Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Eiður Þór Árnason skrifar 6. apríl 2026 18:32 Hjálparsveit Skáta Hveragerði mokar upp bíl í Kömbunum. Landsbjörg Dagurinn hefur verið annasamur hjá björgunarsveitum í austanbylnum sem gengur yfir landið. Á sjötta tímanum var óskað eftir aðstoð í Reykjanesbæ vegna yfirvofandi foktjóns. Þá var viðbragðsáætlun vegna flugslyss virkjuð á Akureyri í dag.
Allar björgunarsveitir í Eyjafirði voru ræstar út þegar einkaþota í flugtaki varð fyrir vélarbilun og sneri við til öryggislendingar á Akureyrarflugvelli. Vélin lenti heilu og höldnu rétt um klukkan 16:20, að því er fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá því að flugslysaáætlun hafi verið virkjuð á neyðarstigi klukkan 16:00 í dag. Ellefu farþegar hafi verið um borð í einkaflugvélinni. „Þegar ræst er út á neyðarstigi fyrir Akureyrarflugvöll þá virkjast allar viðbragðseiningar í Eyjafirði sem og landsdekkandi ábyrgðar- og þjónustueiningar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningu frá lögreglu. Neyðarstigi hafi verið aflýst þegar vélin lenti klukkan 16:26. Öryggisatriði að hafa viðveru í Grindavík Flest verkefnin hjá björgunarsveitum landsins hafa verið á Suðurlandi og suðvesturhorninu í dag. Voru þær meðal annars kallaðar út á Hellu og Hvolsvelli til að bregðast við foktjóni víða á svæðinu þar sem þakplötur og klæðning fuku af húsum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Á sjötta tímanum var óskað eftir aðstoð í Grindavík vegna óveðursins. Ekkert sérstakt atvik kallaði á viðveru björgunarsveitarmanna í Grindavík í kvöld en það var talið öruggara í ljósi stöðunnar, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Sjö bílar fastir austur við Mývatn Á Norðurlandi aðstoðuðu björgunarsveitarmenn að minnsta kosti sjö bíla sem sátu fastir við Biskupsháls, um 50 kílómetra austur við Mývatn. Í Borgarfirði var Björgunarsveitin Ok kölluð út til að sinna sjúkraflutningi vegna slæmrar færðar og veðurs. Þá voru björgunarsveitir á Tálknafirði og Bíldudal boðaðar út vegna nokkurra bíla sem sátu fastir á Hálfdán. Voru um tíu manns flutt niður af fjallveginum annars vegar á Tálknafjörð og hins vegar á Bíldudal, að sögn Landsbjargar. Föst við Þingvelli „Á Þingvöllum voru þó nokkuð margir sem komust ekki leiðar sinnar. Björgunarsveitir losuðu milli 10 og 15 bíla við Miðfell, austanvert við Þingvallavatn ásamt því að aðstoða nokkurn fjölda manns sem voru við þjónustumiðstöðina í þjóðgarðinum. Þjónustumiðstöðin var lokuð og fylgdu björgunarsveitir fólkinu til byggða. Einhverjir bílar, t.d. húsbílar voru skildir eftir þar,“ segir í tilkynningu Landsbjargar. Fjölmargir hafi lent í vandræðum í Þrengslum og á Hellisheiði og snjóbíll verið notaður til að losa bíla og koma fólki niður úr Þrengslunum. Þá fylgdu björgunarsveitir fólki til byggða. Í Kjósinni lentu nokkrir ferðalangar á Kjósarskarðsvegi í vandræðum fyrr í dag og fóru björgunarsveitir úr Reykjavík og af Kjalarnesi þeim til aðstoðar, að sögn Landsbjargar. Björgunarsveitarmenn hafa þar að auki víða sinnt vegalokunum í dag, meðal annars á Suðurnesjum. Fylgjast má með nýjustu vendingum í dag í óveðursvaktinni á Vísi. Fréttin hefur verið uppfærð.
Veður Björgunarsveitir Fréttir af flugi Tengdar fréttir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Páskahretið hefur sett strik í reikning ferðalanga en gular og appelsínugular viðvaranir tóku gildi um allt land eftir hádegi í dag. Í vaktinni hér að neðan verður fylgst með nýjustu vendingum. 6. apríl 2026 07:21 Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira
Vaktin: Austanbylur annan í páskum Páskahretið hefur sett strik í reikning ferðalanga en gular og appelsínugular viðvaranir tóku gildi um allt land eftir hádegi í dag. Í vaktinni hér að neðan verður fylgst með nýjustu vendingum. 6. apríl 2026 07:21