Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. mars 2026 19:37 Kjartan og Marta hafa sagt skilið við Sjálfstæðisflokkinn. Vísir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúar hafa ákveðið að segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn og ganga til liðs við Miðflokkinn. Þau segjast telja Miðflokkinn mun líklegri til að vinna að meginmarkmiðum þeirra í borgarmálum.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá tvíeykinu. Vísir hefur ítrekað reynt að ná í Mörtu án árangurs. Í yfirlýsingu þeirra nefna þau að þetta eigi ekki síst við um samgöngumál. Hvorugt var á lista frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins sem kynntur var á dögunum. „Svokölluð borgarlína hefur verið eitt helsta áherslumál vinstri flokkanna á undanförnum árum undir forystu Samfylkingarinnar. Hins vegar hefur verið kvartað yfir því að stefna Sjálfstæðisflokksins í málinu sé í besta falli óljós.“ Borgarlínan þeim hugleikin Segja þau að Borgarlínan yrði risavaxin opinber framkvæmd, sem hefði ýmsar neikvæðar afleiðingar í för með sér vegna mikils kostnaðar, skattahækkana og aukinna umferðartafa. Þau segja að hægt væri að stórefla núverandi strætisvagnakerfi með margfalt minna fé en fyrirhugað sé að setja í borgarlínuverkefnið. Slíkar umbætur á strætókerfinu segja þau að væri hægt að ráðast í strax í stað þess að bíða í að minnsta kosti hálfan áratug eftir rándýrri og ófjármagnaðri borgarlínu. „Kostnaður vegna framkvæmdahluta borgarlínu mun sennilega nema hundruðum milljarða króna. Slík risaframkvæmd verður ekki fjármögnuð nema með auknum álögum á borgarbúa. Meðal annars á að fjármagna verkefnið með umferðargjaldi er koma á til viðbótar háum gjöldum, sem þegar eru innheimt af umferð. Slíkar viðbótarálögur munu líklega koma harðast niður á íbúum í eystri hverfum borgarinnar. Þeir stjórnmálamenn, sem styðja borgarlínu, eru því í raun að kalla eftir verulegum skatta- og gjaldahækkunum.“ Miðflokkurinn tekið skýra afstöðu Þau segja í yfirlýsingu sinni að skptar skoðanir hafi verið um borgarlínu meðal borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins á kjörtímabilinu. Meirihluti þeirra hafi verið andvígur verkefninu eða fjórir af sex. „Sú andstaða er í samræmi við skoðun meirihluta sjálfstæðismanna í borginni. Miðflokkurinn hefur hins vegar tekið rétta og skýra afstöðu í afstöðunni til borgarlínu og í mörgum öðrum málum eins og margoft hefur komið fram í máflutningi kjörinna fulltrúa flokksins. Við teljum okkur því eiga samleið með Miðflokknum,“ segir tvíeykið. „Við höfum bæði starfað lengi í Sjálfstæðisflokknum og eigum þar fjölmarga góða vini og kunningja. Við þökkum þeim fyrir samstarfið, sem oftast hefur verið gott, og óskum Sjálfstæðisflokknum velfarnaðar.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Borgarlína Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Fleiri fréttir Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Sjá meira