Hver er málsvari dýranna? Hrönn Ólína Jörundsdóttir skrifar 23. mars 2026 16:32 Þegar umræðu um dýravelferð ber á góma í samfélaginu er oft fleygt því fram að hér séu annað hvort engir málsvarar dýra eða þá að sjálfskipaðir hópar þurfi að standa gegn yfirvöldum til að tryggja það að einhver tali rödd dýranna gagnvart andvaraleysi yfirvalda. Þá þarf að spyrja sig næstu spurningar: Hvaða aðilar eru það sem raunverulega stíga inn í alvarlegar aðstæður, jafnvel setja sitt eigið öryggi í hættu, til að bjarga dýrum? Er það virkilega enginn? Svarið við þeirri spurningu er: Við hjá Matvælastofnun! Þegar upp koma mál þar sem brotið er á borgurum, þá stígur lögreglan inn. Sambærilegt, þegar upp koma mál þar sem brotið er á dýrum, þá stígum við inn. Við erum á vaktinni um allt land, við bregðumst við þegar upp koma erfið mál, við förum stundum inn í hættulegar aðstæður jafnvel með aðstoð lögreglu og dómsúrskurð, allt til að bjarga dýrum. Það er því stórfurðulegt þegar aðilar sem bæði þekkja vel til stjórnsýslu og/eða dýravelferðar tjái sig opið um að stjórnvöld, hvort sem er Matvælastofnun eða ráðuneytið, láti dýravelferð lönd og leið eða jafnvel taki svo sterkt til orða að dýraníð sé látið líðast. Þá væntanlega spyr fólk: Af hverju bregst Matvælastofnun ekki við dýravelferðarbrotum? Jú við bregðumst við: Árið 2025 eru tæplega 1.200 umráðamenn dýra og dýraeigendur heimsóttir í reglubundnu eftirliti. Um 400 eftirlit verða svo til upp úr reglubundnu eftirliti sem hafa einkum þann tilgang að fylgja eftir frávikum sem koma upp við reglubundið eftirlit og varða fyrst og fremst dýravelferð. Við rýnum hverja einustu ábendingu sem er send inn og förum í óboðað eftirlit til dýraeigenda. Á nýliðnu ári bárust ríflega eitt þúsund ábendingar til Matvælastofnunar sem vörðuðu dýravelferð- og dýrasjúkdóma. 92% tilkynninga hafði verið lokað eða voru í vinnslu undir lok ársins. Sem betur fer er stærsti hluti dýraeigenda meðvitaður um dýravelferð og réttindi dýra og hugsar vel um dýrin sín. Þetta sýna niðurstöður eftirlits en skráð frávik í eftirlitsheimsóknum, sem varða dýravelferð, eru um 6% af heildarfjölda þeirra skoðunaratriða sem yfirfarin eru við reglubundið eftirlit og eftirfylgni þess eftirlits. Hins vegar eru oft misjafnir sauðir í mörgu fé eins og alls staðar í þjóðfélaginu. Í þeim tilfellum beitum við þeim úrræðum sem við höfum. Til að ná fram úrbótum þá beitum við dagsektum eða látum framkvæma verk á kostnað eigenda. Ef brot eru fullframin þá leggjum við á stjórnvaldssektir. Til frekari glöggvunar var dagsektum beitt í 44 tilvikum árið 2025 og 58 tilvikum árið áður. Álagðar stjórnvaldssektir voru 12 árið 2025 og 20 talsins árið 2024. Ef heilsu eða lífi dýra er ógnað í aðstæðum, eða við teljum öllum öðrum úrræðum hafi verið beit án árangurs, þá beitum við harðasta úrræðinu sem er vörslusvipting eiganda á dýrunum. EN, hafa ber í huga að hvert mál er einstakt! Því er ómögulegt að bera þau saman og ákvarðanir sem við tökum í mismunandi málum út frá þeim takmörkuðu upplýsingum sem við getum veitt almenningi og fjölmiðlum. Alls voru skráð ríflega 80 stjórnvaldsaðgerðamál sem vörðuðu dýravelferð árið 2025. Hvenær kærir Matvælastofnun dýravelferðarbrot til lögreglu? Við vitum öll að lögreglan er undir miklu álagi og mörg mál sem eru á þeirra borði. Stærsta hluta mála sem koma á borð Matvælastofnunar lýkur með stjórnvaldsákvörðun stofnunarinnar, s.s. stjórnvaldssektum. Samkvæmt lögum um velferð dýra ber að vísa einungis brotum sem teljast meiriháttar til lögreglu, þ.m.t. brotum sem framin eru með vítaverðum hætti eða aðstæður sem auka mjög á saknæmi brots. Dýravelferðarlögin gera þannig ráð fyrir að Matvælastofnun klári önnur mál, því að skynsamlegast er að sérfræðingar með fagþekkingu og menntun í málaflokknum eru best til þess fallnir að rannsaka brot á dýravelferð og tryggja framgang þeirra gegnum ákvarðanatöku um stjórnsýsluaðgerðir. Það er því lokaúrræði Matvælastofnunar þegar málið er talið það alvarlegt að nauðsynlegt sé jafnvel að dæma dýraeigenda frá því að eiga dýr, að mál séu kærð til lögreglu. Matvælastofnun getur bannað aðila tímabundið að halda dýr, en nauðsynlegt er að fá aðkomu lögreglu og dómstóla til að taka langtímaákvörðun. Matvælastofnun hefur kært 18 mál til lögreglu síðan 2016. Það erum við sem stígum inn í málin. Það erum við, sem jafnvel á kostnað okkar eigin öryggis, björgum dýrum úr hættulegum aðstæðum. Á okkur hefur verið ráðist. Við höfum verið beitt hótunum. Við höfum þurft að fá áverkavottorð vegna árása. Við erum smánuð á samfélagsmiðlum en væntanlega