Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Lovísa Arnardóttir skrifar 7. mars 2026 13:31 Hagnaður Orkuveitunnar var meiri í fyrra en árið áður. Vísir/Egill Rekstur Orkuveitunnar skilaði 11,5 milljarða króna hagnaði á árinu 2025. Það er liðlega tveimur milljörðum betri niðurstaða en árið 2024, samkvæmt tilkynningu, þrátt fyrir áfall hjá Norðuráli og samdrátt í tekjum hitaveitunnar. „
Ég er afar stoltur af starfsfólki og stjórnendum Orkuveitunnar sem brugðust hratt og af festu við þegar greiðslufall varð hjá okkar stærsta orkukaupanda. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður jókst rekstrarhagnaður Orkuveitunnar um 2,4% milli ára og félagið skilaði góðri afkomu á síðasta ári. Enn er ekki útséð um heildaráhrif málsins, en við leggjum ríka áherslu á að verja fjárhagslegan styrk Orkuveitunnar þannig að félagið geti áfram staðið undir fjárfestingum og mikilvægum verkefnum í þágu samfélagsins,“ segir Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitunnar. Í tilkynningu kemur fram að á milli ára hafi rekstrartekjur aukist um 2,5 prósent en rekstrargjöld eingöngu um 1,7 prósent. Fjárfestingar ársins 2025 námu samtals 33,4 milljörðum króna en voru 30,9 milljarðar 2024. „Veltufé frá rekstrinum – og þar með fjárfestingargeta fyrirtækjanna í þágu sjálfbærrar framtíðar – jókst á milli ára,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar. Það var 30,5 milljarðar króna 2025 en 29,1 milljarður árið áður. „Ekki veitir af,“ bætir hann við, „því samkvæmt okkar fjárhagsspá munu fjárfestingar Orkuveitunnar nema 230,5 milljörðum króna til ársloka 2030.“ Í tilkynningu segir að innleiðingu snjallmæla hjá Veitum muni ljúka á þessu ári og að við fyrirtækinu blasi aukin orkuöflun fyrir hitaveitur, efld vatnsvernd og að mæta vaxandi kröfum til fráveitna. Þar kemur einnig fram að á árinu hafi Orkuveitan, Orka náttúrunnar og Carbfix gerst aðilar að þróunar- og nýsköpunarverkefni á Grundartanga. Á meðal þess sem felst í verkefninu sé nýting glatvarma frá iðnaði þar og fyrsta binding kolefnis beint frá orkusæknum iðnaði hér á landi.
Orkumál Bilun hjá Norðuráli Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira