Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Agnar Már Másson skrifar 6. apríl 2026 09:36 Majid Khademi er sagður hafa verið drepinn af Ísraelsher. Íranski byltingarvörðurinn segir í yfirlýsingu að Majid Khademi, forstjóri yfirmaður leyniþjónustu íranska hersins, hafi verið felldur af Ísraelsher og Bandaríkjaher. Ísraelsmenn gangast við þessu en varnarmálaráðherrann Israel Katz og Ísraelsher lýstu yfir ábyrgð í yfirlýsingum á samfélagsmiðlum.
Khademi tók við af Mohammad Kazemi, þegar hann var drepinn í ísraelskri árás þann 15. júní 2025 í tólf daga stríði Írans og Ísraels. Þegar mótmæli stóðu yfir í kjölfar mótmæla gegn stjórnvöldum í byrjun árs sakaði Khademi Donald Trump Bandaríkjaforseta um að kynda undir því sem íranskir ráðamenn hafa kallað áætlun um „sviðsett morð“ sem hafi miðað að því að auka mannfall til að réttlæta erlenda hernaðaríhlutun. Khademi hafði þá haldið því fram að hátt í tíu erlendar leyniþjónustur, þar á meðal nethernaðar- og leyniþjónustudeild Ísraels, hefðu átt þátt í að skipuleggja mótmælin í Íran í janúar, þar sem fjöldi almennra borgara var felldur af öryggissveitum landsins, samkvæmt Human Rights Activists News Agency. Það er afar sjaldan sem Íranir hafa staðfest fall háttsettra hermanna að eigin frumkvæði. Yfirleitt hafa þeir ekki gert það fyrr en Ísraelsmenn eða Bandaríkjamenn hafa þegar lýst yfir ábyrgð, en svo gerðist ekki í þetta skipti, þar sem Íranir greindu frá andlátinu að fyrra bragði. Í ágúst á síðasta ári hvatti Khademi þingið til að setja það í forgang að ljúka við innra netkerfi Írans þar sem það væri nauðsynlegt til að „vernda fullveldi“ netrýmis landsins. Íran hefur verið án internetsambands síðan stríðið hófst 28. febrúar, þótt sumar innlendar vefsíður og öpp séu enn aðgengileg innan landsins.
Ísrael Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða miðjuna saman Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira