Viðskipti innlent

Lindex opnar þar sem Next var áður

Atli Ísleifsson skrifar
Um verður að ræða stærstu Lindex-verslun sem hefur verið rekin á Íslandi.
Um verður að ræða stærstu Lindex-verslun sem hefur verið rekin á Íslandi. Aðsend

S4S ehf. hefur undirritað leigusamning við Kringluna um nýtt verslunarrými fyrir Lindex á Íslandi. Verslunin mun opna í maí og verður staðsett í 955 fermetra rými við hlið H&M þar sem Next hefur verið til húsa undanfarin ár.

Í tilkynningu segir að þetta verði stærsta verslun sem Lindex hefur opnað á Íslandi. 

Fram kemur að með nýju og stærra rými skapist tækifæri til að bjóða enn fjölbreyttara vöruúrval og bætta verslunarupplifun í samræmi við nýjustu verslunarstaðla Lindex.

Tinna Sigrún Pétursdóttir er markasstjóri S4S.Aðsend

Haft er eftir Tinnu Sigrúnu Pétursdóttur, markaðsstjóra S4S, að það sé félaginu mikil ánægja að vera komin með verslunarrými í Kringlunni. „Netverslunin og Lindex-klúbburinn hafa farið afar vel af stað og við finnum að það er mikil eftirvænting hjá viðskiptavinum til að geta heimsótt nýjar og glæsilegar Lindex verslanir“.

Unnur María Pálmadóttir.

Þá er haft eftir Unni Maríu Pálmadóttur, markaðsstjóra Kringlunnar, að Lindex hafi um langt skeið skipað mikilvægan sess í hugum viðskiptavina Kringlunnar og notið þar mikilla vinsælda. „Það er okkur því sérstaklega ánægjulegt að Lindex verði áfram hluti af Kringlunni og styrki enn það fjölbreytta úrval verslana sem við bjóðum viðskiptavinum okkar.“

Fyrr í mánuðinum var greint frá í að S4S hafi skrifað undir samning um opnun verslunar í Smáralind þar sem Útilífs var áður. 

Fyrirtækið S4S tók formlega við Lindex-umboðinu 1. mars síðastliðinn af LKA19 sem er í eigu hjónanna Alberts Þórs Magnússonar og Lóu Dagbjartar Kristjánsdóttur.


Tengdar fréttir

Opna Lindex þar sem Útilíf var

S4S hefur undirritað leigusamning við Smáralind um nýtt verslunarrými fyrir Lindex á Íslandi. Rýmið er 675 fermetrar að stærð og er staðsett við hlið Hagkaupa í Smáralind, þar sem Útilíf var áður til húsa.

Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi

Nýjar verslanir Lindex í Kringlunni, Smáralind og á Akureyri verða opnaðar á vormánuðum. Fyrirtækið S4S tekur formlega við Lindex-umboðinu 1. mars næstkomandi og opnar fyrir netsölu í gegnum lindex.is í byrjun mars, þar sem bilið verður brúað fram að opnun verslananna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×