Sindri út til Guðrúnar og kveður Keflavík Sindri Sverrisson skrifar 11. mars 2026 17:34 Sindri Kristinn Ólafsson og Guðrún Arnardóttir geta nú notið lífsins saman í Svíþjóð. Samsett/Keflavík/Getty Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur nú staðfest brotthvarf markvarðarins Sindra Kristins Ólafssonar sem ákveðið hefur að flytja út til Svíþjóðar til unnustu sinnar, landsliðskonunnar Guðrúnar Arnardóttur.
Guðrún sneri aftur til Svíþjóðar í vetur eftir stutta dvöl í Portúgal og gerði samning við eitt sterkasta lið sænsku úrvalsdeildarinnar, Hammarby, sem gildir út árið 2027. áður hafði hún þrisvar sinnum orðið Svíþjóðarmeistari með Rosengård. Sindri lék með Keflavík, uppeldisfélagi sínu, í Lengjudeildinni í fyrra og átti sinn þátt í að koma liðinu upp í Bestu deildina á nýjan leik. Áður hafði hann spilað tvö tímabil með FH eftir að hafa kvatt Keflavík eftir tímabilið 2022. „Hann hefur jafnan lagt hjarta og sál í félagið og er vandfundinn harðari félagsmaður,“ segja Keflvíkingar um Sindra í tilkynningu sinni í dag, óska honum alls hins besta og þakka fyrir hans framlag. „Ekki auðveld ákvörðun“ Ekki er ljóst hvað tekur við hjá Sindra annað en það að nú lýkur fjarbúðinni og þau Guðrún geta búið saman. „Keflavík hefur verið stór hluti af mínu lífi og það er alltaf heiður að spila fyrir félagið. Þetta var ekki auðveld ákvörðun, en Guðrún hefur fengið gott tækifæri til að halda áfram sínum ferli í Svíþjóð og ákváðum við því að taka þetta skref saman. Ég vil þakka liðsfélögum, þjálfurum og öllum í kringum félagið fyrir samstarfið og stuðninginn í gegnum árin. Vonandi liggja leiðir okkar saman í framtíðinni. Ég mun fylgjast vel með liðinu og óska Keflavík alls hins besta á komandi tímabili,“ er haft eftir Sindra í tilkynningu Keflvíkinga.
Sænski boltinn Besta deild karla Keflavík ÍF Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Sjá meira