Viðskipti innlent

Endur­ræsing hafin hjá einu stærsta út­flutnings­fyrir­tæki landsins

Freyja Þórisdóttir skrifar
Frá Norðurál á Grundartanga.
Frá Norðurál á Grundartanga. skjáskot/Sýn

Endurræsing er hafin hjá Norðuráli eftir að bilun síðasta október varð til þess að framleiðsla dróst saman um tvo þriðju. Stefnt er á að álverið verði komið í fulla framleiðslu á ný í lok júlímánaðar þessa árs. Samkvæmt áætlunum í nóvember var gert ráð fyrir að framleiðsla í kerlínunni gæti hafist eftir ellefu til tólf mánuði.

Framleiðsla var stöðvuð í annarri af tveimur kerlínum álvers Norðuráls í október síðasta árs en var það í kjölfar bilunar í rafbúnaði álversins sem varð þriðjudaginn 21. október. Bilunin olli því að álframleiðsla á Grundartanga skertist um tvo þriðju. 

Þá var óljóst hve langan tíma tæki að koma framleiðslunni í fullan gang á ný og hafði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra orð á því að staðan væri grafalvarleg. Formaður Verkalýðsfélags Akraness sagði einnig frá því að félagsfólk væri kvíðið vegna stöðunnar. 

Frá upphafi lá fyrir að tekið gæti heilt ár að fá nýja spenna til landsins og enn er áætlað að þeir verði komnir og tilbúnir til uppsetningar næsta haust, segir í tilkynningu frá Century aluminum, móðurfélagi Norðuráls. Til að stytta þann tíma sem kerlínan liggur niðri hafi strax hafist vinna við að athuga hvort hægt væri að gera við biluðu spennana og nota þá tímabundið, þar til þeir nýju kæmu til landsins.

„Sú vinna, sem fór fram í nánu sambandi við hönnuð og framleiðanda búnaðarins, hefur skilað því að hægt verður að hefja fulla framleiðslu nokkrum mánuðum fyrr en ella,“ segir í tilkynningu.

Engum sagt upp

Tæplega sjö hundruð manns starfa hjá fyrirtækinu en í tilkynningu segir að ákveðið hafi verið að fækka ekki í starfsmannahóp fyrirtækisins í kjölfar bilunarinnar. Það hefur frá því að bilunin kom upp unnið við að gera kerlínuna tilbúna fyrir endurræsingu.

„Ljóst er að fyrirtækið væri ekki jafnvel í stakk búið til að hefja framleiðslu og raun ber vitni ef ekki væri fyrir það einvala lið sem hjá Norðuráli starfar,“ segir jafnframt í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

„Alvarlegt áfall á Grundartanga” sem beri að bregðast við hratt

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins, lýsir alvarlegum áhyggjum af þeirri stöðu sem uppi er á Grundartanga en Norðurál tilkynnti um það í gær að framleiðsla hafi verið stöðvuð í stórum hluta álversins á Grundartanga vegna bilunar í rafbúnaði. Um er að ræða mikið áfall fyrir starfsemina, starfsfólkið og samfélagið allt á Akranesi og í nærsveitum að sögn Vilhjálms. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru uppi töluverðar áhyggjur meðal starfsfólks um mögulegan atvinnumissi vegna stöðunnar.

Viðgerð muni taka einhverja mánuði

Forstjóri Norðuráls segir mikið tjón blasa við eftir að starfsemi fyrirtækisins var stöðvuð í stórum hluta álversins á Grundartanga í gær. Hann segir einhverja mánuði þar til starfsemi verði komin í eðlilegt horf á ný. 

Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana

Fulltrúar Norðuráls skoða nú möguleikann á því að gera við spenna sem biluðu í síðasta mánuði og nota þá tímabundið þar til nýir fást. Áætlað er að biðin eftir nýjum spennum gæti tekið allt að ár. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um uppsagnir starfsmanna vegna ástandsins.

Allt á uppleið á Grundartanga

Eigandi Norðuráls á Grundartanga gerir ráð fyrir því að álverið munu ná fullum afköstum í lok júlí næstkomandi. Afköst álversins hafa aðeins verið þriðjungur af því sem þau eru vanalega eftir að bilun varð í annarri af tveimur kerlínum þess í október síðastliðnum. Talið var að viðgerð gæti tekið allt að ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×