Erlent

Hlaut al­var­lega höfuð­á­verka eftir á­rekstur á rafhlaupahjóli

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Mynd af vettvangi slyssins.
Mynd af vettvangi slyssins. Lögreglan í Moss

Maður á fimmtugsaldri var fluttur á sjúkrahús með alvarlegan höfuðáverka eftir árekstur rafhlaupahjóls og bíls í Moss í Noregi í dag.

Samkvæmt umfjöllun Verdens gang leit ekki út fyrir að um alvarlegt slys væri að ræða. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús í nágrenninu þar sem umfang áverka hans var ljóst. Hann var þá fluttur með þyrlu á Ullevål-sjúkrahúsið í Ósló.

Áreksturinn átti sér stað á gangbraut. Bíll nam staðar við gangbrautina til að hleypa tveimur fótgangandi yfir götuna og keyrði svo yfir gangbrautina. Hinn slasaði ætlaði þá einnig að fara yfir gangbrautina á rafhlaupahjóli sínu en klessti á hlið bílsins.

Maðurinn var undir áhrifum samkvæmt lögreglunni. Ökumaður bílsins var kona á áttræðisaldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×