Sterkari Háskóli, sterkari Akureyri! Maríanna Margeirsdóttir skrifar 19. apríl 2026 11:32 Háskólinn á Akureyri er einn sterkasti hornsteinn samfélagsins okkar. Háskólinn hefur ekki aðeins byggt upp öflugt mennta- og rannsóknarumhverfi, heldur hefur hann einnig laðað að fólk til búsetu, styrkt atvinnulíf og aukið fjölbreytni í samfélaginu. Margir sem koma til Akureyrar til náms, þar á meðal undirrituð, setjast hér að. Þannig að háskólinn er ekki aðeins menntastofnun, heldur einnig drifkraftur íbúafjölgunar, nýsköpunar og framtíðaruppbyggingar. Hluti af því að efla Akureyri sem enn öflugra samfélag er að standa vörð um stöðu Háskólans og styrkja tengsl hans enn frekar við bæjarfélagið okkar og umheiminn. Það felst í sterkari stuðningi við stúdenta, bættu aðgengi að húsnæði, nánara samstarfi tengdu atvinnulífi og skýrri framtíðarsýn um Akureyri sem leiðandi háskólabæ. Bæjarstjórn Akureyrar gegnir hér lykilhlutverki. Hún þarf að standa vörð um Háskólann á Akureyri, beita sér gagnvart ríkinu fyrir öflugum stuðningi og tryggja að hagsmunir hans séu skýrt settir á oddinn. Samkeppni um fólk, þekkingu og tækifæri eykst stöðugt. Þess vegna eigum við ekki aðeins að verja stöðu Háskólans, heldur einnig hafa metnað til þess að efla hana. Því segi ég sterkari Háskóli þýðir sterkari Akureyri. Höfundur er í 12.sæti í L-listanum á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Akureyri Háskólar Mest lesið „Mamma, af hverju viltu láta sprengja Ísland?“ Bryndís Matthíasdóttir Skoðun Hvernig á kynlíf að vera? Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir Skoðun Félagsmiðstöðvar eru haldreipi margra barna Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Hver á að leggja símann frá sér? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Hvernig á kynlíf að vera? Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Hver á að leggja símann frá sér? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun „Mamma, af hverju viltu láta sprengja Ísland?“ Bryndís Matthíasdóttir skrifar Skoðun Félagsmiðstöðvar eru haldreipi margra barna Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Sjá meira
Háskólinn á Akureyri er einn sterkasti hornsteinn samfélagsins okkar. Háskólinn hefur ekki aðeins byggt upp öflugt mennta- og rannsóknarumhverfi, heldur hefur hann einnig laðað að fólk til búsetu, styrkt atvinnulíf og aukið fjölbreytni í samfélaginu. Margir sem koma til Akureyrar til náms, þar á meðal undirrituð, setjast hér að. Þannig að háskólinn er ekki aðeins menntastofnun, heldur einnig drifkraftur íbúafjölgunar, nýsköpunar og framtíðaruppbyggingar. Hluti af því að efla Akureyri sem enn öflugra samfélag er að standa vörð um stöðu Háskólans og styrkja tengsl hans enn frekar við bæjarfélagið okkar og umheiminn. Það felst í sterkari stuðningi við stúdenta, bættu aðgengi að húsnæði, nánara samstarfi tengdu atvinnulífi og skýrri framtíðarsýn um Akureyri sem leiðandi háskólabæ. Bæjarstjórn Akureyrar gegnir hér lykilhlutverki. Hún þarf að standa vörð um Háskólann á Akureyri, beita sér gagnvart ríkinu fyrir öflugum stuðningi og tryggja að hagsmunir hans séu skýrt settir á oddinn. Samkeppni um fólk, þekkingu og tækifæri eykst stöðugt. Þess vegna eigum við ekki aðeins að verja stöðu Háskólans, heldur einnig hafa metnað til þess að efla hana. Því segi ég sterkari Háskóli þýðir sterkari Akureyri. Höfundur er í 12.sæti í L-listanum á Akureyri.
Skoðun Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson skrifar
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar