Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. mars 2026 07:39 Róbert Guðfinnsson er stofnandi og stjórnarformaður Genis. Vísir/Egill Siglfirska nýsköpunarfyrirtækið Genis hf. stendur á tímamótum en eftir mánaðalanga leit að fjárfestum innanlands þykir ljóst að engar forsendur séu fyrir frekari vexti fyrirtækisins á Íslandi. Þannig er nú unnið að því að selja félagið og færa starfsemina í hagfelldara umhverfi.
Þetta segir Róbert Guðfinsson, stjórnarformaður og einn stofnenda Genis, í færslu sem hann birti á Facebook í gær. Fyrirtækið, bæði kallað Genis og Genís, er líftæknifyrirtæki með starfsemi á Siglufirði og í Reykjavík, sem framleiðir fæðubótaefnið Benecta, þróar lækningatæki og byggir vörur sínar á áralöngum rannsóknum, þróun og nýtingu lífefna úr rækjuskel. Róbert segir í umfjöllun sinni að þegar litið sé til fyrirtækja á borð við Kerecis, Marel, Össurar og CCP blasi við ákveðið mynstur; þau hafi öll rætur á Íslandi en vöxtur þeirra byggist á erlendu fjármagni og þá hafi sum þeirra færst að hluta eða öllu leyti í erlenda eigu. „Það vekur upp eðlilegar spurningar,“ segir Róbert. „Hverjar eru forsendur þess að slík fyrirtæki verði áfram í íslenskri eigu? Hvaða umhverfi þarf til að styðja við langtímafjárfestingar í þekkingariðnaði? Og hvernig viljum við sem samfélag forgangsraða milli skammtímaávinnings og langtímauppbyggingar – með það að markmiði að framtíðar skatttekjur og verðmætasköpun af starfseminni nýtist íslensku samfélagi og næstu kynslóðum?“ Genis sé meðal þeirra fyrirtækja sem standi frammi fyrir því að þurfa að leita út fyrir landsteinana, þar sem fjármagn fáist ekki innanlands. „Að loknu yfir tveggja áratuga rannsóknar- og þróunarstarfi stendur Genis hf. nú á tímamótum. Félagið hefur byggt upp sérþekkingu og þróað afurðir sem hafa skýrt alþjóðlegt gildi. Þótt umfangið sé ekki sambærilegt við stærstu dæmi síðari ára á íslandi er árangurinn raunverulegur og verðmætasköpunin umtalsverð. Leitin að fjármagni innanlands undanfarna mánuði hefur hins vegar sýnt að þær forsendur sem nauðsynlegar eru til næsta vaxtarskeiðs eru ekki til staðar hérlendis. Af þeim sökum er nú í vinnslu að selja félagið og færa starfsemina, að hluta eða öllu leyti, í umhverfi þar sem meiri skilningur ríkir á uppbyggingu líftæknifyrirtækja til lengri tíma – og þar sem aðgengi að fjármagni og mörkuðum er tryggara.“ Tilefni umfjöllunar Róberts eru fregnir af skattagreiðslum Kerecis, sem hann segir hafa sótt bæði fjármagn, sérþekkingu og markaðsaðgang út fyrir landsteinana. Hann segir íslenskt fjármagn hins vegar leita annað en hátt vaxtastig og verðbólga hafi mótað fjárfestingastefnu á Íslandi þannig að ásóknin sé í skjóta og fyrirsjáanlega ávöxtun, til að mynda á fasteignamarkaði. „Slík þróun er skiljanleg út frá sjónarhóli einstakra fjárfesta – en hefur áhrif á getu hagkerfisins til að byggja upp fyrirtæki til lengri tíma. Þetta er sú áskorun sem við stöndum frammi fyrir,“ segir Róbert. „Umræða um skatttekjur er mikilvæg, en hún verður að taka mið af raunverulegum forsendum verðmætasköpunar. Ef uppbygging fyrirtækja byggir að verulegu leyti á erlendu fjármagni og alþjóðlegu vistkerfi er eðlilegt að ávinningurinn dreifist með þeim hætti. Spurningin er því ekki einungis hvar skattar eru greiddir – heldur hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar svo verðmætasköpunin eigi sér stað hér á landi. Framtíð Genis hf. mun ráðast á næstu misserum. Sú niðurstaða mun ráðast af aðstæðum, ekki aðeins vilja. Um leið er ljóst að hér er um stærra viðfangsefni að ræða en bara þetta eina fyrirtæki því verðmæti fylgja ekki bara þjóðerni – „Ef við byggjum ekki upp jarðveginn fyrir þekkingu, mun hún einfaldlega vaxa annars staðar.““
Fjallabyggð Líftækni Mest lesið Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Sjá meira