„Langir fætur hjálpa við að sparka í hausinn á þeim“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. apríl 2026 09:00 Guðmundur Flóki er á fullu að undirbúa sig fyrir komandi stórmót. vísir / sigurjón Taekwondo-kappinn Guðmundur Flóki Sigurjónsson sækir æfingabúðir erlendis til að undirbúa sig fyrir komandi stórmót. Hann setur stefnuna hátt á Evrópumótinu og verður síðan sá fyrsti til að keppa fyrir Íslands hönd á Grand Prix mótaröðinni, sem er sú sterkasta í heimi.
Guðmundur Flóki, eða einfaldlega Flóki, hefur tekið ótrúlegum framförum að undanförnu. Hann byrjaði bara að keppa í fullorðinsflokki í fyrra, þá sautján ára gamall, en hefur sópað til sín verðlaunum og er á ógnarhraða kominn í fremstu röð á heimsvísu. „Þetta er mjög tæknileg íþrótt og aðallega strategísk. Maður þarf að bregðast við og vita hvað maður á að gera, búa til sinn stíl líka. Mér finnst það svo gaman, það er enginn keppandi eins og einhver annar. Maður þarf að vinna með það sem maður hefur. Hvort sem það er snerpa, þungi, styrkur, hæðin, allt.“ Sjá einnig: Sautján ára Íslendingur vann brons í fullorðinsflokki Hvernig er þinn stíll? „Ég er nokkuð hávaxinn þannig að ég held mig svolítið frá andstæðingnum. Held fjarlægðinni og er mikið í árás, langir fætur hjálpa við að sparka í hausinn á þeim og í brynjuna.“ Nauðsynlegt að undirbúa sig erlendis Með þessum lappalanga stíl náði Flóki mögnuðum árangri í vetur. Hann vann sér inn sæti á Evrópumótinu í Munchen og á fyrsta Grand Prix móti ársins sem verður haldið í Róm í júní. Þar má segja að Flóki mæti á stærsta sviðið í taekwondo, aðeins þeir 32 bestu í hverjum þyngdarflokki komast að og því mikilvægt að undirbúningurinn sé með besta móti. „Ég er búinn að fara í nokkrar æfingabúðir í ár og æfa með norska, sænska og franska landsliðinu. Það hefur gengið vel og ég er í góðu formi. Við erum bara þrjú hérna á Íslandi sem eru í landsliðinu. Ég keppi í -80 kg. þyngdarflokki en aðal æfingafélagi minn er í -68 kg. flokknum, þannig að það er nauðsynlegt að fara út og æfa með stærri strákum.“ Væri gaman að komast á pall Eftir þennan góða undirbúning kemur svo að stóru stundunum, EM og Grand Prix. „Ég er rosa spenntur fyrir báðum mótum. Maður fer og gerir sitt besta, svo sér maður bara hver útkoman verður. Það væri gaman að komast á pall, ég get ekki neitað því.“ Viðtal við Guðmund Flóka var sýnt í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi og má sjá í spilaranum að ofan.
Taekwondo Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Getur Wemby bjargað NBA? Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Öskubuskuævintýri í gangi í París Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Tileinkaði Úkraínu sigurinn Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Besta gengi Ítala á risamóti Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Sjá meira