Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Agnar Már Másson skrifar 16. apríl 2026 16:36 Deildarstjóri í Stapaskóla dregur fram nokkuð dökka mynd af aðbúnaði skólans í tölvupósti til félaga í nærsamfélaginu þar sem óskað er eftir aðstoð við að bæta aðbúnað í skólanum. Mynd úr safni. Vísir/Vilhelm Nokkur góðgerðarfélög og fyrirtæki í Reykjanesbæ fengu í vikunni póst frá aðstoðarskólastjóra Stapaskóla þar sem óskað var eftir aðstoð við að efla aðbúnað í skólanum. Í skeytinu er dregin upp fremur dökk mynd af aðbúnaði í skólanum en tafir hafa orðið á uppbyggingu hans og nemendur enn margir í bráðabirgðahúsnæði. Stapaskóli er nýlegur skóli sem rís við Dalsbraut í Innri-Njarðvík en hann er hvort tveggja leikskóli og skóli. Fyrstu börnin hófu þar skólagöngu árið 2020 en á meðan framkvæmdir standa yfir hefur skólinn verið starfræktur að miklu leyti í bráðabirgðahúsnæði og yngri deildir eru í gámahúsnæði á bílastæðinu. Í tölvuskeyti sem Vísir hefur undir höndum biðlar aðstoðarskólastjórinn til félaga í Reykjanesbæ að rétta fram hjálparhönd. Sú sem sendi póstinn var Elísabet Kjartansdóttir, sem er nýlega tekin við sem aðstoðarskólastjóri, en hún vildi ekki tjá sig um póstinn þegar Vísir sló á þráðinn til hennar. Elísabet tekur fram í póstinum að hún vilji prófa óhefðbundnar leiðir til að efla aðbúnað í skólanum og leita út til samfélagsins. Hún nefnir að þó svo að gámahúsnæði við bílastæði sé ekki alslæmt þá henti það samt illa sem leikskólahúsnæði. Gámarnir hafi verið í notkun í 10 ár en viðhald lítið. „Það er alltaf verið að bíða eftir því að hafist verði handa við að byggja leikskólann og við erum svolítið á bið sem er eðlilegt á einhvern hátt en þó ekki ákjósanlegt.“ Póstur aðstoðarskólastjóra til fyrirtækja og félaga í Reykjanesbæ Góðan daginn, Elísabet heiti ég og er nýr leikskólastjóri við leikskólastig Stapaskóla. Ég tók við starfinu núna 1. mars s.l. Ég ætla að prófa að fara óhefðbundna leið til þess að efla skólann, aðbúnað og efniviðinn sem við búum við. Málið er að skólinn er rekinn í bráðabirgðarhúsnæði við skólann. Það er enn ekki byrjað á að byggja skólahúsnæði leikskólans og við erum í gámahúsnæði við bílastæðið. Húsnæðið sjálft er ekki alsæmt þó það henti vissulega ekki sem leikskólahúnsæði. Gámarnir hafa þó verið í notkun í 10 ár og viðhald hefur verið lítið. Það er alltaf verið að bíða eftir því að hafist verði handa við að byggja leikskólann og við erum svolítið á bið sem er eðlilegt á einhvern hátt en þó ekki ákjósanlegt. Mér finnst vanbúnaður töluverður hjá okkur en ég er búin að fara og skoða aðra leikskóla í bæjarfélaginu. Leikföng og efniviður þarfnast endurnýjunar auk þess sem ekki er mikið til yfirhöfuð, okkur vantar sjónvörp inn á tvær deildir (notum þau í kennslu með nemendum), bókakostur er ekki nægur, kennsluefni vantar fyrir stoðþjónustuna, gaman væri að eiga skynjunarborð og svo mætti lengi telja. Auk þess sem ég mig langar að koma upp litlu útisvæði fyrir yngstu nemendurna okkar hér við leikskólann en við þurfum að labba ansi langa leið á útisvæðið okkar sem er við hinn enda Stapaskóla þar sem leikskólinn mun rísa fyrir rest. Mér þykir því mikilvægt að koma upp leiksvæði fyrir yngstu börnin svo að ekki þurfi að fara svona langa leið með þau þegar að útveru kemur. Við þurfum ekki mikið en sandkassi og lítil rennibraut myndu t.d. gera mikið fyrir okkur. Draumurinn er svo að mála aðeins í lit inn á deildum og koma upp fallegum