Lagt til að bílastæðum fjölgi við nýbyggingar Birgir Olgeirsson skrifar 19. mars 2026 16:37 Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri ásamt Dóru Björt Guðjónsdóttur og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur sem eru í meirihluta í borgarstjórn ásamt Líf Magneudóttur úr Vinstri grænum og Helgu Þórðardóttur úr Flokki fólksins. Vísir/Vilhelm Bílastæðum við nýbyggingar í Reykjavík mun fjölga verði tillaga sem liggur fyrir umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar samþykkt. Tillagan snýr að því að rýmka viðmið fyrir íbúðahúsnæði um allt að 0,5 bílastæði á íbúð og var til umræðu á fundi ráðsins í gær.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort tillagan fái frekari framgang en verður væntanlega til frekari umræðu innan umhverfis- og skipulagsráðs á næstunni. Svæðin sem þessi breytingartillaga nær til eru fyrir svæði 1 og 2 þegar kemur að fjölda bílastæða á íbúð. Svæði eitt nær yfir miðkjarna Reykjavíkur og svæði 2 nær yfir öll önnur svæði innan þéttbýlismarka sem ekki eru innan svæðis 1. Á svæði 1 fer bílastæðaviðmiðið fyrir eins herbergja íbúð úr 0,25 í 0,5. Fyrir fjögurra herbergja íbúð fer viðmiðið úr 0,75 í 1, en viðmiðið fyrir tveggja herbergja íbúð og þriggja herbergja íbúð verður það sama, 0,5 og 0,75. Hámarksviðmiðið á svæði 1 helst það sama fyrir eins herbergja íbúð, 0,75, en hámarksviðmið fyrir tveggja herbergja íbúð fer úr 0,75 í 1, fyrir þriggja herbergja íbúð úr 1 í 1,5 og fyrir fjögurra herbergja íbúð úr 1 í 1,5. Meirihlutinn lagði til að bílastæðareglur yrðu rýmkaðar á fundi borgarstjórnar í byrjun mars. VÍSIR/VILHELM Á svæði 2 fer viðmið eins herbergja íbúðar úr 0,5 í 0,75, tveggja herbergja íbúð úr 0,75 í 1, þriggja herbergja íbúð úr 1 í 1,5 og fjögurra herbergja íbúð úr 1 í 1,5. Hámarksviðmið á svæði 2 helst það sama fyrir eins herbergja íbúð, eða eitt bílastæði, en fyrir tveggja herbergja íbúð fer það úr 1 í 1,25, fyrir þriggja herbergja íbúð úr 1,5 í 1,75 og fjögurra herbergja íbúð úr 1,5 í 1,75. Meirihlutinn setti verkið í hendur ráðsins Borgarfulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna lögðu fram tillögu um breytingu á bílastæðareglum á fundi borgarstjórnar 4. mars síðastliðinn. Lagt var til að umhverfis- og skipulagsráði yrði falið að gera tillögu að breytingum á bílastæðareglum borgarinnar með það fyrir sjónum að rýmka þær með því að endurskoða gjaldskyldusvæði, gjaldskyldutíma og önnur þau atriði sem íbúar hafa bent á. Aðeins var farið yfir tillögu að fjölgun bílastæða á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær. Meira í takt við nútímann Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir varaborgarfulltrúi Viðreisnar situr í umhverfis- og skipulagsráði sem lét færa til bókar að það sé ánægjulegt að sjá breytingartillögu um bílastæðareglur.„Að horft sé til gestastæða er stórbót sem og aukning á viðmiðum. Er það von fulltrúa Viðreisnar að rýmkunin komi til með að veita betra aðgengi að nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu,” segir í bókun Jóhönnu. Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, fulltrúi Viðreisnar í umhverfis- og skipulagsráði. Vísir/Aðsend Jóhanna segir í samtali við Vísi að það sé vita mál að bílastæðamál þeirra nýbygginga sem hafa risið í Reykjavíkurborg undanfarið hafi ekki staðist nútímann, þó svo að þær séu vissulega skipulagðar með framtíðina í huga þar sem vonast er til að almenningssamgöngur verði stærri hluti af ferðamáta borgarbúa. 8 vikum fyrir kosningar Friðjón Friðjónsson situr í umhverfis- og skipulagsráði fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Hann fagnar þessari tillögu í samtali við Vísi en hefði viljað gera betur. „Þetta er jákvætt skref en við Sjálfstæðismenn ætlum að ganga lengra á næsta kjörtímabili. Þetta er það fyrsta jákvæða sem meirihluti Samfylkingarinnar hefur gert í þessa átt í meira en áratug, og það átta vikum fyrir kosningar.“ Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og skipulagsráði. Vísir/vilhelm
Reykjavík Borgarstjórn Bílastæði Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira