„Við búum í brjáluðum heimi“ Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 27. apríl 2026 07:30 Trump mætti á blaðamannafund í Hvíta húsinu skömmu eftir atburðina um helgina. AP Photo/Tom Brenner Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í samtali við fréttaskýringaþáttin 60 Mínútur um helgina að hann hefði ekki orðið hræddur þegar árás var gerð þar sem galakvöldverður fjölmiðla og stjórnmálamanna fór fram í Washington.
Trump, eiginkona hans Melania og aðrir ráðamenn voru fluttir í skjól á meðan aðrir gestir földu sig undir borðum, þegar skothvellir ómuðu í byggingunni. Trump var spurður af þáttarstjórandanum hvernig honum hafi liðið þegar skotjvellirnir tóku að óma. „Ég var ekki áhyggjufullur,“ sagði forsetinn. „Ég skil lífið. Við búum í brjáluðum heimi,“ sagði Trump meðal annars í viðtalinu en þetta er í þriðja sinn sem einhver reynir að ráða forsetann af dögum. Hann var einnig spurður út í hvernig þetta hefði gengið fyrir sig því það vakti athygli að JD Vance varaforseta var komið út af sviðinu töluvert fyrr en Trump. Trump sagðist gera sér grein fyrir því að hann væri ekki að auðvelda lífvörðum sínum lífið, en að hann hafi viljað sjá hvað væri að gerast áður en hann fór af sviðinu. Miðlar vestanhafs hafa birt brot úr yfirlýsingu sem árásarmaðurinn, hinn 31 árs Cole Tomas Allen, sendi á vini og ættingja tíu mínútum áður en hann lét til skarar skríða. Þar játaði hann að vera hræddur en sagðist ekki geta staðið hjá á meðan nauðgari og barnaníðingur sæti í Hvíta húsinu. Var hann þar að vísa til Trump. Forsetinn var spurður út í þessi ummæli í 60 Minutes viðtalinu og brást hann reiður við og svaraði hann fréttakonunni Noruh O'Donnell á þann veg að hún ætti að skammast sín fyrir að lesa upp þessi orð. Karl þriðji Bretakonungur og Kamilla drottning eru væntanleg í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna í dag. Dagskrá þeirra er sögð hafa verið yfirfarin eftir atburði helgarinnar. Vonir standa til að heimsóknin muni styrkja tengsl Bretlands og Bandaríkjanna, sem hafa verið undir álagi eftir að bresk stjórnvöld neituðu að taka þátt í aðgerðum Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran, eftir að þær hófust.
Donald Trump Bandaríkin Tengdar fréttir Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Byssumaðurinn meinti sem er grunaður um tilræði við Bandaríkjaforseta og aðra háttsetta embættismenn á kvöldverðarviðburði í nótt skrifaði bréf til fjölskyldunnar sinnar og vina þar sem hann bað þau afsökunar. 26. apríl 2026 23:41 Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Settur dómsmálaráðherra Bandaríkjanna segir að byssumaðurinn sem hleypti af skotum á Hilton-hóteli í Washington í nótt hafi líklega ætlað að ráðast á Donald Trump Bandaríkjaforseta og fleiri háttsetta ráðamenn. 26. apríl 2026 14:00 Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira
Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Byssumaðurinn meinti sem er grunaður um tilræði við Bandaríkjaforseta og aðra háttsetta embættismenn á kvöldverðarviðburði í nótt skrifaði bréf til fjölskyldunnar sinnar og vina þar sem hann bað þau afsökunar. 26. apríl 2026 23:41
Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Settur dómsmálaráðherra Bandaríkjanna segir að byssumaðurinn sem hleypti af skotum á Hilton-hóteli í Washington í nótt hafi líklega ætlað að ráðast á Donald Trump Bandaríkjaforseta og fleiri háttsetta ráðamenn. 26. apríl 2026 14:00