vegna ákveðins þekkingarleysis. Við höfum þurft að kæra okkar viðskiptavini til lögreglu vegna ofbeldis. Sem betur fer er þetta ekki algengt en langt frá því að vera óþekkt. Það erum við sem raunverulega vinnum að bættri dýravelferð með beinhörðum aðgerðum alla daga. Við störfum hjá Matvælastofnun því við brennum fyrir dýravelferð og við vitum að á hverjum degi erum við með okkar beinu aðgerðum að bæta heiminn smátt og smátt. Við erum auðvitað ekki hafin yfir gagnrýni og gerum mistök, enda erum við mannleg eins og allir. Við verðum líka að fylgja þeim ramma sem utan um okkur er settur með lögum og reglugerðum, enda teldist það til tíðinda ef lögreglan færi að taka hentisemisákvarðanir sem væru utan við þeirra heimildir. En það erum við sem á hverjum degi vöknum upp, tökum til starfa og getum talið upp öll þau dýr sem við höfum með beinum aðgerðum bjargað. Hversu margir geta sagt það? Höfundur er forstjóri Matvælastofnunar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matvælastofnun Dýr Dýraheilbrigði Mest lesið Hermenn Viðreisnar Jón Pétur Zimsen Skoðun Af hverju má ekki segja nei? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hverra hagsmuna er verið að gæta? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Vörðum leiðina afdráttarlaust í mögulegum aðildarviðræðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun Fullveldi, upplýst umræða og ábyrg ákvörðun Ingibjörg Isaksen Skoðun Evrópuhugsjónin á sakamannabekknum Arnar Sigurðsson Skoðun Bandaríkin draga úr hernaðarframlögum til NATO á hættu-og ófriðartímum Arnór Sigurjónsson Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ísland í sama flokki og Norður Kórea í námsefnisgerð? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Ísland og nýja djobbið Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Evrópuhugsjónin á sakamannabekknum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Bandaríkin draga úr hernaðarframlögum til NATO á hættu-og ófriðartímum Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Raunhæf áætlun um endurheimt íslenskra fiskimiða Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun STEM menntun þarf langtímasýn Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Af hverju má ekki segja nei? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hverra hagsmuna er verið að gæta? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þrír af hverjum fjórum Íslendingum styðja dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vörðum leiðina afdráttarlaust í mögulegum aðildarviðræðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hermenn Viðreisnar Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Fullveldi, upplýst umræða og ábyrg ákvörðun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hafró setur kíkinn fyrir blinda augað Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Er Borgarlína eina lausn umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins? Óskar Halldór Valtýsson skrifar Skoðun Að þora ekki að ræða við nágranna sína Ragnar Sverrisson skrifar Skoðun Umhverfisvænn söngvari óskast Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen skrifar Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvenær heyrði hann já? Helga Benediktsdóttir skrifar Skoðun Framúrakstur á ekki að ráðast af þolinmæði og heppni Hólmar Erlu Svansson skrifar Skoðun Skæri fyrir örvhenta Þórgunnur Oddsdóttir skrifar Skoðun Þegar þögn laganna verður að banni Bergur Hauksson skrifar Skoðun Ljósmyndin á öld lögvakans Kristján Logason skrifar Skoðun Af hverju heldur Gigtarfélagið fjölskylduhátíð? Stefán Magnússon skrifar Skoðun Er Ísland orðið of dýrt fyrir venjulegt líf? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Kosningaþynnkan: Gervigreind er svarið við hækkandi álögum Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Sjá meira
Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun
Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir Skoðun
Skoðun Bandaríkin draga úr hernaðarframlögum til NATO á hættu-og ófriðartímum Arnór Sigurjónsson skrifar
Skoðun Vörðum leiðina afdráttarlaust í mögulegum aðildarviðræðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlína eina lausn umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins? Óskar Halldór Valtýsson skrifar
Skoðun Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen skrifar
Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Kosningaþynnkan: Gervigreind er svarið við hækkandi álögum Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun
Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir Skoðun