Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 18. mars 2026 12:59 Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar. Vísir/Vilhelm Seðlabankastjóri segir launahækkanir mun meiri hér en í nágrannalöndum sem vegi þungt í aukinni verðbólgu undanfarið. Peningstefnunefnd hafi því ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 punkta. Mikil hækkun olíuverðs hafi líka haft áhrif á ákvörðunina í morgun. Hann segir að ef verkalýðsfélög muni fara fram á launahækkanir næsta haust muni það leiða til hækkunar stýrivaxta.
Peningastefnunefnd ákvað í morgun að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,25 prósentum í 7,5. Flestir greiningaraðilar höfðu spáð hækkun vaxta. Tveir af fimm nefndarmönnum vildu hækka vexti um 0,5 prósentur. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir ástæðuna fyrir hækkun nú tvíþætta. „Verðbólga hefur hækkað síðustu mánuði og er 5,2 prósent. Það hefur valdið miklum vonbrigðum. Við erum líka að sjá mikla hækkun á olíuverði vegna átaka fyrir botni Persaflóa, sem við teljum að geti haft veruleg áhrif hér, þó að þau séu ekki að fullu komin fram,“ segir Ásgeir og vísar til þess að alþjóðlegt olíuverð hefur hækkað um fjörutíu prósent frá því í febrúar. Launahækkanir muni leiða til stýrivaxtahækkunar Peningastefnunefnd skýrir aukna verðbólgu nú með því að hér hafi verið miklar launahækkanir síðustu ár, jafnvel tvöfalt meiri en í nágrannalöndunum. Það hafi svo valdið hækkunum á innlendum vörum og þjónustu. „Launhækkun í landinu, samkvæmt vísitölu, er í kringum sjö prósent, sem er meira en samræmist verðstöðugleika eða verðbólgumarkmiði okkar. Það þarf ekki að deila um þessa tölu, þetta er staðreynd sem kemur fram í tölulegum gögnum okkar. Á sama tíma liggur fyrir að launahækkuninni hefur verið velt út í verðlagið,“ segir Ásgeir. Í Stöðugleikasamningunum sem voru gerðir 2024 kemur fram að forsendur séu brostnar verði verðbólga hærri en 4,7 prósent næsta haust. Ásgeir segir að fari verkalýðsfélög fram á launahækkanir muni stýrivextir hækka í kjölfarið. Það „Það væri sérstök nálgun hjá verkalýðsforystunni, að bregðast við þessu ástandi með því að heimta enn meiri launahækkanir. Þá erum við komin með verðbólguskrúfu. Seðlabankinn er auðvitað ekki aðili að kjarasamningum en við þurfum að bregðast við vegna þess að við fáum verðbólguna til okkar og þurfum að bregðast við henni,“ segir hann. Hann biðlar til vinnumarkaðar, atvinnulífs og hins opinbera að halda aftur af hækkunum því ytri aðstæður séu líka neikvæðar. „Ytri aðstæður eru að versna og það er ekkert endilega bara vegna hækkanna á olíuverði heldur almennt. Utanríkisviðskipti eru í meiri klemmu út af ýmsum hlutum sem hafa verið að gerast. Það er mjög mikilvægt að við sem þjóð bregðumst við þessum aðstæðum með því að halda aftur af hækkunum,“ segir hann.
Seðlabankinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál ASÍ Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Viðskipti innlent „Kristrún, það er ljótt að plata“ Viðskipti innlent Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Viðskipti innlent Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Viðskipti innlent Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað Viðskipti innlent Hætta að taka við rúmfreku rusli á tveimur stöðvum Neytendur Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Viðskipti innlent Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka Neytendur Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Sjá meira