Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Agnar Már Másson skrifar 15. mars 2026 00:22 „Við ætlum að gera það sem við gerðum á Gasa,“ er haft eftir ónefndum ísraelskum ráðamanni. Ísraelsmenn vilja ráðast í umfangsmikinn landhernað í Suður-Líbanon í von um að leysa upp Hezbolla. Þegar hafa um 800 dáið í árásum Ísraelsmanna í landinu. AP Líbönsk stjórnvöld hafa samþykkt tillögu frá Frökkum sem leggur grunn að friðarviðræðum við Ísrael. Tillögurnar eru sagðar kveða á um að Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki en Ísraelsmenn búa sig nú undir aukinn landhernað í Líbanon í von um að leysa upp Hezbolla.
Bandaríski fjölmiðillinn Axios greinir frá þessu með vísan til þriggja heimildarmanna sem þekkja til málsins. Líbanska ríkisstjórnin er sögð hafa samþykkt þessa tillögu, sem gæti verið til þess fallin að binda enda á átök milli hryðjuverkasamtakanna Hezbolla og Ísraels. Bandaríkin og Ísrael hafa tillögurnar enn til skoðunar, að sögn miðilsins. Síðustu tvær vikur hafa Ísraelsmenn gert árásir á fjölda skotmarka sem þeir segja tengjast Hezbolla og gefið enn frekar í eftir að Íranir og Hezbollah gerðu samræmdar og umfangsmiklar árásir á Ísrael á miðvikudag. Um 800 manns hafa fallið og meira en 850.000 manns hafa þurft að flýja heimili sín, að sögn AP. Fjölmiðlamenn við vinnu þar sem sandstorm hefur lagt yfir Dahiyeh, úthverfi í líbönsku höfuðborgarinnar Beirút, í dag.AP Allsherjarstríð braust aftur út milli Ísraels og Hezbolla hinn 2. mars eftir að Hezbolla-liðar gerðu árás á Ísrael eftir dráp Ísraelsmanna á Ayatollah Ali Khameni, æðstaklerki Írans. Íranska klerkastjórnin hefur í gegnum tíðina stutt við Hezbolla-samtökin, sem stýra nú suðurhluta Líbanon. Hezbolla sögðust reyndar vera að verjast ítrekuðum árásum sem Ísraelsmenn hafa gert á Líbanon þrátt fyrir að vopnahlé hefði staðið yfir. Emmanuel Macron Frakklandsforseti.AP Að sögn ísraelskra og bandarískra ráðamanna hyggst Ísraelsher stórauka aðgerðir sínar á jörðu niðri í Líbanon, sem yrði til þess að að leggja undir sig allt svæðið við Litani-fljót og leysa upp hernaðarinnviði Hezbolla. Þetta gæti reynst stærsta landinnrás sem Ísraelsmenn hafa gert í Líbanon síðan 2006. „Við ætlum að gera það sem við gerðum á Gasa,“ hefur Axios eftir ónafngreindum ísraelskum ráðamanni, sem vísar til þess að herinn ætli að jafna þau hús við jörðu þar sem Ísraelsmenn telja að Hezbolla geymi vopn og haldi úti starfsemi. Emmanuel Macron Frakklandsforseti lagði til að Ísraelsmenn og Líbanon funduðu í París um hugsanlegan frið og að Frakkar yrðu milligöngumenn. Viðbragðsaðilar rannsaka íbúðarhúsnæði í Sidon í Líbanon eftir árás Ísraelsmanna í dag. Tillaga franskra stjórnvalda kveður á um að Ísrael og Líbanon opni á viðræður, með stuðningi Frakka og Bandaríkjamanna, til þess að komast saman um „pólitíska yfirlýsingu“ innan við næsta mánuð, að sögn Axios. Heimildarmenn Axios segja að yfirlýsingin fæli í sér að Líbanon myndi viðurkenna Ísrael sem ríki og virða fullveldi og landamæri Ísraels. Þá myndu ríkin undirstrika samþykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1701 sem batt enda á stríðið árið 2006. Þá myndi líbanska ríkisstjórnin leggja sig fram við að koma í veg fyrir árásir gegn Ísrael frá sínu landsvæði og innleiða sínar eigin áætlanir til þess að afvopna Hezbollah og banna starfsemi hryðjuverkasamtakanna. Maður stendur ofan á rústum húsa í Dahiyeh, fyrri utan í Beirút í Líbanon.AP
Líbanon Frakkland Ísrael Mest lesið Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent 51 prósent sé nóg Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Svandís segir nei Innlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Fleiri fréttir Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sjá meira