Státum af klárasta barþjóni Evrópu Freyja Þórisdóttir skrifar 26. mars 2026 00:01 Róbert Aron Vídó Proppe var krýndur Íslandsmeistari barþjóna í apríl 2025. Skjáskot/Facebook Á dögunum stóð yfir Evrópumótið í kokteilagerð sem fram fór í Protaras á Kýpur. Róbert Aron Proppé, Íslandsmeistari í kokteilagerð, tryggði Íslandi sæti á verðlaunapalli en hann fékk einnig sérverðlaun fyrir besta árangur í skriflegu prófi.
Þetta kemur fram í tilkynningu Barþjónaklúbbs Íslands. Róbert, sem er ekki nema 22 ára gamall, hafnaði í 3. sæti og hlaut þar með bronsverðlaun. Hann lét þó ekki þar við sitja heldur hlaut einnig Arnarverðlaunin, á ensku Eagle Award, sem veitt eru efnilegum barþjóni undir 25 ára aldri með hæstu heildareinkunn keppninnar. Hann keppti með kokteilinn Pillow Talk, sem inniheldur gin, ástaraldin-puré, kókoshnetusíróp og engiferbjór. Drykkurinn var framreiddur í „Long Drink“-flokki, þar sem keppendur eru metnir bæði á bragð, framsetningu og tæknilega útfærslu. Viðurkenning fyrir þekkinguna Evrópumótið gerir miklar kröfur til þátttakenda en auk verklegrar keppni þurfa þeir að standast ítarlegt skriflegt próf sem reynir á kunnáttu þeirra og minni. Þar skaraði Róbert fram úr og tryggði sér efsta sæti í þeim hluta keppninnar. Róbert alveg í skýjunum með árangurinn á Evrópumótinu í kokteilagerð.Aðsend „Þetta er ótrúlega ánægjulegt og stórt skref fyrir mig,“ segir Róbert sem starfar á kokteilbarnum Drykk í Pósthús Mathöll í Austurstræti. „Það er mikill heiður að standa á verðlaunapalli og fá jafnframt viðurkenningu fyrir þekkinguna,“ bætir hann við. Með Róberti í för var Pétur Hafsteinn Úlfsson Kolka úr þjálfarateymi Barþjónaklúbbs Íslands, sem segir árangurinn endurspegla mikla vinnu og að „undirbúningurinn hafi verið krefjandi en Róbert sýnt einstakan metnað og fagmennsku í gegnum allt ferlið“. Teitur Riddermann Schiöth, forseti Barþjónaklúbbsins, segir einnig í samtali við blaðamann að þessi árangur Róberts sýni fram á að íslenskir barþjónar geti keppt við þá allra bestu á alþjóðavettvangi. Hann segist einnig hreykinn af því að við Íslendingar státum af því sem mætti nú kalla „klárasta barþjón Evrópu“.
Drykkir Áfengi Íslendingar erlendis Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira