„Hann er rosalegur“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. mars 2026 21:27 Hákon Örn Hjálmarsson fór fögrum orðum um liðsfélaga sinn. Vísir/Anton Brink Hákon Örn Hjálmarsson, fyrirliði ÍR í Bónus-deild karla í körfubolta, segir að þrátt fyrir sigur gegn ÍA í kvöld verði liðið að gera betur í næstu leikjum til að gulltryggja sæti í úrslitakeppninni. „
Við erum að reyna að tryggja okkur inn í úrslitakeppni og hver einasti leikur skiptir gríðarlega miklu máli. Við eigum ekki auðvelt prógramm eftir þannig það var mjög stórt að fá sigur. Sama hvernig hann kom,“ sagði Hákon í leikslok. ÍR-ingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og náðu fljótt tíu stiga forskoti. Þeir lentu hins vegar fljótlega undir og voru að elta stærstan hluta leiksins, eða alveg þangað til í 4. leikhluta. „Stór partur af þessu var bara að hitta úr skotum. Þeir skutu 50 prósent í fyrri hálfleik úr þristum og enda leikinn að ég held í kringum 30-35 prósent ef ég ætti að giska á það. Þetta liggur held ég bara þar. Þeir skoruðu 50 stig í fyrri hálfleik en enda leikinn með 83 stig. Stundum er það þannig bara, hvort þeir hitta eða ekki.“ „Mér fannst við vera með gott gameplan. Breyttum svolítið pick and roll vörninni og Borche setti upp nýja vörn sem virkaði ágætlega. Svo breyttum við aðeins til þegar stóri maðurinn þeirra fór út af og fórum aftur í það sem við erum vanir. Það virkaði í dag og við settum líka bara stóru skotin. Eða, Jake (Jacob Falko) setti stóru skotin.“ Þá lá ekki á svörum þegar Hákon var spurður út í það hvort það væri ekki ágætt að eiga mann eins og Falko inni í jöfnum leik. „Hann er rosalegur,“ sagði Hákon einfaldlega. ÍR-ingar eru í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni og mæta Álftnesingum, sem eru tveimur stigum á eftir ÍR, næst. „Þeir eru með gríðarlega sterkan hóp og við þurfum klárlega að mæta betur til leiks í næstu viku en við gerðum í dag til að eiga séns í þann leik,“ sagði Hákon að lokum.
Bónus-deild karla ÍR ÍA Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Sport Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Fer frá Hlíðarenda til Molde Fótbolti Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira