Meint kynferðisbrotamál rannsakað í tvígang en fellt niður Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. mars 2026 10:26 Leikskólinn Tröllaborgir er í Giljahverfinu á Akureyri. Akureyrarbær Meint kynferðisofbeldi gegn barni á leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri var rannsakað í tvígang en fellt niður í bæði skiptin. Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að enginn rökstuddur grunur sé um brot gegn barninu. Hann á að hafa starfað í sex vikur á leikskólanum eftir að málið kom upp.
Í fréttatilkynningu frá Akureyrarbæ fyrr í vikunni kom fram að tilkynnt hefði verið um meint kynferðisbrot gegn barni haustið 2024. Starfsmanni var vikið frá störfum í kjölfarið en foreldrar leikskólabarnanna voru ekki látnir vita. Rúv greindi frá því í gær að starfsmaðurinn hafi haldið störfum áfram í sex vikur eftir að málið kom upp. Brotaþoli var stúlka sem var fimm ára gömul haustið 2024 og sagði hún sjálf frá brotinu. Lögreglan á Norðurlandi eystra sendi frá sér fréttatilkynningu um málið nú í morgun sem segir að barnavernd hafi tilkynnt lögreglu um málið vegna upplýsinga frá aðstandana stúlkunnar. Hinn grunaði var ungur maður sem þekkti stúlkuna einnig vegna annarra tengsla en sem starfsmaður leikskóla. Maðurinn var sakaður um að hafa kynferðislega áreitt barnið með því að kyssa það en segir lögreglan að við rannsókn málsins hafi ekkert komið fram sem studdi framburð aðstandanda. Rannsókn málsins var hætt í október 2024 en sú ákvörðun var kærð til Ríkissaksóknara. „Áður en Ríkissaksóknari hafði tekið afstöðu í málinu komu frekari upplýsingar frá barnavernd um að maðurinn hafi játað kynferðislega áreitni fyrir ættingja sínum líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum. Lögregla hóf þá rannsókn á málinu að nýju.“ Ekkert hafi komið fram er rannsóknin hófst öðru sinni og var henni hætt á ný í desember 2024. Sú ákvörðun var einnig kærð svo ákvörðunin var kærð til Ríkissaksóknara sem staðfesti ákvörðun lögreglu í apríl 2025. „Barninu var tilnefndur réttargæslumaður vegna rannsóknar málsins í tvígang og nú hefur þriðji lögmaðurinn tekið málið að sér. Lögregla hefur óskað eftir því á fundum með foreldrum að þeir komi nýjum upplýsingum um meint brot á framfæri við lögreglu hafi þeir slíkt. Engar upplýsingar hafa borist. Í málinu liggur ekki fyrir rökstuddur grunur um að maðurinn hafi gerst brotlegur gagnvart barninu.“
Akureyri Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Leikskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira