Lífið

Ást­rós og Adam eiga von á öðru

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ástrós og Adam stilltu sér upp með sónarmyndirnar.
Ástrós og Adam stilltu sér upp með sónarmyndirnar.

Dansarinn og áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir og frumkvöðullinn Adam Karl Helgason eiga von á öðru barni sínu saman. Fyrir eiga þau eina dóttur sem fæddist 2023.

Ástrós og Adam greindu frá tíðindunum með myndaveislu í sameiginlegri Instagram-færslu. Þar má sjá parið með sónarmyndir af afkomandanum tilvonandi og við færsluna stendur svo: „Önnur blessun 👼🏼🤍✨“

Parið á saman þriggja ára dótturina Nóru og svo á Adam dóttur úr fyrra sambandi. Þau hafa verið saman í um fimm ár og settu nýverið íbúð sína í Fossvogi á sölu.

Ástrós gerði garðinn frægan í þáttunum Allir geta dansað fyrir nokkrum árum og er jafnframt einn af meðlimum LXS-áhrifavaldahópsins. Adam hefur gert það gott sem mataráhrifavaldur, var framkvæmdastjóri City Bikes og er með fyrirtækið North Tropics sem selur ljónsmakkaduft.


Tengdar fréttir

Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn

Áhrifavaldurinn, dansarinn og raunveruleikastjarnann Ástrós Traustadóttir og hennar heittelskaði Adam Karl Helgason matgæðingur hafa sett íbúð sína á sölu. 

„Ég kynntist ástinni í lífi mínu þarna“

„Ég var vissulega ekki opin fyrir ástinni þegar að við Adam kynntust,“ segir dansarinn, raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir. Hún var nýbúin að ganga í gegnum mjög erfiða lífsreynslu þegar að sönn ást bankaði upp á og þrátt fyrir að hafa ætlað sér að vera ein um tíma var óumflýjanlegt að sleppa tökunum og fylgja hjartanu. Ástrós er viðmælandi í Einkalífinu.

Nefndu stúlkuna Nóru Náð

LXS raunveruleikastjarnan og dansarinn Ástrós Traustadóttir og frumkvöðullinn Adam Karl Helgason nefndu stúlkubarn sitt, sem fæddist í febrúar, Nóru Náð Adamsdóttur í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.