Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Lovísa Arnardóttir skrifar 29. apríl 2026 10:47 Evrópuráðið telur Meta ekki koma nægilega vel í veg fyrir að börn yngri en þrettán ára búi til aðgang og noti Facebook og Instagram. Vísir/Getty Evrópuráðið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Meta, eigandi Facebook og Instagram, hafi brotið gegn lögum ESB um stafræna þjónustu [e. Digital Services Act, DSA] með því að tryggja ekki betur að börn undir þrettán ára aldri noti ekki Facebook og Instagram.
Þrettán ára aldurstakmark er á miðlana en börn fara iðulega fram hjá því með því að setja inn annan eldri aldur og segir í skýrslu ráðsins að hjá Meta sé ekkert gert til að reyna að staðfesta þetta. Þetta kemur fram í fyrstu bráðabirgðaniðurstöðum nærri tveggja ára rannsóknar ráðsins. Þar kemur einnig fram að úrræði Meta til að koma í veg fyrir að börn fari fram hjá reglum þeirra séu óskilvirk og úrræði þeirra til að fjarlægja þau svo af miðlunum sömuleiðis. Þannig uppfylli fyrirtækið ekki eigin skilmála og skilyrði. Sem dæmi segir í tilkynningu Evrópuráðsins að til þess að tilkynna notanda sem er ekki með aldur þurfi að ýta minnst sjö sinnum á hnapp til að komast inn á rétta síðu og að eftir það þurfi notandinn að fylla sjálfur allar upplýsingar inn. Þá sé slíkum tilkynningum illa fylgt eftir og því geti táningar undir þrettán ára aldri mjög auðveldlega notað samfélagsmiðlana án nokkurra hindrana. Þurfi betra áhættumat Í tilkynningu Evrópuráðsins segir að að þeirra mati þurfi Facebook og Instagram að breyta aðferðafræði sinni við áhættumat til að meta hvaða áhættur skapast á Instagram og Facebook innan Evrópusambandsins og hvernig þær birtast. Auk þess þurfi Instagram og Facebook að efla ráðstafanir sínar til að koma í veg fyrir að greina og fjarlægja börn undir 13 ára aldri af þjónustu sinni. Meta verði þannig að bregðast á skilvirkan hátt við og draga úr þeirri áhættu sem börn undir 13 ára aldri kunna að verða fyrir á miðlunum og tryggja þannig betri persónuvernd, öryggi og vernd fyrir börn. Facebook og Meta fá nú tíma til að kanna bráðabirgðaniðurstöður Evrópuráðsins og til að bregðast við. Verði lokaniðurstaða Evrópuráðsins sú sama er líklegt að lögð verði sekt á fyrirtækin sem má þó aldrei vera hærri en sex prósent af heildarársveltu fyrirtækjanna á heimsvísu. Þá kemur fram að einnig geti framkvæmdastjórn Evrópuráðsins lagt á dagsektir. Tekið er fram í tilkynningu að bráðabirgðaniðurstöðurnar feli ekki í sér fyrir fram ákveðna lokaniðurstöðu rannsóknar ráðsins. Meta ósammála Samkvæmt frétt Guardian voru tekjur Meta um 201 milljarður dala fyrir árið 2025. Það samsvarar um 28.140 milljörðum íslenskra króna eða 28,1 billjón. Í frétt Guardian um málið að talsmaður Meta segi fyrirtækið ósammála þessum bráðabirgðaniðurstöðum. „Við erum skýr um að Instagram og Facebook eru ætluð einstaklingum 13 ára og eldri og við höfum gert ráðstafanir til að greina og fjarlægja reikninga þeirra sem eru yngri en það. Við höldum áfram að fjárfesta í tækni til að finna og fjarlægja notendur undir lágmarksaldri og munum kynna frekari ráðstafanir í næstu viku sem verða innleiddar á næstunni,“ er haft eftir honum og að verkefnið sé áskorun en að fyrirtækið muni halda áfram að vinna með framkvæmdastjórn Evrópuráðsins. Í frétt Guardian er bent á að þessar niðurstöður komi á sama tíma og stjórnvöld víða um heim, og sérstaklega í Evrópu, skoði hvort banna eigi samfélagsmiðla fyrir börn og aðgengi þeirra að snjallsímum. Sem dæmi hafi Spánn kynnt samfélagsmiðlabann fyrir yngri en sextán ára og Bretland sé að skoða það. Í könnun Prósents í desember kom fram að um 70 prósent Íslendinga eru hlynntir samfélagsmiðlabanni fyrir yngri en sextán ára. Alþingi samþykkti svo í mars heimild fyrir ráðherra til að kveða nánar um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla. Mennta- og barnamálaráðherra tilkynnti síðasta haust að hún ætlaði að innleiða slíkt bann í skóla næsta haust en fjallað er um það í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Ráðherra sagði síðar að reglugerðin yrði sniðin í samvinnu við skólana og hélt svo vinnufund með ungmennum nýlega til að fá þeirra sjónarmið fram. Rannsókn sem hófst 2024 Framkvæmdastjórnin hóf víðtæka rannsókn á Meta í maí 2024 samkvæmt DSA. Aðrir þættir rannsóknarinnar standa enn yfir, einkum hvort fyrirtækið geri nægilega mikið til að vernda líkamlega og andlega heilsu ungra notenda. Í frétt Guardian segir að innan Evrópusambandsins sé einnig verið að skoða mögulega ávanabindandi áhrif miðla Meta, einkum svokölluð „kanínuholuáhrif“, þar sem reiknirit fóðrar ungt fólk með neikvæðu eða öfgakenndu efni. Þegar rannsóknin hófst árið 2024 sagði Meta að það vildi að ungt fólk „hefði örugga og aldurshæfa upplifun á netinu“ og að fyrirtækið hefði „varið áratug í að þróa meira en 50 verkfæri og reglur sem ætlaðar eru til að vernda þau“.
Meta Símanotkun barna Börn og uppeldi Evrópusambandið Mest lesið Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fleiri fréttir Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira