Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. apríl 2026 16:52 Halla Bergþóra Björnsdóttir er nýr lögreglustjóri. Vísir/Einar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur skipað Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, í embætti ríkislögreglustjóra. Hún tekur við embætti mánudaginn 20. apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins.
Halla Bergþóra er 56 ára og lauk embættisprófi frá Háskóla Íslands árið 1995. Hún hefur verið lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu síðan 2020 sem er stærsta lögregluembætti landsins. Halla Bergþóra hefur nítján ára reynslu af stjórnun lögregluembætta en síðustu sautján ár hefur hún verið settur eða skipaður lögreglustjóri í þremur embættum, meðal annars hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra auk þess sem hún var sýslumaður á Akranesi á árunum 2009 til 2014. Halla Bergþóra hefur sem lögreglustjóri leitt umfangsmikil verkefni, verið farsæll stjórnandi og stýrt stórum hópi starfsfólks hjá ólíkum lögregluembættum. Halla Bergþóra var formaður lögreglustjórafélagsins á þeim tíma sem lögreglustjóraembættin voru stofnuð, kom að þeirri vinnu í samstarfi við ráðuneytið og átti þátt í að móta nýtt embætti frá grunni. Dómsmálaráðuneytið auglýsti stöðuna lausa í desember í fyrra. Þetta var gert eftir að Sigríður Björk Guðjónsdóttir lét af embætti í kjölfar gagnrýni um greiðslur til ráðgjafarfyrirtækis, en á sama tíma var tilkynnt að hún tæki við stöðu sérfræðings í aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi í dómsmálaráðuneytinu. Embætti ríkislögreglustjóra var auglýst laust til umsóknar þann 19. desember og sóttu fjórir um. Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur/aðstoðarsaksóknari og staðgengill lögreglustjóra, Birgir Jónasson settur fangelsismálastjóri og Grímur Hergeirsson settur ríkislögreglustjóri sóttu um embættið auk Höllu Bergþóru.
Lögreglan Skipun ríkislögreglustjóra Vistaskipti Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira