Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Kjartan Kjartansson skrifar 31. mars 2026 14:00 Guðrún Elín Pálsdóttir (f.v.) stendur frammi fyrir fyrsta mótframboðinu frá því að hún varð formaður VLFS fyrir tíu árum. Hún sagði Bergþóru Haralds Eiðsdóttur (t.h.) mótframbjóðanda sínum upp störfum fyrir mánuði. Vísir Væntanlegur mótframbjóðandi formanns Verkalýðsfélags Suðurlands til tíu ára var rekinn sem bókari félagsins um síðustu mánaðamót. Hann gagnrýnir að formanns- og stjórnarkjör hafi enn ekki verið auglýst þrátt fyrir að formaðurinn hafi þegar lýst yfir framboði.
Bergþóra Haralds Eiðsdóttir hyggst bjóða fram lista gegn A-lista Guðrúnar Elínar Pálsdóttur, formanns og framkvæmdastjóra Verkalýðsfélags Suðurlands (VLFS). Þetta verður fyrsta mótframboðið sem Guðrún Elín fær en hún hefur verið sjálfkjörin formaður undanfarin tíu ár. Hún hefur jafnframt starfað á skrifstofu félagsins í tæpan aldarfjórðung. Guðrún Elín sagði Bergþóru upp störfum með bréfi um síðustu mánaðamót. Í samtali við Vísi segir Bergþóra að vísað hafi verið til „heildarmats á samstarfi á vinnustaðnum“ sem rökstuðnings fyrir uppsögninni. Hún hafi verið byrjuð að undirbúa framboð sitt áður en hún var rekin en hún viti ekki hvort Guðrúnu Elínu hafi verið kunnugt um það þegar hún sagði henni upp störfum fyrir mánuði. Guðrún Elín staðfestir að Bergþóru hafi verið sagt upp störfum en segir að hún gefi ástæður þess ekki upp. Hún segist jafnframt ekki hafa haft neina vitneskju um að Bergþóra hygði á framboð. Mótframboðið hefur rýmri frest Þrátt fyrir að bæði Guðrún Elín og Bergþóra hafi auglýst framboð sín opinberlega liggur enn ekki fyrir hvenær atkvæðagreiðslan verður haldin. Guðrún Elín segir að dagsetning liggi ekki fyrir en atkvæðagreiðsla verði líklega haldin í apríl eða maí. Þegar kjörstjórn félagsins hafi ákveðið dagsetningu þurfi A-listi uppstillingarnefndar að liggja fyrir tveimur vikum fyrir kjördag. Mótframbjóðendur hafa viku lengur til þess að leggja fram sinn lista, allt þar til sjö dagar eru til kjördags. Guðrún Elín Pálsdóttir, formaður Verkalýðsfélags Suðurlands.Vísir/Magnús Hlynur Bergþóra gagnrýnir að dagsetning kjörsins hafi enn ekki verið auglýst og að upplýsingar um hverjir sitja í uppstillingarnefnd og trúnaðarráði VLFS hafi verið fjarlægðar af vefsíðu félagsins. „Ég veit ekki hvenær verður kosið, ég veit ekki hvernig verður kosið. Mér finnst þetta mjög óheiðarlegt. Við erum verkalýðsfélag og það á að vera lýðræði. Stjórnin á að fagna öllum framboðum og stjórn og uppstillinganefnd, þó að hún setji þennan lista fram, eiga að vera hlutlaus,“ segir Bergþóra. Hún bendir á að fólk sem hafi setið í uppstillinganefnd þegar upplýsingar voru opinberar um hana hafi lýst yfir stuðningi við framboð Guðrúnar Elínar opinberleg. Fær ekki aðgang að félagaskrá Þar til kjörið verður auglýst segist Bergþóra ekki geta skilað inn framboðslista eða fengið aðgang að félagaskrá sem Guðrún Elín hafi í krafti stöðu sinnar. „Þannig að ég næ ekkert í félagsmenn. Á meðan get ég ekkert kynnt mig. Þetta er ekki lýðræðislegt,“ segir Bergþóra. Í grein sem Bergþóra skrifaði á Vísi í dag er henni tíðrætt um traust og gagnsæi innan verkalýðsfélagsins. „Félagsmenn eiga rétt á að vita hvernig og hvaða ákvarðanir eru teknar, hvaða nefndir starfa á þeirra vegum, hvernig kosningum er háttað og hvaða leikreglur gilda. Lýðræði á ekki að vera tæknilegt atriði sem aðeins fáir skilja. Það á að vera sýnilegt,“ skrifar hún. Í samtali við Vísi bendir hún á að hvorki fundargerðir stjórnar VLFS né ársskýrslur séu aðgengilegar á vefsíðu félagsins. Um sautján hundruð manns eru í VLFS samkvæmt vefsíðu félagsins. Það varð til við samruna þriggja verkalýðsfélaga á Suðurlandi árið 2011: Verkalýðsfélagsins Rangæings, Verkalýðsfélagsins Samherja og Verkalýðsfélagsins Víkings. Félagssvæðið er frá Þjórsá í vestri að Lómagnúpi í austri. Fréttin var uppfærð með áréttingu Guðrúnar Elínar um að hún hefði ekki vitað af því að Bergþóra hygði á framboð þegar ákvörðunin var tekin um að segja henni upp störfum.
Stéttarfélög Árborg Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Sjá meira