eldhúskrók sem hægt er að nota í vinnu með börnunum. Fjárhagur leikskólastigs er þó ekki mikill. Skólunum er sniðin lítill stakkur og engan veginn hægt að fjármagna nema afar lítinn hluta af því sem þarf að gera. Þess vegna hef ég ákveðið að leita aðeins út í samfélagið og óska eftir styrkjum svo að við getum eflt enn betur það góða starf sem að við vinnum hér við leikskólastig Stapaskóla. Hvort eitthvað komi út því er svo önnur saga en ég vil sannarlega trúa því að einhverjir munu leggja okkur lið. Hlýjar kveðjur, Elísabet Kjartansdóttir Hún nefnir einnig að sjónvörp vanti til kennslu inn á tvær deildir, bókakostur sé ónægur og kennsluefni vanti fyrir stoðþjónustu. Þá segir í póstinum að skólafólk langi að koma fyrir útisvæði fyrir yngstu nemendur skólans svo þeir þurfi ekki að labba langa leið að útisvæðinu, sem sé á hinum enda skólalóðarinnar en þar mun leikskólinn svo rísa fyrir rest. „Mér þykir því mikilvægt að koma upp leiksvæði fyrir yngstu börnin svo að ekki þurfi að fara svona,“ skrifar aðstoðarskólastjórinn. „Skólunum er sniðinn lítill stakkur og engan veginn hægt að fjármagna nema afar lítinn hluta af því sem þarf að gera. Þess vegna hef ég ákveðið að leita aðeins út í samfélagið og óska eftir styrkjum svo að við getum eflt enn betur það góða starf sem við vinnum hér á leikskólastigi Stapaskóla. Hvort eitthvað komi út úr því er svo önnur saga en ég vil sannarlega trúa því að einhverjir muni leggja okkur lið.“ Reykjanesbær Börn og uppeldi Leikskólar Skóla- og menntamál Tengdar fréttir Innlit í nýtt íþróttahús Njarðvíkinga: „Þetta er þvílíkt mannvirki“ Njarðvíkingar bíða spenntir eftir því að taka nýtt íþróttahús í notkun en framkvæmdir eru á lokametrunum suður með sjó. 12. júlí 2024 08:01 Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Nýjustu sundlaug landsins má finna í Stapaskóla í Njarðvík. Laugin nýja þykir einkar glæsileg, en skólinn er orðinn að eins konar félagsmiðstöð fyrir íbúa. 13. ágúst 2025 09:54 Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Nú þegar fjórar vikur og fjórir dagar eru til sveitarstjórnarkosninga blásum við á fréttastofunni til kosningapallborðs þar sem oddvitar Reykjanesbæjar munu eiga sviðið. 14. apríl 2026 12:46 Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira
Stapaskóli er nýlegur skóli sem rís við Dalsbraut í Innri-Njarðvík en hann er hvort tveggja leikskóli og skóli. Fyrstu börnin hófu þar skólagöngu árið 2020 en á meðan framkvæmdir standa yfir hefur skólinn verið starfræktur að miklu leyti í bráðabirgðahúsnæði og yngri deildir eru í gámahúsnæði á bílastæðinu. Í tölvuskeyti sem Vísir hefur undir höndum biðlar aðstoðarskólastjórinn til félaga í Reykjanesbæ að rétta fram hjálparhönd. Sú sem sendi póstinn var Elísabet Kjartansdóttir, sem er nýlega tekin við sem aðstoðarskólastjóri, en hún vildi ekki tjá sig um póstinn þegar Vísir sló á þráðinn til hennar. Elísabet tekur fram í póstinum að hún vilji prófa óhefðbundnar leiðir til að efla aðbúnað í skólanum og leita út til samfélagsins. Hún nefnir að þó svo að gámahúsnæði við bílastæði sé ekki alslæmt þá henti það samt illa sem leikskólahúsnæði. Gámarnir hafi verið í notkun í 10 ár en viðhald lítið. „Það er alltaf verið að bíða eftir því að hafist verði handa við að byggja leikskólann og við erum svolítið á bið sem er eðlilegt á einhvern hátt en þó ekki ákjósanlegt.“ Póstur aðstoðarskólastjóra til fyrirtækja og félaga í Reykjanesbæ Góðan daginn, Elísabet heiti ég og er nýr leikskólastjóri við leikskólastig Stapaskóla. Ég tók við starfinu núna 1. mars s.l. Ég ætla að prófa að fara óhefðbundna leið til þess að efla skólann, aðbúnað og efniviðinn sem við búum við. Málið er að skólinn er rekinn í bráðabirgðarhúsnæði við skólann. Það er enn ekki byrjað á að byggja skólahúsnæði leikskólans og við erum í gámahúsnæði við bílastæðið. Húsnæðið sjálft er ekki alsæmt þó það henti vissulega ekki sem leikskólahúnsæði. Gámarnir hafa þó verið í notkun í 10 ár og viðhald hefur verið lítið. Það er alltaf verið að bíða eftir því að hafist verði handa við að byggja leikskólann og við erum svolítið á bið sem er eðlilegt á einhvern hátt en þó ekki ákjósanlegt. Mér finnst vanbúnaður töluverður hjá okkur en ég er búin að fara og skoða aðra leikskóla í bæjarfélaginu. Leikföng og efniviður þarfnast endurnýjunar auk þess sem ekki er mikið til yfirhöfuð, okkur vantar sjónvörp inn á tvær deildir (notum þau í kennslu með nemendum), bókakostur er ekki nægur, kennsluefni vantar fyrir stoðþjónustuna, gaman væri að eiga skynjunarborð og svo mætti lengi telja. Auk þess sem ég mig langar að koma upp litlu útisvæði fyrir yngstu nemendurna okkar hér við leikskólann en við þurfum að labba ansi langa leið á útisvæðið okkar sem er við hinn enda Stapaskóla þar sem leikskólinn mun rísa fyrir rest. Mér þykir því mikilvægt að koma upp leiksvæði fyrir yngstu börnin svo að ekki þurfi að fara svona langa leið með þau þegar að útveru kemur. Við þurfum ekki mikið en sandkassi og lítil rennibraut myndu t.d. gera mikið fyrir okkur. Draumurinn er svo að mála aðeins í lit inn á deildum og koma upp fallegum eldhúskrók sem hægt er að nota í vinnu með börnunum. Fjárhagur leikskólastigs er þó ekki mikill. Skólunum er sniðin lítill stakkur og engan veginn hægt að fjármagna nema afar lítinn hluta af því sem þarf að gera. Þess vegna hef ég ákveðið að leita aðeins út í samfélagið og óska eftir styrkjum svo að við getum eflt enn betur það góða starf sem að við vinnum hér við leikskólastig Stapaskóla. Hvort eitthvað komi út því er svo önnur saga en ég vil sannarlega trúa því að einhverjir munu leggja okkur lið. Hlýjar kveðjur, Elísabet Kjartansdóttir Hún nefnir einnig að sjónvörp vanti til kennslu inn á tvær deildir, bókakostur sé ónægur og kennsluefni vanti fyrir stoðþjónustu. Þá segir í póstinum að skólafólk langi að koma fyrir útisvæði fyrir yngstu nemendur skólans svo þeir þurfi ekki að labba langa leið að útisvæðinu, sem sé á hinum enda skólalóðarinnar en þar mun leikskólinn svo rísa fyrir rest. „Mér þykir því mikilvægt að koma upp leiksvæði fyrir yngstu börnin svo að ekki þurfi að fara svona,“ skrifar aðstoðarskólastjórinn. „Skólunum er sniðinn lítill stakkur og engan veginn hægt að fjármagna nema afar lítinn hluta af því sem þarf að gera. Þess vegna hef ég ákveðið að leita aðeins út í samfélagið og óska eftir styrkjum svo að við getum eflt enn betur það góða starf sem við vinnum hér á leikskólastigi Stapaskóla. Hvort eitthvað komi út úr því er svo önnur saga en ég vil sannarlega trúa því að einhverjir muni leggja okkur lið.“
