Ein besta fjárfesting heilbrigðiskerfisins? Gunnlaugur Már Briem skrifar 12. mars 2026 10:31 Í maí 2024 var undirritaður nýr samningur milli Félags sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Íslands. Samningurinn markaði tímamót eftir langt tímabil samningsleysis (4 ½ ár), sem hafði skapað verulega óvissu bæði fyrir sjúkraþjálfara og þá sem þurfa á nauðsynlegri endurhæfingu og þjónustu að halda. Það að ljúka samningsleysinu hafði strax jákvæð áhrif, þar sem aðgengi að þjónustunni jókst og þá sérstaklega fyrir tekjulága og viðkvæma hópa samfélagsins. Átti þetta einkum við eldri einstaklinga og þá sem eru á örorku- eða endurhæfingarlífeyri. Þessir hópar eru oft í þörf á umfangsmeiri þjónustu sjúkraþjálfara og annarra heilbrigðisstarfsmanna til að viðhalda og bæta færni, sjálfsstæði og lífsgæði, á sama tíma og minni þörf verður á dýrari úrræðum innan heilbrigðiskerfisins. Fleiri geta sótt sér þjónustuna Eftir að nýr samningur tók gildi og viðbótargjöld vegna samningsleysis féllu niður um mitt ár 2024, þá kom skýrt í ljós að mikil uppsöfnuð þörf hafði verið fyrir þjónustuna meðal almennings. Ríflega tvö þúsund fleiri einstaklingar nýttu sér þjónustu sjúkraþjálfara árið 2024 samanborið við 2023, en mest var fjölgunin meðal ellilífeyrisþega. Til samanburðar þá var mun minni fjölgun einstaklinga milli áranna 2024 og 2025, eða rétt tæplega fimmtánhundruð. Þessi breyting skýrist helst af minni fjölgun þeirra sem falla undir almenna hópa samfélagsins. Því er nánast öll fjölgun einstaklinga á tímabilinu hjá þeim sem voru á ellilífeyri eða örorku- eða endurhæfingarlífeyri. Undirstrikar þessi þróun það að áhrif samningsins komu fyrst og fremst fram í bættu aðgengi viðkvæmra hópa, sem verður að teljast jákvætt ef horft er til aðgengis að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag og stöðu. Aukin þörf mikilvægra hópa Áhrif samningsins koma einnig skýrt fram þegar horft er til heildarfjölda meðferðaskipta sem einstaklingar hafa getað sótt sér. Fjölgun meðferðarskipta í sjúkraþjálfun á tímabilinu frá 2023 til 2025 er nánast að öllu leiti vegna aukinnar þjónustu við þá einstakinga sem eru á ellilífeyri, örorku- eða endurhæfingarlífeyri. Þessi þróun mætir með skýrum hætti áherslum stjórnvalda í málaflokkum aldraðra og þeim auknu áherslum sem gerðar hafa verið varðandi virka endurhæfingu einstaklinga til að draga úr líkum á því að viðkomandi þurfi að fara á varanlega örorku. Umfang þjónustu við þá sem ekki eru á ellilífeyri, örorku- eða endurhæfingarlífeyri hefur staðið í stað eða dregist lítillega saman á tímabilinu. Hafa því fleiri einstaklingar fengið þjónustu, en hafa þurft færri heildarmeðferðarskipti. Þrátt fyrir þessa jákvæðu þróun er þó gríðarlega mikilvægt að við tryggjum einnig áfram öflugt aðgengi almennra notenda að sjúkraþjálfun og annarri grunnþjónustu, svo hægt sé að bregðast við og fyrirbyggja alvarlegri heilsufarsvanda og aukna þörf á dýrari meðferðarúrræðum. Á myndritinu hér að ofan má sjá umfang þeirra breytinga sem líst hefur verið. Þar sem aukið umfang þjónustu eftir undirritun samningar hefur fyrst og fremst farið í að mæta aukinni þörf viðkvæmra hópa eftir þjónustu í samræmi við áherslur stjórnvalda. Má ætla að þarna endurspeglist einnig sú staða sem fjallað hefur verið um síðastliðnar vikur og mánuði í fjölmiðlum er varðar verulegan skort á úrræðum einkum til handa öldruðum, og því sé þessi þjónusta gríðarlega mikilvæg til að styðja við aðra hluta heilbrigðiskerfisins þegar kemur að þessum mikilvæga málaflokki. Styðjum við áframhaldandi jákvæða þróun Umræða um endurhæfingu hefur aukist, ekki aðeins í opinberri stefnumótun heldur líka í daglegri umræðu fólks. Samningur Félags sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Íslands hefur þegar sýnt árangur, þar sem viðkvæmir hópar hafa fengið betra aðgengi að nauðsynlegri þjónustu, og lífsgæði fjölda einstaklinga hafa batnað. Þessi niðurstaða er ekki tilviljun, heldur ber hún vott um árangursríka samningagerð sem byggð er á ábyrgð og sterkri faglegri þekkingu á þeim málaflokki sem um ræðir. Nú er það okkar sameiginlega verkefni að tryggja að þessi jákvæða þróun haldi áfram; að nýta þann kraft sem samningurinn hefur fært okkur til að byggja enn frekar upp öfluga grunn endurhæfingarþjónustu fyrir alla landsmenn, óháð aldri og efnahag. Á sama tíma og við sköpum svigrúm fyrir frekari þróun þjónustu og nýsköpun. Hér skiptir samvinna heilbrigðisstétta, stjórnvalda og Sjúkratrygginga lykilmáli. Samningar eins og þessi sem ná til mikilvægrar grunnþjónustu eru ekki aðeins mikilvægir fyrir þá sem þurfa á endurhæfingu að halda hverju sinni, heldur einnig fyrir það samfélag sem við viljum búa í. Þar sem áhersla er ámöguleika til þátttöku, góð lífsgæði og sjálfsstæði eins lengi og mögulegt er. Öflug þjónusta sjúkraþjálfara alls staðar í kerfinu seinkar og minnkar þörf á dýrari úrræðum eins og hjúkrunarrýmum og innlögnum á sjúkrahús, fækkar endurinnlögnum og styður við útskriftir og sjálfsstæði. Höfundur er formaður Félags sjúkraþjálfara. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Gunnlaugur Már Briem Mest lesið Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann Skoðun Skoðun Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Tónlistarborgin eflist! Skúli Helgason skrifar Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Samningsmarkmið Íslands mega ekki vera leyndarmál Júlíus Valsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Skoðun Verkin tala! Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson skrifar Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann skrifar Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að þora að vera til fyrirmyndar Trausti Jóhannsson skrifar Skoðun Orkan sem skapar verðmæti Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Eru 700 milljónir á ári ekki miklir peningar? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir skrifar Skoðun Tölum um samfélagið okkar Jónína Margrét Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Umferðin vex í Hafnarfirði – hvað ætlum við að gera öðruvísi? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Hagsmunir launafólks og Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar
Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar
Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar