Viðskipti innlent

Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni

Árni Sæberg skrifar
Flugvél Icelandair.
Flugvél Icelandair. Vísir/Vilhelm

Eldsneytisbirgðastaða Icelandair er góð og birgjum félagsins standa fjölbreyttar flutningsleiðir til boða. Samkvæmt skýrslu Alþjóðaorkumálastofnunarinnar átti Evrópa aðeins sex vikna birgðir af flugvélaeldsneyti vegna lokunar Hormússunds. Sundið hafði að mestu verið lokað í sex vikur þegar það var opnað á ný í dag í tengslum við tíu daga vopnahlé Ísraelsmanna og Líbana.

Þetta kemur fram í skriflegu svari Ásdísar Ýrar Pétursdóttur, forstöðumanns samskipta hjá Icelandair, við fyrirspurn fréttastofu.

„Við fylgjumst vel með þróun mála og erum í góðu sambandi við okkar birgja um stöðuna á hverjum tíma,“ segir hún.

Líkt og breska ríkisútvarpið fjallaði um í gær hefur sex vikna lokun Hormússunds haft mikil áhrif á birgðastöðu flugfélaga í Evrópu. Greint var frá því í dag að sundið hefði verið opnað í tilefni af tíu daga vopnahlés milli Líbanon og Ísrael.

Ríki við Persaflóa eru stærstu útflytjendur flugvélaeldsneytis í heiminum og því ekki að furða að lokun Hormússunds hafi áhrif á aðfangakeðjur flugfélaga. Þannig hefur verið haft eftir Fatih Birol, framkvæmdastjóra Alþjóðaorkumálastofnuninnar, að styttst gæti í aflýsingar flugferða í Evrópu vegna eldsneytisskorts.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×