Kaþólska kirkjan elskar okkur öll Einar Baldvin Árnason skrifar 7. mars 2026 10:32 Dæmisagan af glataða syninum er ein sú fallegasta í biblíunni og hún hefur verið mönnum innblástur allt frá tímum Krists. Hér að neðan má sjá hana í túlkun hollenska málarans Rembrandts. Málverkið fangar augnablikið þegar glataði sonurinn snýr aftur í faðm hins miskunnsama föður síns. Faðirinn er mildur á svip og heldur syni sínum þétt að sér. Sagan sjálf fjallar um son sem snýr aftur heim til föðurhúsanna eftir langa fjarveru og ólifnað. Hann telur sig óverðugan og hikar við að snúa heim en þegar faðir hans sér hann hleypur hann til hans með útbreiddan faðminn, fellur um háls hans og kyssir hann: „Því að þessi sonur minn var dauður og er lifnaður aftur. Hann var týndur og er fundinn." (Lúkasarguðspjall 15:24) Sagan fjallar um kærleika Drottins sem er hvorki fjarlægur né reiður Guð heldur faðir vor sem hleypur til þeirra með útbreiddan faðminn sem vilja snúa heim til hans. Kaþólska kirkjan er eins, hún mætir þeim sem koma til hennar sjálfviljugir og tekur þá í faðm sinn, alveg sama hverjir þeir eru eða hvaðan þeir koma. Þetta er kristileg ást í verki. Kanslari kirkjunnar á Íslandi Séra Jakob Roland útskýrði þessar hugmyndir, ást og mildi, ásamt synd og fyrirgefningu í ítarlegu viðtali við Ríkisútvarpið. Hann talaði um kennisetningar kirkjunnar við manneskju sem var þeim ókunnug en virtist mjög áhugasöm að læra um þær. Viðtalið er gott og þau tala hvert við annað af virðingu en Séra Jakob segir m.a þetta þegar talið barst að kennisetningum kirkjunnar um samkynhneigð: „Allir sem mæta í kirkjuna eru með sín vandamál og syndir, glíma við slæmar tilhneigingar að einhverju leyti. Allir eru krjúpandi, stundum grátandi frammi fyrir Guði, frammi fyrir styttu heilagrar Maríu meyjar og biðja um hjálp. Við erum allir í sömu stöðu í rauninni.” Séra Jakob talar hér af nærgætni og leggur kynlíf samkynhneigðra að jöfnu við annan losta alveg eins og kirkjan ætlast til. Kirkjan hvetur samkynhneigða til skírlífis á sama hátt og hún hvetur alla menn og konur utan hjónabands til þess. Prestarnir sjálfir þurfa að fylgja sömu reglu, þeir mega ekki kvænast og eiga því aldrei að stunda kynlíf. Það er því fráleitt að tala um bælingarmeðferðir samkynhneigðra sérstaklega í þessu samhengi eins og hefur verið gert síðan viðtalið kom út. Það er fyrst og fremst mikilvægt að skoða málin heildstætt og í samhengi við viðhorf kirkjunnar til kynlífs almennt, í raun við öll viðhorf hennar í heild og þá alltaf í því samhengi að menn eru ekki dæmdir fyrir syndir sínar. Fyrirgefning er alltaf í boði og mildi Guðs og kirkjunnar eru engin takmörk sett. Frans heitinn páfi lagði áherslu á þetta í frægri predikun sinni um glataða soninn: „Guð þreytist ekki á þvi að fyrirgefa, það erum við sem þreytumst á því að spyrja." Engum er úthýst úr kirkju Jesú Krists og innan hennar eru allir jafnir og elskaðir. Það er þó ekki skrýtið að kaþólskar kennisetningar hljómi undarlega í eyrum margar Íslendinga, kaþólsk guðfræði er djúp og margslungin og hefðin er löng og óslitin. Kennisetningarnar hafa auk þess lítið breyst frá upphafi, ólíkt því sem mótmælendur á Íslandi eiga að venjast. Það er því auðvelt fyrir Ríkisútvarpið og aðra að slíta hluti úr öllu samhengi í löngu viðtali og mála skrattann á veginn. Í þessu samhengi er gott að hafa í huga að kaþólsk trú var afnumin grimmilega á Íslandi í siðaskiptunum og bönnuð í nokkur hundruð ár á eftir, og að íslensk menningin er öll mörkuð af þessu, raunar að því marki að þingmönnum eins og Sigmundi Erni Rúnarssyni finnst ekkert eðlilegra en að taka tryllingskast á Alþingi gegn kaþólskri trú á rætinn hátt sem ég efast um að yrði liðinn ef hann beindist að öðrum trúarbrögðum. Það er óboðleg framkoma gagnvart öllu kaþólsku fólki á Íslandi. Það væri óskandi að fólk legði sig fram við að hlusta og kynna sér málin áður en það leggur í upphlaup gegn kirkjunni, hvað þá að fara fram á lögreglurannsókn og fangelsisdóm yfir prestinum okkar eins og Helga Vala Helgadóttir, lögfræðingur og fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar, hefur gert og dómsmálaráðherra virðist hafa orðið við ef marka má nýjustu fréttir. Slík orðræða og slíkur ofsi mun engu skila nema sársauka fyrir alla viðkomandi og vekur líka upp óþægilegar spurningar um hvort það sé raunverulegt trúfrelsi þegar valdsmenn leyfa sér að ráðast að frjálsu trúfélagi með þessum hætti fyrir það eitt að presturinn okkar skuli hafa leyft sér að boða hefðbundna kristna trú. Ég vil í staðinn hvetja til áframhaldandi samtals og gagnkvæmrar virðingar. Það er mun æskilegra en fordómar, rangfærslur og ofsi. Höfundur er listamaður og leikmaður í kaþólsku kirkjunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trúmál Mest lesið Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Stöndum saman um að treysta EES í sessi Ólafur Stephensen Skoðun Skoðun Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Skoðun Stöndum saman um að treysta EES í sessi Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Síbylja í sorginni Sveinn Hjörtur Guðfinnsson skrifar Skoðun Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Hækkun hjá Heilsu hf. Nota bene! Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Lok ríkisábyrgðar marka kaflaskil Rafnar Lárusson skrifar Skoðun Þjóðin kom saman og byggði Kvennaathvarf – Takk! Esther Hallsdóttir skrifar Sjá meira
Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar
Skoðun Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir skrifar
Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun