Handbolti

Magnús kominn heim af sjúkra­húsi en tíma­bilinu lík­lega lokið

Aron Guðmundsson skrifar
Magnús Óli Magnússon var borinn af velli í gærkvöldi
Magnús Óli Magnússon var borinn af velli í gærkvöldi vísir/Anton

Tíma­bilinu er að öllum líkindum lokið hjá Magnúsi Óla Magnús­syni, leikmanni Vals að sögn þjálfara liðsins. Magnús hlaut heila­hristing eftir þungt höfuðhögg í úr­slita­ein­vígi Olís deildarinnar gegn FH í gær og var fram á nótt á sjúkra­húsi.

Valsmenn unnu leikinn í gærkvöldi með tveimur mörkum, 32-30, og eru því komnir 2-1 yfir í einvíginu og einum sigurleik frá því að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. 

Það skyggði þó á gleði Valsmanna að leikmaður liðsins, Magnús Óli, skyldi meiðast. Leikmaðurinn öflugi fékk þungt högg á höfuðið er hann lenti í samstuði við Ingvar Dag Gunnarsson, varnarmann FH.

„Reikna ekki með honum“

Magnús Óli lá óvígur eftir á vellinum eftir samstuðið og þurfti að flytja hann af sjúkrabörum af velli og upp á sjúkrahús þar sem að hann undirgekkst frekari skoðun og rannsóknir. 

„Hann var fram á nótt á spítala en er kominn heim,“ segir Ágúst Þór Jóhanns­son, þjálfari Vals um Magnús Óla í sam­tali við Vísi en hann hafði fengið upp­lýsingar frá Magnúsi sjálfum um stöðu mála í morgun.

Í ljós hefur komið að Magnús hlaut heila­hristing eftir þetta þunga högg í leik gærkvöldsins. Það er stutt á milli leikja núna í úr­slita­ein­víginu og geta Vals­menn klárað ein­vígið á mánu­daginn kemur með sigri og tryggt sér Ís­lands­meistara­titilinn.

„Ég geri ekki ráð fyrir honum það sem eftir lifir tíma­bils,“ segir Ágúst um horfurnar fyrir Magnús á loka­metrum tíma­bilsins sem inni­heldur að lág­marki einn leik. En fari svo að FH vinni leik liðanna á mánu­daginn næst­komandi í Kapla­krika fer ein­vígið í odda­leik sem ráð­gert er að fari þá fram fimmtu­daginn 7.maí.

Magnús er með reynslumestu leikmönnum Valsvísir/Hulda Margrét

Að­spurður um það hvernig hljóðið í Magnúsi hafi verið er hann ræddi við hann í morgun hafði Ágúst þetta að segja:

„Hann var svo sem bara að vakna, pínu daufur. Hann þarf bara tíma til að ná sér, taka einn dag fyrir í einu. En ég myndi segja það ólík­legt að hann taki þátt í þessum enda­spretti.“

Slæmt fyrir Vals­menn að missa Magnús Óla en að auki er Dagur Árni Heimis­son einnig frá.

„Maggi er byrjunar­liðs­maður, bara mjög slæmt að missa hann. Leik­maður sem er frábær í bæði vörn og sókn en það kemur maður í manns stað. Ungir leik­menn fá stærra hlut­verk. Við tökumst á við þetta og undir­búum okkur fyrir erfiðan leik. Hvort sem að Magnús sé með eða ekki yrði það alltaf erfiður leikur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×