Garðabænum enda léku leikmenn Stjörnunnar við hvurn sinn fingur og sýndu mikla ástríðu í spilamennsku sinni. Það smitaði yfir til stuðningsmanna Stjörnuliðsins. .

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira