Fossvogslaug – góð hugmynd, engin framkvæmd Sigfús Aðalsteinsson og Hlynur Áskelsson skrifa 19. apríl 2026 17:03 Það er fátt sem sameinar Íslendinga jafn mikið og sundlaugar. Þær eru vettvangur hreyfingar, heilbrigðis, menntunnar og daglegrar samveru. Því er athyglisvert og um leið áhyggjuefni hversu lengi hugmyndin um sundlaug í Fossvogi hefur verið til umræðu án þess að komast í framkvæmd. Hugmyndin um Fossvogslaug er ekki ný af nálinni. Íbúar Fossvogs og Bústaðahverfis hafa lengi bent á að svæðið standi illa að vígi hvað varðar aðgengi að almenningssundlaugum. Fyrir fjölskyldur, eldri borgara og börn í skólasundi þýðir það lengri ferðalög sem ganga þvert gegn þeim markmiðum sem talað er um í skipulagi og umhverfisstefnu borgarinnar. Í raun hefur Fossvogslaug verið rædd í áratugi. Hugmyndin hefur ratað inn í íbúaumræður, samráðsgáttir og kosningaloforð. Árið 2021 virtist loks stefna í átt að raunverulegum áfanga þegar Reykjavíkurborg og Kópavogsbær undirrituðu viljayfirlýsingu um sameiginlega uppbyggingu sundlaugar í Fossvogsdal. Þar var talað um hönnunarsamkeppni, vistvæna nálgun og samvinnu sveitarfélaganna. Síðan þá hefur ekkert gerst. Þrátt fyrir yfirlýsingar og undirbúning komst Fossvogslaug ekki inn í framkvæmdaáætlanir sveitarfélaganna. Engin fjármögnun hefur verið tryggð, engin tímasetning ákveðin og engar framkvæmdir hafnar. Hugmyndin situr í frosti og allt sem bendir til þess að hún verði þar um ókomin ár. Hvað tefur? Fossvogslaug er greinilega ekki í forgangi. Sveitarfélögin bæði standa frammi fyrir miklum fjárfestingum í Borgarlínu á komandi árum. Fossvogsbrúin, sem nú er komin í framkvæmd, er gott dæmi um stórt verkefni sem sogar til sín mikið fjármagn. Við slíkar aðstæður deyja góðar hugmyndir oft drottni sínum. Svo flækist málið því að um sameiginlegt verkefni Reykjavíkur og Kópavogs er að ræða. Slík samvinna er eflaust ekki til þess knúin að hraða málum. Þegar hvorugt sveitarfélagið tekur fullt frumkvæði eru meiri líkur en minni að ekkert gerist. Sundlaug í Fossvogi er ekki lúxusframkvæmd. Hún er rökrétt viðbót við grunnþjónustu borgarinnar, sérstaklega í ljósi lýðheilsumarkmiða, fjölgunar barna á svæðinu og tengingar við skóla. Það er þversögn að tala um heilsueflandi borg og minni bílaumferð, og láta heilt hverfi vera án sundlaugar í göngufæri. Fossvogslaug er verkefni sem nauðsynlega þarf að komast í framkvæmd sem fyrst í stað þess að viðhalda vonum íbúa, enn eitt kjörtímabilið, án aðgerða. Hugmyndir einar og sér bæta ekki líf fólks. Framkvæmdir gera það. Markmið Okkar Borgar eru skýr. Fossvogslaug skal sett í forgang og rísa hratt og örugglega. Veljum gleði og von – veljum Okkar Borg – veljum X – R Höfundar eru frambjóðendur Okkar Borg X – R Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Okkar borg Sundlaugar og baðlón Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar