Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. apríl 2026 15:37 Myndin er af eldgosi á Reykjanesskaga norðan Grindavíkur þann 1. apríl 2025. Myndin tengist fréttinni því ekki beint. Vísir/Anton Brink Kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni er áfram líklegasta sviðsmyndin á Reykjanesskaganum að mati Veðurstofu Íslands. Áfram mælist lítil jarðskjálftavirkni á landinu.
Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi en er hæg og stöðug líkt og síðustu vikur. Rúmir 25 milljónir rúmmetra af kviku hafa safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí. „Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir og þrýstingur í kerfinu eykst er líklegasta sviðsmyndin sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt til eldgoss. Gera þarf ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og áður, en hann hefur verið á bilinu 20 mínútur upp í rúmar fjórar klukkustundir,“ segir í nýrri tilkynningu frá Veðurstofunni. Á dögunum barst Veðurstofunni bylgjuvíxlmynd (InSAR) en á slíkri mynd má sjá smávægilegar yfirborðsbreytingar með því að bera saman gervihnattamyndir teknar á mismunandi tímum. Á myndinni sést greinilega landris við Svartsengi. Engin merki um aflögun sjást annars staðar á skaganum. Hreyfingarnar sjást á bylgjuvíxlmyndinni.Veðurstofa Íslands Áfram mælist lítil skjálftavirkni við kvikuganginn en hún virðist hafa aukist lítillega síðustu tvær vikur. Flestir skjálftanna eru undir einum að stærð. Hættumat Veðurstofunnar er því óbreytt og gildir til 30. júlí. Hættumatið er í gildi til 30. júní.Veðurstofa Íslands
Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Tengdar fréttir Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi. 21. apríl 2026 15:30 Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira
Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi. 21. apríl 2026 15:30