Póstur aðstoðarskólastjóra til fyrirtækja og félaga í Reykjanesbæ Góðan daginn, Elísabet heiti ég og er nýr leikskólastjóri við leikskólastig Stapaskóla. Ég tók við starfinu núna 1. mars s.l. Ég ætla að prófa að fara óhefðbundna leið til þess að efla skólann, aðbúnað og efniviðinn sem við búum við. Málið er að skólinn er rekinn í bráðabirgðarhúsnæði við skólann. Það er enn ekki byrjað á að byggja skólahúsnæði leikskólans og við erum í gámahúsnæði við bílastæðið. Húsnæðið sjálft er ekki alsæmt þó það henti vissulega ekki sem leikskólahúnsæði. Gámarnir hafa þó verið í notkun í 10 ár og viðhald hefur verið lítið. Það er alltaf verið að bíða eftir því að hafist verði handa við að byggja leikskólann og við erum svolítið á bið sem er eðlilegt á einhvern hátt en þó ekki ákjósanlegt. Mér finnst vanbúnaður töluverður hjá okkur en ég er búin að fara og skoða aðra leikskóla í bæjarfélaginu. Leikföng og efniviður þarfnast endurnýjunar auk þess sem ekki er mikið til yfirhöfuð, okkur vantar sjónvörp inn á tvær deildir (notum þau í kennslu með nemendum), bókakostur er ekki nægur, kennsluefni vantar fyrir stoðþjónustuna, gaman væri að eiga skynjunarborð og svo mætti lengi telja. Auk þess sem ég mig langar að koma upp litlu útisvæði fyrir yngstu nemendurna okkar hér við leikskólann en við þurfum að labba ansi langa leið á útisvæðið okkar sem er við hinn enda Stapaskóla þar sem leikskólinn mun rísa fyrir rest. Mér þykir því mikilvægt að koma upp leiksvæði fyrir yngstu börnin svo að ekki þurfi að fara svona langa leið með þau þegar að útveru kemur. Við þurfum ekki mikið en sandkassi og lítil rennibraut myndu t.d. gera mikið fyrir okkur. Draumurinn er svo að mála aðeins í lit inn á deildum og koma upp fallegum eldhúskrók sem hægt er að nota í vinnu með börnunum. Fjárhagur leikskólastigs er þó ekki mikill. Skólunum er sniðin lítill stakkur og engan veginn hægt að fjármagna nema afar lítinn hluta af því sem þarf að gera. Þess vegna hef ég ákveðið að leita aðeins út í samfélagið og óska eftir styrkjum svo að við getum eflt enn betur það góða starf sem að við vinnum hér við leikskólastig Stapaskóla. Hvort eitthvað komi út því er svo önnur saga en ég vil sannarlega trúa því að einhverjir munu leggja okkur lið. Hlýjar kveðjur, Elísabet Kjartansdóttir
Reykjanesbær Börn og uppeldi Leikskólar Skóla- og menntamál Tengdar fréttir Innlit í nýtt íþróttahús Njarðvíkinga: „Þetta er þvílíkt mannvirki“ Njarðvíkingar bíða spenntir eftir því að taka nýtt íþróttahús í notkun en framkvæmdir eru á lokametrunum suður með sjó. 12. júlí 2024 08:01 Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Nýjustu sundlaug landsins má finna í Stapaskóla í Njarðvík. Laugin nýja þykir einkar glæsileg, en skólinn er orðinn að eins konar félagsmiðstöð fyrir íbúa. 13. ágúst 2025 09:54 Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Nú þegar fjórar vikur og fjórir dagar eru til sveitarstjórnarkosninga blásum við á fréttastofunni til kosningapallborðs þar sem oddvitar Reykjanesbæjar munu eiga sviðið. 14. apríl 2026 12:46 Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira
Innlit í nýtt íþróttahús Njarðvíkinga: „Þetta er þvílíkt mannvirki“ Njarðvíkingar bíða spenntir eftir því að taka nýtt íþróttahús í notkun en framkvæmdir eru á lokametrunum suður með sjó. 12. júlí 2024 08:01
Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Nýjustu sundlaug landsins má finna í Stapaskóla í Njarðvík. Laugin nýja þykir einkar glæsileg, en skólinn er orðinn að eins konar félagsmiðstöð fyrir íbúa. 13. ágúst 2025 09:54
Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Nú þegar fjórar vikur og fjórir dagar eru til sveitarstjórnarkosninga blásum við á fréttastofunni til kosningapallborðs þar sem oddvitar Reykjanesbæjar munu eiga sviðið. 14. apríl 2026 12:46