„Hætt við því að byggingamarkaðurinn fari í frost“ Smári Jökull Jónsson skrifar 23. mars 2026 20:46 Una Jónsdóttir er aðalhagfræðingur Landsbankans. Vísir/Lýður Valberg Aðalhagfræðingur Landsbankans segir stöðuna á fasteignamarkaði óþægilega þar sem raunvirði fasteigna sé farið að lækka. Hlutfall eigna sem seldust yfir ásettu verði í janúar hefur ekki verið lægra í tæp sjö ár.
Fasteignamarkaðurinn hefur kólnað undanfarin misseri og í mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnun kemur fram að aðeins 7% íbúða seldust yfir nafnverði í janúar og hefur það hlutfall ekki verið lægra síðan í júní 2019. Þá fjölgaði útgefnum kaupsamningum í febrúar frá því í mánuðinum á undan en eru engu að síður færri en þeir voru nánast allt síðasta ár. Hlutfall íbúða sem selst hefur yfir ásettu verði hefur farið verulega dvínandi frá 2022.Vísir/Sara Aðalhagfræðingur Landsbankans segir gott framboð íbúða dempa verðþróun. „Það gerist voða sjaldan að við sjáum nafnverð lækka en við gætum séð raunverð lækka,“ sagði Una Jónsdóttir í viðtali í kvöldfréttum Sýnar. „Sú þróun hefur aðeins byrjað, það er að segja að íbúðaverð er ekki að hækka jafn hratt og almennt verðlag. Það er eitthvað sem við gætum séð núna. Þetta er kannski einhvers konar leiðrétting sem er að eiga sér stað því íbúðir hafa hækkað mjög mikið. Núna er kominn aðeins rólegri taktur.“ Þá kemur fram í viðhorfskönnun HMS sem lögð er fyrir fasteignasala að verðlækkanir í söluferli séu orðnar algengari. Markaðurinn núna sé svokallaður kaupendamarkaður. „Kannski þýðir það að fólk hefur meiri tíma, getur skoðað fleiri fasteignir. Mér skilst að það séu óvenju margar íbúðir á sölu akkúrat núna. Þannig að ég held að þetta sé góður tími fyrir fólk að skoða sig um og geta tekið meðvitaðri ákvarðanir heldur en þegar er einhvers konar stress í gangi.“ Fjöldi auglýstra eigna á höfuðborgarsvæðinu hefur aukist.Vísir/Sara Íbúðum sem auglýstar eru til sölu hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu misserin. Voru auglýstar eignir á höfuðborgarsvæðinu um þrjú þúsund og sex hundruð talsins um síðustu mánaðamót samanborið við tæplega fimmtán hundruð fyrir þremur árum síðan. Una segir eftirspurn geta breyst á einni nóttu og að fjölgun óseldra íbúða geti haft afleiðingar. „Það er hætt við því að byggingamarkaðurinn fari í frost sem við viljum ekki heldur því það kemur síðan að því að eftirspurnin verði meiri. Þetta er svolítið óþægileg staða sem við erum í akkúrat núna en ég held að það hljóti að jafna sig með tímanum.“ Vísir/Sara Uppfært: Inngangur fréttarinnar hefur verið leiðréttur. Fyrst stóð að hlutfall eigna sem seldust undir ásettu verði hefði ekki verið lægra í sjö ár. Hið rétta er að hlutfallið á við eignir sem seldust yfir ásettu verði.
Fasteignamarkaður Húsnæðismál Byggingariðnaður Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Sjá meira