Flug með fortíð og framtíð Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir, Helgi Karl Guðmundsson, Finney Rakel Árnadóttir, Sigurður Jón Hreinsson, Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir, Úlfar Logason og Sigurrós Elddís Huldudóttir skrifa 20. apríl 2026 11:46 „Áætlunarflug á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar, Bíldudals og Gjögurs eru mikilvægustu almenningssamgöngur Vestfirðinga og lífæð byggðanna stóran hluta ársins. Brýnt er að standa vörð um þá þjónustu og öryggi sem flugsamgöngur veita íbúum á Vestfjörðum.” Þannig hefst ályktun Fjórðungssambands Vestfirðinga um flugsamgöngur frá árinu 2015, ein af mörgum sem hefjast á þessum orðum. Fyrir íbúa Vestfjarða eru ferðir til höfuðborgarsvæðisins mjög oft ekki val, heldur nauðsyn, enda verður sífellt algengara að opinber þjónusta sé miðlæg, þ.e.a.s. ætlast til þess að allir sæki þjónustu til Reykjavíkur. Þessar ferðir fela í sér kostnað sem nær langt út fyrir flugmiðann; launatap, uppihald, gistingu og okkar dýrmætustu auðlind, tíma. Tíðni flugs hingað til, á Ísafjörð, hefur gert mörgum kleift að fara fram og til baka samdægurs hluta vikunnar og skiptir sá möguleiki sköpum. Með fyrirsjáanlegri fækkun ferða má gera ráð fyrir að sá sveigjanleiki hverfi að stórum hluta og að ferðalög krefjist í auknum mæli gistingar og lengri fjarveru frá vinnu og heimili. Þetta atriði mun vega þyngst hjá þeim sem síst mega við því, þeim sem þurfa veikinda sinna vegna að sækja læknisþjónustu suður. Flugsamgöngur til Ísafjarðar eru þegar ófyrirsjáanlegar yfir vetrartímann vegna veðurs, en algengt er að um 100 flug falli niður vegna veðurs á hverju ári. Með lækkaðri ferðatíðni minnkar svigrúm íbúa til að bregðast við þeim veruleika. Það þýðir einfaldlega að flug verður enn óöruggari ferðamáti fyrir fólk sem reiðir sig á það, ekki síst þegar þarf að sækja nauðsynlega þjónustu. Niðurstöðu viðræðna Vegagerðarinnar og Icelandair um flugsamgöngur til Ísafjarðar, er að mati okkar jafnaðarmanna í Ísafjarðarbæ, samningur um algert lágmark. Samningurinn felur í sér verulega skerðingu á þjónustu við norðanverða Vestfirði, eða 28,5% fækkun flugferða. Slík niðurstaða er ekki aðeins töluleg breyting heldur hefur hún raunveruleg áhrif á daglegt líf fólks. Samhliða þessu eru uppi hugmyndir um breytingar á Loftbrúnni, þar sem farið yrði frá prósentustuðningi yfir í fasta upphæð. Í reynd myndi það færa sífellt stærri hluta kostnaðar yfir á íbúana sjálfa eftir því sem verð hækkar, og það er augljóst skref í ranga átt. Loftbrúin hefur verið mikilvæg kjarabót fyrir landsbyggðina, ekki síst á tímum hækkandi gjalda, og það þarf að tryggja að hún haldi því hlutverki sínu. Þessi atriði teikna upp fyrir okkur skýra mynd: verið er að auka kostnað og óvissu fyrir íbúa svæðisins. Slíkt jafngildir í reynd auknum landsbyggðarskatti. Horfa þarf til framtíðar og er í því samhengi ekki úr vegi að benda á aðra setningu úr sömu ályktun og nefnd var fyrr í pistlinum, frá Fjórðungsþinginu haustið 2015: “Fjórðungsþing skorar á stjórnvöld að gerð sé úttekt á mögulegum nýjum flugvallarstæðum á Vestfjörðum sem geta þjónað innanlands og millilandaflugi.“ Eina leiðin til að auka ferðaöryggi í flugi til og frá svæðinu er með því að fá flugvöll sem er síður lokaður vegna myrkurs eða veðurfarsskilyrða. Eina leiðin til að gera flug hingað arðbærara er að vera með flugvöll sem getur tekið á móti sömu flugvélum og aðrir stórir landsbyggðar flugvellir gera í dag. Ísafjarðarflugvöllur er rekinn á undanþágu vegna hindrana í nágrenni flugvallarins og gæti því mögulega verið lokað endanlega án langs fyrirvara. Því er í raun mjög sérstakt að ríkisvaldið hafi ekki gripið ákall Fjórðungsþings á lofti og farið í það af fullum krafti að skoða aðra mögulega staði fyrir alvöru flugvöll á svæðinu. Flugsamgöngur eru ekki aukaatriði í byggðamálum. Þær eru forsenda þess að fólk geti búið, starfað og sótt þjónustu á svæðinu. Þess vegna þarf að taka þessi mál fastari tökum með hagsmuni íbúa að leiðarljósi og skýra framtíðarsýn.Við sem skipum lista Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ munum vera skýrir og óþreytandi málsvarar þess að tryggja öruggar og áreiðanlegar flugsamgöngun í samstarfi við stjórnvöld og hagaðila. Höfundar eru Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir, Helgi Karl Guðmundsson, Finney Rakel Árnadóttir, Sigurður Jón Hreinsson, Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir, Úlfar Logason og Sigurrós Elddís Huldudóttir, og skipa þau sæti á lista Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ísafjarðarbær Fréttir af flugi Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
„
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar