Ríkisstjórn Senegal segir grun um spillingu vegna Afríkukeppninnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2026 20:00 Liðsfélagar Sadio Mane lyfta honum upp um leið og hann lyftir Afríkubikarnum á loft. Getty/ Samah Zidan Ríkisstjórn Senegal hefur kallað eftir „óháðri alþjóðlegri rannsókn“ á „grun um spillingu“ hjá stjórn knattspyrnumála í Afríku eftir að Senegal var svipt titlinum í Afríkukeppninni 2025 og hann veittur Marokkó.
Senegal sigraði Marokkó 1-0 í úrslitaleiknum í janúar en Knattspyrnusamband Afríku (Caf) ógilti úrslitin á þriðjudag vegna þess að leikmenn Senegal gengu af velli til að mótmæla þegar gestgjafarnir Marokkó fengu vítaspyrnu dæmda í uppbótartíma. Leikmennirnir sneru aftur eftir sautján mínútna töf og „Panenka“-vítaspyrna Brahim Diaz fyrir Marokkó var varin áður en Pape Gueye frá Senegal skoraði sigurmarkið í framlengingu. Eftir áfrýjun frá marokkóska knattspyrnusambandinu úrskurðaði Caf að Senegal hefði gefið leikinn og „úrslitin yrðu skráð 3-0 í vil“ Marokkó. Röng túlkun á reglugerðum Í yfirlýsingu frá senegölsku ríkisstjórninni sagði að „þessi fordæmalausa og einstaklega alvarlega ákvörðun“ byggðist á „augljóslega rangri túlkun á reglugerðum sem leiddi til gróflega ólögmætrar og afar ranglátrar ákvörðunar“. Þar sagði: „Senegal hafnar eindregið þessari óréttmætu tilraun til eignarnáms.“ Fyrr á miðvikudag sagði senegalska knattspyrnusambandið (FSF) að það myndi áfrýja ákvörðun Caf til Alþjóðaíþróttadómstólsins (Cas) og kallaði hana „ósanngjarna, fordæmalausa og óásættanlega ákvörðun sem varpar rýrð á afríska knattspyrnu“. Þessi ákvörðun er trúnaðarbrot „Þessi ákvörðun er trúnaðarbrot sem byggist ekki á neinum lagareglum,“ sagði Abdoulaye Seydou Sow, framkvæmdastjóri FSF, við senegölsku sjónvarpsstöðina RTS 1. „Okkur fannst að dómnefndin væri ekki þarna til að framfylgja lögum, heldur til að framkvæma skipun. Við munum ekki láta staðar numið. Lögin eru okkar megin. Baráttunni er hvergi nærri lokið. Senegal mun verja rétt sinn til hins ýtrasta.“ Ætla ekki að skila verðlaunapeningunum Sumir leikmenn Senegal hafa gefið í skyn að þeir muni ekki afsala sér verðlaunapeningum sínum. „Við vitum hvað við upplifðum þetta kvöld í Rabat og enginn getur tekið það frá okkur,“ sagði Idrissa Gueye, miðjumaður Senegal og Everton, á samfélagsmiðlum. Sú ákvörðun Senegal að ganga af velli varð til þess að Alþjóðareglunefnd knattspyrnusambanda (Ifab), sem setur reglur í knattspyrnu, hóf samráð um hvernig bregðast skuli við aðstæðum þar sem „leikmenn ákveða einhliða að yfirgefa leikvöllinn, eða liðsmenn hvetja til slíkra aðgerða, til að mótmæla ákvörðun dómara“.
Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira